Ungi hermaðurinn - 15.03.1908, Blaðsíða 4
24
Ungi hermaðurinn
Sunnudagaskólalexíur.
Sunnudag 15. marz 1908.
Matt. 25, 31-46.
Hver á að dæma? Jesús i sinn ljómandi
hásæti; menn og konur og miklir herskar-
ar af börnutn og dýrðlegir englar munu
standa umhverfis hann.
Hvernig verður því niðurskipað? í 2
flokka. Hér á jörðu eru margir flokkar;
þar munu þeir að eins verða 2.
Hvað gildir? Mettið þá hungruðu, gefið
þyrstum að drekka, föt þeim, sem nakt-
ir eru, vitjið sjúkra og hýsið vegfarendur.
Teksti til náms utanbókar.
Alt, sem þér hafið gjört við hinn minsta
af minum hræðrum, það hafið þér mér
gjört. (Matt. 25, 40.)
Sunnuclagaskólalexíur.
Sunnudag 22. marz 1908.
Jóh. 5, 2-9.
Lœknandi vatn (5, 2—4). Þetta vatn
var heilnæmt. Þegar það óx, þá flýtti
hinn veiki sér að komast ofan i það, með
hjálp vina eða ættingja. 31 ár (v. 5.)
Hugsaðu þér þann tíma! — hve einmana
hann hefir verið! Aðrir voru læknaðir,
og voru fagnandi á hurtu gengnir, en hann
lá hér enn.
Teksti til nárns utanbókar.
Allir skulu heiðra soninn eins og þeir
heiðra föðurinn. (Jóh. 5, 23.).
Biblíulestur fyrir flokksforingjaefni
Um ihugun.
M.d. Orðskv. 23, 7. F.d. Matt. 9, 4.
Þrd. 2. Kor. 10, 5. Föstd. Sálm. 139, 23.
Miðvd. Sálm. 44, 22. Laugd. Róm. 2, 15.
Sunnud. 1. Kor. 3, 20.
Utg. og ábm. Hj. Hansen, adjutant.
^^^^^reinarnar^^ddar^f^^H^^^^^
Isafoldarprentsmiðja.
S ongvar.
11.
Lag: Dejlig er den Himmel blaa.
Jesú litla lamb eg er,
Létt hann mig á órmum ber ;
Yfir mörk og myrkur dala
Míu er leið til himinsala.
Jesú litla lamb eg er,
Ljúft hann mig á örmum ber.
Jesú eigin eign eg er,
Ást hann mesta sýnir mór;
Sitt hann biessað blóð lét renna
Blessun hans svo mætti’ eg kenna.
Jesú eigin eign eg er
Ást hann mesta sýnir mór.
Steinninn Jesú auga’ eg er
I kærleika’ hann til mín sór;
Frá mér öllum vetidir voða
Vill mig bezt hans hjálp aðstoða
Steinninn Jesú auga’ eg er.
I kærleika’ hann til mín sór.
12.
Lag: Jorden Uro har og Jammer.
Hór á jörð er hvers kyns mæða
Harmur, sorg og stríð;
En hjá Guði’ er eilíi' gleði —
Eilíf sumartíð;
Bætt er stríð og brátt á enda,
Bíðum þolinmóð,
Himius gleði aldrei endar;
Er það huggun góð.
Kór:
Gleðistað með gullnum hliðum
Getur’ ei dauðinn náð.
Þar er engin hrygð nó harmur,
Hvorký í lengd né bráð.
Þar mun safnast helgra hópur
Hér frá jarðar dal,
Sem að aldrei yfirgefa
Aftur dýrðarsal.
Hlusta þeir á helga söngva,
Hvílík unun góð,
Heyrir þú nú hátt að gjalla
Himnesk bergmáls Ijóð.