Ungi hermaðurinn - 15.06.1912, Blaðsíða 4

Ungi hermaðurinn - 15.06.1912, Blaðsíða 4
44 Ungi hermaðurinn. Barnastarf Hjálpræðishersins á Aureyri. Eins og mynd þessi sýnir, eru mörg börn, sem halda sér að Hjálprœðishern- um á Akureyri, eins og víðar. Fjöldi barna koma á sunnudagaskólann, þar sem er sungið og vitnað og beðið fyrir þeim, og orð Drottins er lesið og útlagt, og það sem dyrmætast er, að það sem hefir verið talað fyrir þeim Drottins, hefir festíþeirra hjört- um og borið ávöxt þannig, að nokkrir af þessum unglingum, sem eru á myndinni, geta á barna samkomum staðið upp og lofað Drottinn og sagt frá því dýrlega frelsi, sem þau hlutu við Jesú undir, og látið löngun sína í ljósi að lifa fyrir Jesúm, sem hefir gefið sitt líf í dauðann og lagt veg til himins fyrir hvern, sem á hann trúir. Jóh. 9, 3. 14.—18. Dy^rð só Guði! Einnig hefir Hjálpræðisheritui k æ r - 1 e i k s b a n d þar, og er það ekki síður ánægjulegt en sunnu dagaskólinn, því Drottinn er einnig með oss þar, til að blessa og gleðja með sinni nærveru. — Börnin safnast saman og er byrjað með bæn. í salnum eru uppsett tvö borð og litlu stúlkurnar fara að öðru borðinu með saumana sína og taka svo til starfa, sum- ar að sauma handa brúðutium sínum, en nokkrar að falda klúta og sauma út stafi og sumar með vandasama sauma. Drengirnir hafa einnig sitt verk að vinna og hafa áhuga á því. Þeir skera út og saga myndaramma. Það í nafni veður einnig lærdómur fyrir þá, eins og stúlkurnar, sem er kent að sauma. Börnin eru glöð, en þó stilt, meðan kenslustund- in yfirstendur, og er endað með bæn og þakkargjörð til Drottins. Eitt er eg viss um, að börnin munu aldrei sjá eftir þeim stundum, sem þau hafa dvalið í sal Hjálpræðishersins, heldur hafa sælar endurminningar frá þeim tímum. Það er vort markmið að vinna börn- in og hitia ungu Kristi til handa, að þau, eins og Mar/a, sem sat við fætur sásW Barnaflokkurinn á Akureyr‘

x

Ungi hermaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ungi hermaðurinn
https://timarit.is/publication/528

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.