Ungi hermaðurinn - 01.03.1927, Side 4

Ungi hermaðurinn - 01.03.1927, Side 4
20 Ungi hermaðurinn unum og allri hinni lifrænu náttúru. Án hans væri ekkert líf til. Án hans gætu blómin ekki lifnað og dafnað og glatt oss með ilm sínum og fegurð. Guð er uppspretta alls. Guð sameinaðist efnisleysinu og af engu skapaði hann heiminn og alt, sem í honum er. Af sameiningu guðdómsins og duftsins varð maðurinn til og allar lifandi verur, sem þessa jörðu byggja- Að skapa er áþekt þvi, sem málarinn gjörir með penslinum. Pensillinn málar myndina. en myndin er þó ekki hluti af pensl- inum, hún er sköpuð af heila málarans og hluti af hans sál eða ímyndunarafli. Það er hugsun Guðs sem hefir skapað allar myndir á himni og jörðu!« Hann mátti það ekki. Lítill drengur sat á framdyra- þröskuldi kristniboðshússins. Inni í húsinu var barnasamkoma. — Kristniboðinn koin út til hans og bauð honum að koma inn á barna- samkomuna. »Jeg get ekki komið inn,« svar' aði drengurinn. »Hvers vegna?« spurði trúboð' inn. »Jeg kann ekki að biðja,« svar' aði barnið. »Hvernig stendur á því?« »Mjer hefir aldrei verið kent það«. »Komdu inn barnið gott og við skulum kenna þjer að biðja Jesú Krist«, svaraði trúboðinn. Bróðir drengsins, sem sat við hlið hans, greip fram í og sagði: »Mamma bannar okkur að sækja þessar samkomur«. Aumingja drengurinn! Hann þráði að fræðast um Jesú, þess vegna sat hann á þröskuldi sani' komuhússins; því nær mátti hann ekki koma, en vonaði að heyra eitthvað af prjedikuninni þangað og læra af því. Biðjum því fyrir þeim, sem heimilin synja leyfis að sækja samkomur vorar. ©0@<^B0a0®0@0@0®0® Muníð sunntidagaskóla Hjálpræðíshersíns hvern sunnadag kl. 2. Verið velkomín! ©<0©<0<fÍC>©<0@<0©0>®<08<>®

x

Ungi hermaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ungi hermaðurinn
https://timarit.is/publication/528

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.