Templar - 29.04.1908, Qupperneq 2
66
TEMPLAR
Cemplar
er útbrdddasta blað landsins, upplag 4,o«o - og
þpí langbcsta auðlýsitiðabladid.
t.Rr. Svcinn íónsson trcsmiöur, Pingbolst-
stræti 2$, tckur á móti auglýsingum í'blaöiö.j
IV
Jilla afgrciðslu’blaösins\annast br. JDavið
fc V
0 $ 11 u n d prcntsmiðjucigandi, Þingboltsstr. 23.
ur sé óhygginn í fjármálum og eyðslu-
belgur, og ef maður er ríkur, er sagt, að
maður hugsi ekki um annað en hrúga
saman peningum og snuða náungann.
Ef eg þarf peninga snúa allir baki að
manni, en ef pyngjan er ætíð opin fyrir
hvern sem er, þá hefir maður eigi frið
fyrir neinum.
Eigi maður við stjórnmál, þá er það
einungis gert í hagsmunaskyni til þess
að fá bita af landsfé, og láti maður öll
stjórnmál sem vind um eyrun jojóta, þá
er maður næstum því föðurlandssvikari,
minsta kosti enginn ættjarðarvinur.
Ef maður er ákaflega gjöfull, og gef-
ur allskonar velgerðarfélögum og nefnd-
um er að slíku starfa, þá er það ekki
af góðgerðasenú, heldur til þess að láta
bera á sér, láta sín getið og sjá nafnið
sitt á prenti, og gefi maður|ekki, þá er
það af ágirnd.
Sýni maður þeim samhygð sem eru
óhamingjusamir, þá er rnaður meðaumk-
unarsamur heimskingi, en geri maður
það ekki, þá er maður samviskulaus og
samansaumaður peningapoki.
Deyi einhver á unga aldri, þá hefir
hann átt glæsilega framtíð fyrir höndum,
en ef hann deyr gamall, hefir æfiferill
hans verið víxlspor og talsvert mislitur.
Pað er ekki ætíð gott að lifa en —
það er þó ætíð betra en að deya.
■'-q)
Hvað er að frétta?
Kaupfclag Eyfirðinga er var breytt í samvinnu-
kaupfélag, var áður pöntunarfélag, hefir blómgast
mjög síðnslu árin. Árið 1905 seldi það útlendar
vörur fyrir 8000 kr., 1906 fyrii 28000 kr. og í
fyrra fyrir 62000 krómtr og er það feikna fram-
för. Skaða varð það talsverðum fyrir síðasta ár,
vöruskemdum, þó varð ágóði félagsmanna 6°/0 af
vöruúttekt þeirra á árinu auk þess, er félagið legg-
ur í varasjóð. Skuldlausar eignir félagsins nenia
um 11000 kr. Forstjóri félagsins er Hallgrímur
Davíðsson gagnfræðingur frá Hvassafelli í Eyafirði
mjög einbeittur maður, ötull og fylginn sér og
áreiðanlegur í hvívetna.
Jlóabátarnir. Ingólfur, hmn nýi Faxaflóabátur,
lagði á stað hingað frá Norvegi á Sunnudaginn
var. Tekur við ferðunum 1. Maí eða þar um bil.
Þá hættir Oeraldine og fer á fiskiveiðar.
Reykjavikin nýa, sem hafði Faxaflóa undir
í íyrra, tekur að sér Breiðafjörð þetta sumar. Bj.
Ouðmundsson kaupm. stendur fyrir itgerð hennar
hér.
Pilskipaflotinn. Um og yfir 20,000 eru sum
þilskipin héðan búin að fá, og það yfirleitt af
vænum fiski. Þeirra á meðal er Skarphéðinn frá
Melshúsum (22 þús.), Seagold frá Ráðagerði (22)
og Björgvin frá Reykjavík (Ellert Schram); hún,
kom á Föstud. með 12,000 af úrvalsfiski, en hafði
fengið 9 þús. áður.
Þetta fiskast alt djúpt undan Selvogi, 6 vikur
sjávar. Þar eru dag eftir dag um og yfir 200
skip á fiski, á litlum bletti, þar af lja botnvörp-
ungar. Skipin liggja nærri því eins þétt og inni
á höfn. En altaf sömu uppgripin. (ísaf.)
Þilskipin í Hafnarfirði hafa öll aflað tninna en
sktpin héðan úr Reykjavík.
Sparisjóð eru Bolvíkingar að koma á fót hjá
sér. Forgöngumenn þessa fyrirlækis eru Pétur
Oddson kaupmaður og Sigurðitr Jónsson kennari
frá Álfhólum. (Vestri).
Þrír mcmt brcndu sig á mótorbátnum Mary
í Haukadal við ísafjörð; lampinn á vélinni sprakk
og blossaði loginn á vélinni um alt. Mest brann
formaðurinn, Olafur Kristjánsson, hafði jafnvel
verið talið tvisýnt um líf hans. Hinir mennirnir
brunnu minna. Þeir hétu Ouðmundur Hákonar-
son og Sigurður Finnbogason. (Vestri).
Raflýsing. Þess var getið hér í blaðinu fyrir
nokkrtt, eftir frétt er ísafolJ flutti, að Jóh. Reyk-
dal í Hafnarfirði færi vestur til Patreksfjarðar og
Isafjarðar til að gera athuganir þar viðvíkjandi
raflýsittgu. Að því er Vestri skýrir frá, er þelta
rétt Itvað Patreksfjörð snertir, en fttll fast orðað
um Isafjörð, og Jóh. R. fór eigi þangað í slíkum
erindtim fyrtr Isfirðinga. Vestri getur þess jafn-
framt, að blaðið Reykjavik hafi flutt fregn þessa.
Það er rétt, Reykjavíkin flutti hana, eins og Templar,
eftir Isafold en á gamla blaðamannavísu hér á
lattdi, tók R.vík fréttina tneð Bessaleyfi og gat eigi
heitnilda, svo getði hún og um Stjórnmálafélag
Seyðisfjarðar er Vestri getur um. Sú frétt var
eftir símtáli við Templar, og hnupluð þaðan af
R.vík.
$amsccti héldu templarar á Hótel ísland ásum-
ardaginn fyrsta, til að fagna sumri og kveðja vet-
ur, og sátu 70 mantis samsætið, en hótelnefndin
gekkst fyrir því, Undir borðum voru ræðuhöld.
Minni flutt eftir að br. Jón Þórðarson kauptnaður
hafði sett samkomuna.
Minnin voru: ísland (Ouðm. Magnússon prent-
ari), Reglan (Pétur Zóphóníasson), Hótel ísland
(Ólafttr Rósenkratts) og kvenna minni (Halldór
Jónsson bankaféhirðir).
Eftir að borð voru hroðin var setið að kaffi-
drykkju, skeggrætt og ræður fluttar um hitt og
þetta. Af þeim er þá töluðu) munnm vér þessa:
Jóhann Jóhannesson kauprn., Halldór Jónsson banka-
féhirðir, Svein Jónsson trésmið, Guðm. Jakobs-
son trésmið, Ólaf Rósenkrans, Ouðmund Magnús-
son og Pétnr Zóphóníasson.j.'
Pingmamiacfni. Sagt er að heimastjórnarmenn
aetli að hafa í kjöri hér í Reyjavík þá br. Guðm-
Björnson landlæknir og Jón Þorláksson verkfræð-
ing. Vér fluttum fyrir skömmu fréttir um þing-
mannaefni Dalamanna eftir bréfi að vestan. Nú
er oss tjáð, að það hafi breyst. Þeir er þar er
getið hafi hætt við, en komið sér saman um það,
ásamt fleiri kjósendum þar vestra, að biðja Bjarna
Jónsson frá Vogi að gefa þar kost á sér.
Fjciðurssamsæti héldu margar konur hér í bæ
frú Torfhildi Hólm á sumardaginn fyrsta, og
færðu þær henni jafnframt að gjöf vandað gullúr
með festi. Úrið var áletrað eftir br. Árna Gísla-
son leturgrafara, og átti það að vera í viðurkenn-
ingarskyni fyrir skáldrit hennar og bókmentastörf-
Sláturblís. Samvinnufélagsskapur.
í fréttabréfi er Ingólfur flytur úr Húnaþingi seg-
ir svo: Framfarir má telja það að Kaupfélag
Húnvetninga ætlar að byggja sláturhús utan Blöndú
næsta sumar og setja þar um leið á stofn álitlega
söludeild; getur þetta orðið gott spor til að kotna
kjöti í gott verð á útlendum mörkuðum. Forstjóri
söludeildarinnar verður pöntunarfélagsins og slát-
urhússins Jónatan Jósafatsson Lindal gagnfræðingur
frá Holtastöðum í Langadal — hafamenn hiðbesta
traust á honum.
CrÚlOfUð eru ungfrú Ellen Kaaber, dóttir Kaa-
bers stórkaupmanns í Kaupmannahöfn og Þórður
Sveinsson geðveikralæknir.
Slys. Stúlka dó á leið yfir Breiðdalsheiði vestra
um síðustu mánaðamót. Hún hét Sigríður Ein-
arsdóttir og átti heima á ísafirði. Varð hún sam-
ferða Reinharði póst en veiktist á leiðinni og varð
hann að yfirgefa hana í Breiðdalnum. Strax og
hann kont til bæa var hennar vitjað og var hún
látin er að var komið. (Vestri).
Sláfurbús Skagfirðinga, er þeir ætla að reisa á
Sauðárkróki, og áður heftr verið getið hér í blað-
inu, á að vera J0xl5 álnir á slærð. Húsið á alt
að verða af steinsteypu, bæði veggir og gólf. I
því má slátra 5 — 600 fjár á dag og koma kjötinu
í salt, en fleiru má slátra þat,er millilandaskip með
kæltrúmi koma.
Br. öuðlaugur 6nðmunds$on bæarfógeti kom
tneð Prospero um daginn á skattamálanefndar-
fund.
Ólöglcg vínsala. í liaust kærði Umdæmisstúk-
an nr. 1 alls 6 tnenn fyrir ólöglega vínsölu. 4 í
Árnessýslu og 2 í Kjósarsýslu. Annar í Kjósar-
sýslu fékk sekt, Quðm. Sigurðsson á Lækjarbotn-
um, en hitt málið er óútkljáð enn þá. Nú hefir
frést af málunum í Árnessýslu, og hafa þrír þeirra,
Sigurðttr Daníelsson á Kolviðarhól, Jón Guðmunds-
son á Skeggjastöðum og Þorfinnur Jóusson í
Tryggvaskála verið sektaðir fyrir ólöglega vínsölu,
en einn þeirra, Erlendur Þórð.trson á Reykjafossi
kvað hafa sloppið í þetta sinn.
Slikar ættu fleiri farir ólöglegra vínsala að fara.
Allir borgarar, og eigi hvað síst yfirvöldin, ættu
að gera það sem unt er, til að eyðileggja slík ó-
þrifadýr úr þjóðfélaginu.
mannarát. Hinn 25. þ. m. andaðist hér í bæn-
um br. Pétur Jónsso n blikksmiður. Br. P. J.
var fæddttr 2. Ágúst 1856 í Skógarkoti í Þing-
vallasveit og ólst þar upp, en árið 1886 flutti
hann hingað til bæarins og dvaldi hér eftir það.
Rr. P. J. var mjög vel metinn borgari, og starf-
aði óvenjulega mikið að ýmsum nytsömum og
þörfum félagsskap hér í bænum, rná þar nefna
fyrst og fremst Góðtemplarfélagið, Iðnaðarmanna-
félagið, Oddfellow-regluna o. fl. Br. P. J. var
einn af elstu templurum bæarins, og frá önd-
verðu til hins síðasta starfaði hann af kappi fyrir
bindindismálið, og á síðasta stórstúkuþingi var
hann fulltrúi fyrir stúku sína. Bindindismálið
hefir mist þar dyggan, trúan og duglegan starfs-
mann og þjóðfélagið ágætan borgara. Br. P. J.
var kátur og glaður í lund og einstaklega góður
drengur á allan hátt, enda var hann framúrskar-
andi vel kyntur. Kona hans er Anna Bjarnadótt-
ir ættuð úr Hafnarfirði en börn þeirra hjóna er
lifa eru br. Bjarni (f. 25. Apr. 1885) blikksmiður
hér i bænuni og br. Kristinn f. 16. Febr. 1889.
Samgötigur. Þjóðólfur flutti í síðasta blaði sínu
svohljóðandi símskeyti:
Sendiherra Bandaríkjanna (í Danmörku, Dr.
Egan) hefir farið þess á leit við þing Bandaríkj-
anna, að það veiti styrk til gufuskipaferða til ís-
lands. Talið líklegt að hann fáist.
Fregn þessi má vera hverjum íslending hin
mesta gleðifrétt, því enginn efi er á því, að af
þvi leiddi mjög gott fyrir land og lýð hér, ef að
slíkar samgöngur kæmust á. Sagt er að Hannes
Hafstein ráðherra hafi stutt mál þetta.
Umsóknir Um Holt i Önundarfirði sækja prest-
arnir: Ásgeir Ásgeirsson Hvammi, Böðvar Bjarna-
son Rafnseyri og Páll Stephensen Melgraseyri.
Bókmcntafclagsdcildin hér hélt fyrri ársfund
sinn 27. þ. m. — Eins og venja er til var þar
skýrt frá bókaútgáfum síðastliðið ár, og ákveðnar
þær bækur er gefa skal út nú í ár, en þær eru
þær söntu og að undanförnu: Skírnir, Sýslumanna-
æfir og Fornbréfasafn.
70 menn höfðu beiðst inntöku í félagið, og
voru þeir samþyktir. —
Félagið býður mönnum nú óvenjulega góð
kaup á Títnariti sínu, og ættu allir bókavinir er
ekki eiga það, að nota tækifærið til að eignast
ritið. Þetta lága verð á því er aðeins til 1. Júlí
næstkomandi.
Formaður félagsins hér er br. Kristján Jónsson
háyfirdómari.