Templar


Templar - 29.07.1908, Side 3

Templar - 29.07.1908, Side 3
T E M P L A R 119 vera sér sammála um það, að áfengis- bannlög mundi einnig gera stórkostlegt, ómetanlegt gagn, þegar þau kæmust á, því ekkert þjóðarböl væri verri en áfengis- bölið. — Hann sagði ýtarlega frá því, að hann um lengri tíma hafði rannsakað bannlagamálið, og sérstaklega grenslast fyrir um það, hvernig þau hafa gefist í þeim ríkjum í Ameríku, sem þegar hafa sett sér þau. í Maine hafði ræðumaður reynt á allar lundir að komast eftir, hvort óleyfileg sala færi fram, eins og mót- stöðumenn bannlaganna segja. Hann kom til Maine einn síns liðs, óþekturaf öllum, og reyndi að fá keypt áfengi handa sér og bauð hann stórfé fyrir. Alstaðar var viðkvæðið hið sama: Maine væri bann- laga-ríki og það væri því óhugsandi að fá áfengi keypt. Með miklum brögðum fékk hann tvær ölflöskur keyptar í öðru bannlagaríki, og vildi því næst sjá, hvað lögreglustjóri gerði við það. Hann fór því næst til hans með flöskurnar. Menn- irnir voru tafarlaust ákærðir og dæmdir í mikla hegningu. — Daginn eftir hina ólöglegu ölsölu höfðu dagblöðin lang- ar greinar um þetta mikla lagabrot. — Gagn er að bannlögunum, þótt sumir séu þeim andstæðir. Næst var eg beðinn um aðflytjaræðu um ísland og bindindishreyfinguna á íslandi. Menn hlýddu á ræðu mína með mikilli eftirtekt. Útbreiðsla Reglunnar hér á landi í tiltölu við fólksfjölda þykir stórkostleg. Og sérstaklega gerðu menn góðan róm að frásögu minni um stór- ræði vor templara að kaupa Hotel ís- land og að vér ekki vildum leyfa áfengis- nautn í því við héimsókn konungs og ríkisþingmanna. Blöðin í Saratoga töl- uðu um ræðu mína daginn eftir, og eitt þeirra sagði, að »Bandaríkjamenn gætu vel lært ýmislegt af íslendingum hvað bindindisstarfsemi snertir.« Loks talaði á þessum fyrsta fundi á »Góðtemplaradaginn« (lö. Júní) br. Tom Honeymann, Háv. St.-ritari, um starfið á Skotlandi. Kl. 2,30 e. h. var efnið: »Unglinga- reglan í Mið-Evrópu. Háv. Stórtemplar br. Edvard Wavrinsky talaði um Svíþjóð, og systir Jessié Forsyth, fyrv. Háv. St.- Gæslum. Ungtemplara um unglinga- starfið. Loks talaði hin nýkosni Háv. St.-Gæslumaður Ungtemplara, br. J. w. Hopkins. Fórst honum einstaklega vel að tala til barnanna, sem við voru. Um kl. 3 e. h. var haldin minningar- guðsþjónustu eftir stofnanda bindindis- félagsins f Saratoga, og var hún mjög hátíðleg. Hún var haldin úti á kirkju- garðinum, og var þar margt göfugt orð sagt um bindindismálið. Sérstaklega fanst mönnum mikið til um ræðu eftir Oliver W. Stuart. Sá maður er einhver mesti ræðusnillingur, sem eg hef heyrt. Að kvöldi sama dag talaði br. Josep Malins, fyrv. Háv. St.-Templar um bind- indismálið, og br. séra Harry Gladstone Greensmith um sögu Góðtemplara-Regl- unnar. Báðum sagðist vel, enda eru Jþeir báðir ágætir ræðumenn. Fyrir tiltölulega stuttum tíma, aðeins 20 — 30 árum, var litið með fyrirlitningaraugum á alla bindindismenn og yfir höfuð á allar bindindishreyfingar víðsvegar um heiminn. Rá var mönnum yfirleitt ekki orðið ljóst, hversu áríðandi og afar-þýðingarmikið at- riði það er í lífi allra manna að vera reglu- samur. F*á voru menn ekki búnir að skilja það til hlítar að bindindi er eitt fyrsta skil- yrðið fyrir heilsu þeirra og velferð. Þá þótti fólki ódæði mesta að minnast á bindindi eða neina starfsemi í þá átt að gera menn að reglusömum og heiðarlegum mönnum, sönnum borgurum mannfélagsins. Jafnvel sumir af þeim mönnum, sem þá sátu við stjórnarstýrin og þóttust hafa völdin í hönd- um sér, börðust af alefli gegn öllum bind- indishreyfingum; með ósvífni, hleypidóm- um og ósanngirni, sköruðu þeir því eðli- lega eldinn að >köku« vínsölumannanna og þeirra annara, sem mesta óhamingju hafa leitt yfir mannkynið. En um leið hafa þess- ir sömu menn bæði beinlínis og óbeinlínis sáð fræi illgresisins á þúsundum heimila, og hafa þeir vanalega þókst hreyknir af hvað vel þeim hafi tekist að halda hlífiskildi yfir Bakkusi. Pannig litu margir leiðandi menn á góðtemplarastarfsemina, þegar hún fyrst hóf göngu sína um heiminn, og þannig hafa margir Iitið á bindindishreyfingarnar alt fram á þennan dag. En þegar vér lítum til baka og virðum fyrir oss mennina, sem mestan þátt hafa átt í því að ryðja áfenginu braut og styrkja vínsalana, þá verðum við að játa það: 1. Að eigingirnin hefir oftast ráðið og ríkt í hugarfari slíkra manna. 2. Að skortur á sannri mentun og heil- brigðum hugsunarhætti olli hinum hörðu dómum þeirra sem sest hafa, á dómstólinn og dæmt hafa um bindindishreyfingarnar í heiminum. 3. Að enginn Bakkusar-vinur skilji hvað siðferðisþrek er, eða viti hvað það meinar að vera drengur góður, sem kann að bera höfuðið hátt og að standa stöðugur gegn áfengisnautninni á öllum tímum. 4. Að allir slíkir menn hafi látið stjórn- ast af tilfinningarleysi því, sem vínnautn- inni er samfara og sem ávalt leiðir til van- sælu og spillingar o. s. frv. Alt þetta og ótal margt fleira hefir dregið úr bindindis- hreyfingunum og þroska hennar. En þrátt fyrir alt Og alt lifir nú orðið bindindi — orðið templar — hjá öllum hugsandi mönnum. Nú er svo komið, að allur þorri alþýðumanna um víða veröld, skilur hvað orðið bindindi meinar; nú misskilja menn það ekki lengur né lítils- virða. Rrátt fyrir alla mótspyrnu og mótþróa mannanna eru bindindishreyfingarnar orðn- ar ofan á. Bindindi er nú viðurkent um allan hinn menlaða heim sem eitt hið allra þarfasta og blessunarríkasta afl sem 19. öldin Iét heiminum í té. Lesið sögu þjóð- anna og munuð þér komast að raun um, að ekkert afl er jafn kraftmikið og mann- úðarfult sem afl sjálfsafneitunarinnar; því í henni skilja menn orðið bindindi best og réttast, og fyrir þá menn sem standa sam- an innan vébanda »Reglunnar«, fléttast orðið bindindi saman við kærleika þeirra til allra manna. Bindindishreyfingarnar hafa í stuttu máli dregið þúsundir manna úr sorp- haugum svívirðu og smánar og leitt þá upp að altari frelsisins, trúarinnar og vonarinnar. Nú í byrjun 20. aldarinnar eru þjóðirn- ar þá loksins farnar að skilja, hvað bind- indi þýðir og hve víðtæka blessun bindind- ishreyfingin hefir haft í för með sér; nú eru menn fyrir alvöru vaknaðir til meðvit- undar um áhrif og skaða vínnautnarinnar; nú er heimurinn loks farinn að sjá skaða þann og háska sem vofir yfir heilum þjóð- um jafnt sem einstaklingnum af áfengis- nautninni; nú eru foreldrar farnir að finna til þess og viðurkenna það, að börnin þeirra þarfnast bindindis um fram alt; nú eru heimilin loks farin að rumskast til meðvit- undar um að frelsast úr ánauð vínsins sem þau hafa verið hnept í og bundin við í svo margar aldir; nú eru farnar að heyrast raddir úr ýmsum áttum — meðal höfðingj- anna einnig — í þá átt að semja þuríi lög, er algerlega banni alla víngerð, eða að búa til nokkurt það lyf sem áfengi er bland- að, og lög hafa þegar verið samin í Banda- ríkjunum sem banna stranglega að veita nokkruin manni áfengi, en þau eru enn ekki í fullu gildi, en verða tekin til íhug- unar á næsta stórþingi í Washington að ári. Rannig er það gleðiríkur vottur um mik- inn árangur og örugga framtíð, hversu hugsunarháttur þjóðanna hefir breyst á fáum árum og nálega gereytt öllum misskilningi og öllum heimsku mótbárum gegn bindind- isstarfseminni. Sú mikla breyting er nú á orðin í heim- inum, að fólk er nú yfirleitt orðið að hugs- andi verum og getur þess vegna orðið dæmt með sanngirni um ýms hin helstu mál sem nú eru á dagskrá í heiminm, svo sem um bindindismenn og starfsemi þeirra. Areiðanlega er spor það, sem bindindis- mennirnir þegar hafa stigið, eitt af þeim allra göfugustu framfarasporum, sem en hafa verið stigin, og barátta sú sem háð hefir verið í fortíðinni í bindindisáttina, verður að sjálfsögðu leiðarstjarna manna í framtíð- inni. — Léttúðin er að hverfa, en í henn- ar stað er aftur komin samviskusemi og stöðuglyndi. þetta er uppskera bindindishreyfingarinn- ar frá byrjun. Getur nokkur maður með góðri samvisku neitað því, að þetta séu stórkostlegar framfarir á jafn-stuttum tíma, aðeins 30 — 40 árum? — — Bindindishreyfingin í Vesturheimi er orð- in jafn gömul Góðtemplarareglunni, því eins og kunnugt er, á sá félagsskapur rót sína meðal Ameríkumanna. I Vesturheimi voru ýms bindindisféiög stofnsett og starfandi ofarlega á 19. öldinni og jafnvel á 18. öld- inni, en með stofnun Góðtemplara-félags- skaparins var aðalgrundvöllurinn lagður undir bindindisstarfsemi vorra tíma. Aldrei hefir jafn voldug bindindisalda kóm- ið yfir Bandaríkin, eins og einmitt nú á yfir- standandi tímamótum. Aldrei áður hafa vínsölumenn mætt eins einhuga sterkri mót- spyrnu í Ameríku og einmitt nú um ára- mótin síðustu. Rá var það að menn gáfu

x

Templar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.