Templar - 11.12.1908, Blaðsíða 4
192
TEMPLAR
ar við barna hæfi og verða því hiklaust
vinsælar meðal barnanna.
Barnabók Unga Islands IV. Hafn-
arf. 1908. 64 bls. 8vo.
í hefti þessu er úrval af sögum og
kvæðum Jónasar Hallgrímssonar, en eins
og geta má nærri, er eigi nema fátt eitt
af Ijóðum skáidsnillingsins í svo litlu riti.
En það er vel valið, og bókin ágæt
barnabók, er mælir best með sér sjálf.
Sumargjöf IV. ár. Útgefendur :
Bjarni Jónsson frá Vogi og Einar
Guunarsson cand. phil. Rv. 1908.
77 bls. 8.vo.
Sumargjöf þeirra Bjarna og Einars er
fjölskrúðug að efni, og hafa margir lagt
þar orð í belg., 15 rithöfundar alls, Og
um margs konar efni: Mest eru það
skáldin er þar rita, og láta þau óspart
fljúga í kveðlingum, og eru margir þeirra
góðir. A meðal höfundanna má telja
Sigurð Jónsson á Arnarvatni, Huldu,
Andrés Björnsson, Jónas Guðlaugsson
og Þorgils gjallanda. Fremst í bókinni
er nýtt lag eftir Kristján Kristjánsson
héraðslæknir á Seyðisfirði við »Yfirkald-
an eyðisand«, og síðast í bókinni er
skemtileg og gagnorð lýsing á Vest-
manneyum eftir Helgajónsson grasafræð-
ing. Framan við bókina eru myndir af
9 íslenskum skáldum, þeim Helga Hálf-
dánarsyni, Stgr. Thorsteinsson, Matth.
Jochumssyni,Kristj. Jónssyni, Vald. Briem,
Jóni Ólafssyni, Indriða Einarssyni, Gesti
Pálssyni og Þorst. Erlingssyni. Bókin
er eiguleg í alla staði.
Hvað er að frétta?
Gíu ára ininningar-Dátíð héit ungiingastúkan
»Svava« nr. 23 hinn 4. þ. m. Bræðurnir Árni
Jóhannsson, Jón Helgason og Jón Árnason fluttu
ræður. Ýmislegt fleira var þar til skemtunar,
svo sem samspil á fiðlu og harmonium, söngur
upplestur, giímur o. fl. Eftirfarandi kvæði var
ort fyrir hátíðina:
Að taka snemma beina braut
að björtu’ og fögru miði,
það gefur seinna þrek í þraut
og þrótt með hjartans friði.
Á vorin, þegar vel er sáð,
þá vaxa’ að sumri biómin.
Er æskan vex að vizku' og náð,
þá veitist elli sóminn.
Nú horfum vér á beina braut,
að baki árin tíu;
á frækorn góð, er féllu’ í skaut
og fengu ijós og hlýju;
hér vaxa þau í vermireit
er vetrar kyljan næðir,
unz lýsir sumar-sólin heit,
er sannan þroska glæðir.
Vor stúka kær, nú stigum vjer
á stokk að fornum siði
og strengjum heit til styrktar þér,
að starfa og safna Iiði;
að halda fast og fara beint
und félagsmerki björtu
og trú þér reynast ljóst og leynt,
svo lýíi barna hjörtu.
mautialát. Á Sunnudginn var andaðist str.
Kristjana Jónsdóttir kona br. Helga Sveins-
sonar bankastjóra á ísaiirði úr lungnabólgu. Var
mjög sviplegt um lát hennar, og kom þar á óvart
hinum mörgu vinum hinnar látnu, því þótt hún
hefð' verið lasin áður, þá var hún sögð á góðum
batavegi, en henni sló niður aftur. Str. Kristjana
var dóttir Jóns sál. Sigurðssonar á Gautlöndum
og alsystir br. Kristjáns Jónssonar háyfirdómara
og þeirra systkina. Hún var frammúrskarandi
vinsæl kona, og heimili þeirra víðfrægt fyrir gest-
risni sína og góðar viðtökur. Og fyrir Regluna
og stúku sína á ísafirði starfaði hún mjög mikið,
enda var hún, eins og hún átti kyn til að rekja,
mjög starfsfær og hafði óbilandi starfsþol. Reglan
hefir því mist mikið, og má sakna hennar sárt.
Þau hjónin áttu átta börn, sem öll eru í ómegð.
Ucrðattdi ttr. 9 ætlar að halda afmæli sitt, eða
ef til vill réttara að orði komist, árshátíð sína, á
þriðjudaginn kemur. Verður þar margt til fagn-
aðar, og fá allir meðlimir ókeypis aðgöngumiða
hjá fjármálaritara stúkunnar br- Ólafi Rósenkrans
á Mánudaginn og Þriðjudaginn kemur. í forstöðu-
nefnd fyrir afmælinu eru brœðurnir Sighvatur
Brynjólfsson steinsmiður, Halldór Jónsson bánka-
féhirðir og Pétur Zóphoníasson og systurnar frú
Ástríður Petersen og ungfrú Gunnþórunn Hall-
dórsdóttir.
Torstöðumaður stjórnarnefndar Holdsveikraspítal-
ans í Laugarnesi er skipaður Klemens Jónsson
iandritari í stað Júlíusar Havsteens amtmanns er
hefir sagt af sér starfinu.
Gamlir ttcningar fundust í haust í Geldingaholti
í Skagafirði, Elsti peningurinn er þýskur og frá
árinu 1588. Alls eru þeir 41 talsins.
Stúkatt Uíkiltgur nr. 104 hélt fjögra ára afmæli
sitt 8. þ. m. í Báruhúsinn. Br. Einar Þorsteins-
son setti hátíðina og las upp svohljóðandi sím-
skeyti er stúkunni hafði borist.
uStúkan Víkingur nr. 104 Bárubúð, Reykjavík.
Þökk fyrir umliðna starfsemi. Heill, blessun
og sigur fylgi framtíð þinni
Skjaldbreið nr. 117".
Þá flutti br. Ólafur Kristófersson minni íslands
og br. Jón Jónsson minni stúkunnar. Br. Ólafur
prestur Ólafsson flutti ræðu fyrir minni
Reglunnar. — Þá varð alment ntálfrelsi er þeir
notuðu sér br. Guðm. Magnússon og Indriði
Einarsson. Str. Stefanía Guðmundsdóttir las upp
kvæði er heitir „Huldukonan á Meyarnúpi", og
var hinn besti rónntr gerður að því, enda les str.
Stefanía vel upp. Br. Einar Indriðason söng tvo
einsöngva, og Friðfinnur Guðjónsson lék „Eintal
fiðluleikarans" og þótti mönnum hvorttveggja góð
skemtun. — Dansað var auðvitað á eftir.
/. Kr. —
£au$n trá cmboctti hefir Maririo Hafstein sýslu-
maður í Strandasýslu fengið frá 1. Apríl næst-
komandi, og er-sýslan auglýst laus.
Ibúar á ísafirði voru 1802 við manntal er þar
fór fram í haust. f fyrra voru þeir 1650 en árið
þar áður 1600. fbúðarhús eru þar nú 144, í fyrra
voru þau 138 en í hitteðfyrra 131. Vestri segir að
margir er hafi ætlað til bæarins hafi orðið að
hætta við það vegna húsnæðisleysis.
GrÚIOfUÖ eru Jón Kristjánsson nuddlæknir og
ungfrú Emilía Sighvatsdóttir (bankastjóra).
Um 100 bCStar hafa, að því er Vestri skýrir frá
verið fluttir frá Islandi til Danmerkur, og fer álit
islenskra hesta þar vaxandi.
JÍUKaÚtSOÖr á ísafirði nema í haust um 16000
kr. en 1907 voru þau 11300 kr. og 1906 voru
þau 8000 kr. Hafa hækkað um helming á tveim-
ur árum og stafar það af barnaskólanum.
OfCCðrÍð er var 14. f. 111. hefir víða gert skaða.
í því fórst Breiðaflóabáturinn Geraldine er getið
var í síðasta blaði og þar druknuðu jjrír menn,
í sama veðrinu strandaði botnvörpuskip hjá
Miðvík (í Aðalvík) á Ströndum. Um morguninn
er menn komu til sjávar sáu menn skipið, og
voru þá þrír menn lifandi um borð en ómögulegt
| var að bjarga þeim, og skipið var svo sokkið, að
j eigi var unt að sjá nafn skipsins.
Á öðru botnvörpuskipi tók út tvo mennina, en
skipverjar náðu þiem litandi úr greipum sjávarins.
Fjórtán botnvörpuskip flýðu inn á Þingeyri,
og eitt skip rakst þar á bryggjuna og skemdist
; talsvert.
Kirkjan á Reykjum í Ölfusi fauk og nam stað-
ar í einu kirkjugarðshorninu.
Mesti hluti fjár bóndans Einars Gottsveinssonar
i á Hjarðarnesi á Kjalarnesi hrakti í sjóinn og víðar
hrakti nokkrar kindur I sjó t. d- í Gröf hjá Birni
hreppstjóra Rjarnarsyni.
Bátar stórskemdust víða eða þá mölbrotnuðu.
Á Isafirði brotnuðu margir bátar, og á Mýrum
sleit upp vélarbát er bændur þar keyptu í vor,
og mölbrotnaði báturinn.
Skaðinn víst mikið meiri en til er frétt enn.
Samsæti var haldið hér í Góðtemplarahúsinu 7.
þ. m. í tilefni af atkvæðagreiðslunni um aðflutn-
ingsbannið og voru þar viðstaddir yfir 100 templ-
arar, auk framkvæmdarnefndar stórstúkunnar er
þangað hafði verið boðið. Br. Jóhann Jóhannesson
hafði gengist fyrir þessum fagnaði og bauð hann
framkvæmdarnefndina velkomna. Br. Árni Gísla-
son leturgrafari mælti fyrir minni stórtercplars og
séra Friðrik Friðriksson fyrir minni framkvæmdar-
nefndarinnar. Br. Indriði Einarsson talaði fyrir
mínni Sigurðar Eiríkssonar og br. Halldór Jónsson
fyrir minni kvenna. Br Þórður J. Thoroddssen
þakkaði-og br. Pétur Zóphóníasson talaði fyrir
minni Jóhanns Jóhannessonar. Str. Kristín Símonar-
son talaði um kvenfrelsi og br. Jón Þórðarson
flutti langt erindi um „Hotel ísland". Br. Sig.
Eiríksson joakkaði fyrir sig. Br. Indriði Einarsson
skýrði þeim frá því, hvernig hagað mundi hátíða-
haldinu 10. Jan. næstk. - Br. Borgþór Jósefsson
mintist þriggja elstu félaga Reglunnar: br. Frið-
bjarnar Steinssonar, br. Ólafs Rósenkranz og str.
Þorbjargar Hafliðadóttir. — Að síðustu töluðu
þeir br. Jóhann Jóhannesson og br. Pétur Zóphó-
níasson nokkur orð. Samsætið fór vel fram. — J.
Vinnautn
mikilmenna.
Skáldum og öðrum stórfeldum andans
mönnum er oft hættara til drykkjufýsnar
en öðrum. Og hafa slíkir menn oft
við miklu meira að stríða í þeim efnum
en almenningur gerir sér í hugarlund.
Veltur þá á ýmsu, annaðhvort að þeir
sigra vínfýsnina eða vínfýsnin sigrar þá.
— Skal eg leyfa mér að tilfæra dæmi
nokkurra stórmenna, auk þeirra sem eg
hefi áður getið, er illa hafa verið leiknir
af hendi vínnautnarinnar:
Marlowe, enskt stórskáld, hefði eflaust
átt mikla og mjög glæsilega framtíð fyrir
höndum; og er honum jafnað til stærstu
skálda heimsins. En vegna ofdrykkju
lifði hann alla tið í basli miklu; og
var loks rékinn í gegn fullur í áflogum
29 ára að aldri.
Byron lávarður, hið heimsfræga enska
stórskáld, var drykkjumaður frá unglings-
aldri. Og komst hann þá þegar í svo
miklar skuldir fyrir fyllirí og aðra óreglu,
að þegar hann var um tvítugt námu
skuldir hans hér um bil 200 þúsundum
króna í vórri mynt. Var þá nokkru seinna
gengið að honum; og varð hann þá að
selja hið ágæta bókasafn sitt og annað hið
dýrmætasta af eigum sínum,—fyrir Baccus