Templar - 28.10.1915, Side 2

Templar - 28.10.1915, Side 2
58 T E M P L A h. „Templar** kemur út á hverjum 20 daga fresti, minst 18 blöö. Verö árg. 2 kr., er borgist 1. júlí. Útsölum. fá 50 a. i sölul. Afgreiöslu og innheimtu annast Jón Arnason, Box: 221, Reykjavik. Afgr. Smiðjustig 5. stjórnendur og aðalíorkólfar hinna upp- runalegu fyrirtækja, sem eignuðust alt að lokum eða höfðu hagnaðinn af öllu saman. Hver hefir svo afleiðingin orðið ? Útlendir viðskiftarekendur kiptu að sér hendinni og þorðu ekki að eiga viðskifti hér, því hér væri engum að trúa — við- skiftalífið væri svo spilt. Og af þessu hefir ekki einungis öll verzlunarstétt vor sopið seyðið, heldur einnig þjóðin íheild sinni. Og það gefur að skilja, að það þarf lengri tima til að útrýma þeirri tortryggni, sem þetta vekur, heldur en að vekja hana. Það hefði verið full þörf að minnast á fleira í þessu sambandi, en ýmsra or- saka vegna verður maður að láta þetta nægja að þessu sinni. (Framh.). Áhrif áfengisbannsÍDS í Rússlandi. (Lauslega úr »Agitatoren«). Eg liefi fengið góðfúslega leyfi til þess að birta eftirfarandi skýrslu. Eins og kunnugt er, gekk í gildi allra- hæst fyrirskipun um áfengisbann í Rúss- landi í júlímánuði árið sem leið. Full- nægjandi hagfræðisrannsóknir eru enn þá ekki komnar um áhrif bannsins. en »Félag verksmiðjueigenda í umhverfi Moskóvuc' hefir látið gera nákvæmar rannsóknir í verksmiðjum sínum, og einnig í ýmsum stærri og minni verk- smiðjum í Moskóvuhéraðinu, til þess að fá vitneskju um, liver áhrif bindindið hafi haft á vinnuþrótt verkamannanna á liðnu ári. Og áhrifin eru undraverð — eða rétt- ara sagt, áhrifin eru alls ekki undra- verð, því árangurinn er sjálfsagður. Rannsóknin hefir farið fram í 172 vinnustofnunum, sem veila fjórðung allra verkamanna í Moskóvuhéraðinu alvinnu, og augnamiðið er að staðfesta það með skýrum tölum, hve miklu iðn- aðurinn hafi tapað á drykkjuskapnum. Úað sem bezt og ljósast sannar þetta tap, eru hinir svo nefndu »bláu mánu- dagar«, því þeir eru bein afleiðing af drykkjuskapnum; þeir sýna hve mikil tímaeyðslan er og vinnutapið, og það má sýna með tölum og bera svo saman ástandið á undan og eftir að bannið gekk í gildi. Þar sem áfengisnautnin hefir enn fremur áhrif á heilbrigði manna og and- lega þróun, þá munu upplýsingar um »bláu mánudagana«, slys og sektir, sýna áhrif bindindisins yfir höfuð. Á fyrstu 3 mánuðum stríðsins fækk- aði töpuðum vinnutímum (kl.st.) um 1345,7 þúsund, eða um 31 af lindr. 1913 voru tapaðar vinnustundir 3,44 °/o af vinnutímanum, en 1914 2,79 °/o: taki maður ekki tillit til þeirra áhrifa, sem stytting vinnutímans hafði í för með sér árið 1914, þá sést að bindindið hefir lækkað timatapið um 19 af hndr. Til þess að fá skýrslu um það, að hve miklu leyti vinnumagnið hafi auk- ist, þá má sjá það á launum þeim, sem menn hafa fengið fyrir tiltölulaunavinnu (akkord). Um þetta voru sendar fyrir- spurnir: Svörin sýna, að framleiðslan — meira unnið — hefir vaxið um 2,6 af hdr. og að laun fyrir tiltölulaunavinnu hafa hækkað um 4,4 af hndr., og er það sama sem að aukning framleiðslunnar hafi í ágúst—október 1914 verið 7,1 af hndr. meiri en í sömu mánuðum 1913. Taki maður nú að eins vinnu karl- mannanna út af fyrir sig, þá minkar tímatapið um 3,3 af hndr. og hækkun tiltölulaunanna 4,7 af hndr. og fram- leiðslunnar 8,2 af hndr. og ef maður tekur að eins tillit til þeirra verksmiðja sem unnu reglulega á árinu 1914, þá verður aukningin 9,2 af hndr. Allir iðnrekendur eru sammála um það, að bannið sé orsök þess, að fram- koma verkamannanna sé miklu prúð- mannlegri en áður; róstur og barsmíðar eigi sér nú mjög sjaldan stað. Balakins-verksmiðjan (í Moskóvu) skýrir frá þvi, að vinnumagnið hafi — án brennivínsins — aukist um 25 af hndr. Verkamennirnir séu alveg um- breyttir, »bláu mánu- og þriðjudagarnir« séu nú alveg úr sögunni, menn séu miklu duglegri til vinnu og ánægðari. Verk- smiðjan var áður neydd lil — ársvið- skifli hennar nema mörgum miljónum rúbla — að skifta sér sem allra minst af verkamönnunum og láta þá ekki gera nema það allra nauðsynlegasta, og varð þess vegna að kaupa tilbúnar eða út- lendar vörur. En nú eru allar þessar vörur búnar til i verksmiðjunni sjálfri, sem gefur hæði henni og verkamönnun- um auknar tekjur. — Og af hræðslu endar verksmiðjan skýrslu sína á þessa leið: »Komi brennivínið aftur, verðum við neyddir til að fara að verzla með út- lendar vörur á ný«. Önnur verksmiðja segir: »Eftir að brennivínsbannið komst í gildi eru verkamennirnir orðnir miklu kurteisari og sjálfstæðari; nú er áhug- inn við vinnuna svo miklu meiri en áður, að verkstjórnin er miklu auðveld- ari. Áður var vinnan verkamönnunum kvöl. I3að væri óskandi, að áfengisbann- ið héldist«. Oll svörin frá öðrum atvinnugreinum eru í líkingu við þau, sem hér hefir verið sagt frá. Áhrifin af banninu eru því í öllu til- liti eftir vonum. En hin dýpri orsök (stríðið) er mjög hryggileg. Það er næsta eftirtektavert, að mann- kynið skuli þurfa að komast í stórfeld- ustu raunir og erfiðleika, til þess að rísa upp á móti spillingunni. Einnig er það eftirlektavert, að undir eins og hættan er um garð gengin, þá fá skilyrðin undir eins aðra þýðingu, sem gátu komið mönnum yfir hættuna. Þetta ber við aftur og aftur. Meðan hin miklu verk- föll voru, vinnuteppur, stórsóttir og nú,. meðan á heimsstyrjöldinni stendur, þá eru áfengu drykkirnir bannsungnir sem samherjar óhamingjunnar, en á eflir eru þeir náðaðir og sungið lof sem undirról hamingju og gleði. Að menn skuli aldrei ætla að læra að sjá það, hve mikil óhamingja fylgir á- fengum drykkjum, að þeir gera ekkert annað en draga mennina niður í saur- inn, mennina, sem áður voru svo fjör- legir, hraustir, fagrir og yndislegir, skuli gera þá að viðbjóðslegustu aumingjuin. Mennirnir geta aldrei afsakað það, hvorki frá sálarfræðilegu né eðlisfræðilegu, sið- ferðilegu eða fegurðarinnar sjónarmiði,. að það sé rétt að ileygja sér út á ólgu— sjó áfengisdrykkjunnar. F. F. Scharnowsky. Fyrsta bindindisræðan hefir, að því er menn bezt vita, veri& haldin af egypska vitringnum Kakimni,. sem var uppi hér um bil 4000 árum fyrir Krists burð. Eftirfarandi klausa hefir varðveist síðari kynslóðum til at- hugunar og eftirbreytni: »Forðastu drykkjuskap, því sopi af valni er nægilegt til þess að gera menn afþyrsta og munnbiti af melónu lífgar lijartað. Sá maður er fyrirlitlegur, sem eingöngu þjónar magunum og leggsl í leti. Sittu eigi til borðs með þeim, sem éta svo mikið að þeir verða að leysa af sér beltið og drektu ekki með þeim, sem bjóða þér í þeim tilgangi að svala áfengisfýsn sinni eins og krókó- dillinn seður hungur sitt með kjöti. Ó, hve það er voðalegt að sjá menn missa hugsanahæfileikann og valdið á tungu sinni. í sannleika er hann móður sinni og ættbálki til minkunar. Og að lokum óska allir: Hverfi hann á brott sem skjótast!« Konunglegur bindindisdrykkur. Drykkur sá, sem Georg Englandskon- ur hefir á borðum síðan hann varð bind- indismaður er bygggrjónavatn. Er það búið til eftir fyrirsögn brytans í »Ba- chelors Club« í Lundúnum. Aðferðin við tilbúning þessa ágæta drykkjar er þessi, og er liún setl hér handa þeim, sem mundu vilja reyna að búa lil nefndan drykk: Yzti börk- urinn af tveim sítrónum er látinn í 1 pott af vatni og svo eru látnir í það átta stórrir sykurmolar. Það er svo látið sjóða í 10 mínútur og svo er látið í það tvær teskeiðar af fínubygggrjónamjöli hrærðu út i ofurlitlu af köldu vatni og svo soðið í 5 minútur. Svo er það lát- ið kólna og að lokum er það síað. Úeg- ar drykkjarins er neytt þá má bæta í Næsta blað 10. n. m.

x

Templar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.