Templar - 01.11.1927, Side 1

Templar - 01.11.1927, Side 1
TEMPLAR. XL. árg. Akureyri, nóvember 1927. 11. blað. JJÉRMBÐ eru stúkur út um land beðnar að senda undirritaðri stig- stúku nöfn þeirra félaga sinna, sem þeim er kunnugt um að flytji hingað til lang- dvalar eða dvelja hér á komandi vertíð. Vestmannaeyjum, 12. nóvember 1927. Stigstúka Vestmannaeyja nr. 7. Andbanningur verður bannmaður. lrving Fisher er maður nefndur. Hann er Englendingur. Er hann doktor og liá- skólakennari í þjóðmegunarfræði. Hann hefir lengi verið bindindismaður, en áleit til skamms tíma að bann væri óheppileg og röng leið til að útrýina áfengisriautn- inni. Tókst hann ferð á hendur til Banda- ríkjanna til þess að kynnast sem best banninu þar. Ætlaðist hann til, að sú för legði sér vopn í hendur gegn áfengis- banni yfirleitt. Þetta fór á annan veg. Hann kom aftur úr Ameríkuförinni sem sannfærður banrimaður. Hefir hann nú gert opinberlega grein fyrir þessum skoðanaskiftum sínum og reynslu sinni af banninu í Bandaríkjunum. Greinar- gerðin er of löng til þess að »Templar« geti flutt hana í heild, en glefsur úr henni vill hann gefa lesendum sínum. Fara hér á eftir nokkrir kaflar: Bannið í Bandaríkjunum kom of snemma. Af því stafa ntargir þeir örðugleikar, sem orðið hafa á vegi þess. Hér urn bil % af ríkjunum voru tilbúnir að taka á móti því; en stórborgirnar í austurfylkjunum voru alls ekki undir það búnar. Nú var bannið hamrað í gegn, þrátt fyrir andstöðu stórborganna. Alþjóð hef- ir séð, hversu rnikil blessun bannið hefir orðið ríkjunum. Andstæðingar þess eru því í síminkandi minnihluta. Þróunarsaga bannhreyfirigarinnar byrjar á síðari hluta 19. aldar. Fyrst kom afnám veitingastaða í einstökum héruð- um samkvæmt atkvæðagreiðslu héraðs- búa, síðan algert bann í heilum fylkjum. Voru bannfylkin orðin níu fyrir 1914, en á næstu 4 árum bættust 23 við. Þegar % allra fylkjanna höfðu aðhylst bannið, varð það stjórnarskráratriði og gilti fyrir öll fylkin. Bannið í skólunum. Reynslan af banninu í Yale-háskólan- uin sýnir breytinguna á hugsunarhætti og háttum. Það er ekkert efamál, að Yale- stúdentarnir eru yfirleitt »votir« (þ. e. andbanningar). Opinber rannsókn, sem gerð var í efri bekkjum skólans 1926, sýndi, að 80% af nemendum þeirra bekkja voru andbanningar. Og það er ekki að eins Yale-stúdentinn, sein er »votur«. Borgin og fylkið, sem skólinn er í, er eitt »votasta« svæðið í Banda- ríkjunum. Blöðin í Connecticut eru öll »vot«, dómararnir eru margir »votir« og stúdentarnir koma flestir frá »votu« stór- borgunum, einkum frá New York. Mikill hluti þeirra er frá ríkum heimilum, sem hafa efni á að hafa vínkjallara. Vani og félagsskapur hjálpast að til að halda stúdentunuin »votum«. Auk þess eru þeir á þeim aldri, er móttækilegastur er fyrir þá kenningu, að bannið sé brot gegn æskugleði og frelsi. Hér í Yale ætti það því að sýna sig betur en nokkursstaðar annars, hversu mikil mistök bannið er. Eg hefi gert mér sérstakt far um að komast ad hinu rétta í þessu efni einmitt á þessum stað, og eg lét mér ekki nægja mínar eigin athugan- ir, heldur fór eg til þeirra, sem haldið höfðu skrár um agann meðál stúdent- anna. og þektu þá best. Ályktanir mínar eru bygðar bæði á athugunum mínum, upplýsingum uinsjónarmannanna og ann- ara nákunnugra, og eru ályktanirnar þessar: 1. Drykkjuskaparafbrot eru miklu færri nú en fyrir bann. 2. Framfarirnar hafa einkutn orðið á síðustu árum. 3. Yale-stúdentar drekka sjaldnar en áður, en meira, þegar það kemur fyrir. Áður en bannið kom, var auðvelt að fá áfengi, mest öl. Margir drukku að stað- aldri en lítið í senn. Nú er erfiðara að fá áfengi, færri kaupa það og sjaldnar. En þeir, sem kaupa, svala sér rækilega, þeg- ar þeir ná í það. 4. Bannið hefir komið inn þráa hjá mörgum stúdentum. Það er illa þokkað jafnvel meðal margra þeirra, sem aldrei reyna að brjóta lögin. Yfir 200 skólar og skólastjórar hafa svarað spurningum sem leiðandi blað lagði fyrir þá, á þá lund, að bannið hafi haft bætandi áhrif á skólana og æskulýð- inn yfir höfuð. Spurningunni um það, hvort drykkju- skapur hafi aukist eða minkað, síðan bannið var lögleitt, hafa 213 skólastjórar úr 44 fylkjum, eða sem næst J/3 allra æðri mentastofnana og háskóla í Banda- ríkjunum, svarað á þá leið, að drykkju- skapur í skólunum og meðal uppvaxandi kynslóðar hafi minkað. Fækkun ungra glæpamanna. Annar vottur þess, að siðferði ungra manna fer batnandi, er fækkun ungra glæpamanna. Hagskýrslur sýna, að í New York borg er þessi fækkun mjög mikil og í Bandaríkjunum sem heild hefir slíkum glæpamönnuin fækkað um helm- ing. Þetta ásamt mörgu öðru bendir til að fylkingar Bakkusar þynnist óðum. Hve mikið er drukkið. Dr. I. M. Doreu, yfirlögfræðingur toll- stjórnarinnar, hefir sýnt fram á, að það áfengi, sem nú er búið til í Bandaríkjun- um og drukkið þar, nemi ekki fullum 8% af því, sem drukkið var fyrir bann. Hér við bætist það, sem smyglað er inn og heimabruggað. Hversu mikið það er, geta menn ekki sagt með vissu, en allir eru sammála um, að það sé miklu minna en hitt. Samanlagt þykir því vist, að drukkið sé minna en 16% af því, senr drukkið var, áður en bannið var lögleitt. Sláandi dætni eru skýrslurnar úr ríkinu Connecticut. Bannið var lögleitt þar þrátt fyrir megna mótspyrnu flestra helstu manna. Aðal- atvinnuvegur ríkisins er iðnaður; íbúarn- ir eru að miklum hluta innflytjendur frá ýmsum löndum, þar sem vín og öl er al- ment drukkið; strandlengja ríkisins er sérlega vel til smyglunar fallin; blöðin eru öll harðsnúin gegn banninu. Vernd- un laganna er þar yfirleitt afar erfið. öl- æðisbrot í þessu ríki voru 6755 árið '916, en 3909 árið 1925. Áriö 1905 voru 72 lagðir þar á spítala vegna drykkju- mannaæðis, en árið 1922 aðeins 23. Hvernig eg varð bannmaður. Það eru 25 ár síðan eg fór að skiíta mér af áfengismálinu. Eg fór til Colorado mér til heilsubótar og var varaður við því að læknar þar létu sjúklinga sína hafa whisky. Á þeim árum töldu margir lækn- ar brennivínið nauðsynjalyf við allskonar krankleika. Þegar heilsan var aftur fengin, tók eg að hugleiða, hvernig eg ætti nú að vernda liana. Eg varð brátt sannfærður um, að áfengið er eitur fyrir líkamann og gerir honum ekkert gagn. Þetta er nú alment viðurkent af öllum inerkum læknum og lífeðlisfræðingum. Eg sá, að heilsu minnar vegna var mér best að neyta aldrei áfengis. Eg gerðist því bindindismaður og veitti ekki heldur gestum mínum vín, nema þegar eg vissi,

x

Templar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.