Templar - 01.11.1927, Síða 3

Templar - 01.11.1927, Síða 3
TEMPLAR 3 atkvæðagreiðslu var sterku drykkjunum veitt inn í landið aftur. Eins og menn mun reka minni til, var og er hægrimanna- flokkurinn ákveðnastur andbanninga megin. 17. október i ár fóru fram þingkosning- ai í Noregi. Þá missa hægrimenn 23 þingsæti af.54, sem þeir höfðu fyrir kosn- ingarnar, en jafnaðarmehn vinna 27 sæti í viðbót við þau 32, sem þeir höfðu áður. Vitanlega snerust ekki kosningar sér- staklega um áfengismálið. En hægri- mannablaðið »Morgenbladet« segir þó í athugunum sínum út af kosningaósigr- inum: »Oss dylst það ekki, að afnám banns- ins hefir svift flokk vorn mörgum at- kvæðum«. Hægrimenn (stjórnarflokkurinn) höfðu Iofað mörgu fögru, ef bannið yrði afnmn- ið. Það hefir gengið miður með efndirn- ar. Þeir höfðu talið kjósendum trú um, að fjárhagur ríkisins myndi batna. Batiun hefir ekki sýnt sig enn. Þ.eir iiöfðu haldið þvi fram, að drykjuskapur myndi minka. Hann hefir aukist. Þeir höfðu staðhæft, að smygl og launsala áfengis myndi hverfa. »Nú er það fyrst að byrja fyrir alvöru«, segja norskir tolleftirlitsmenn. Þessi reynsla Norðmanna ætti aö verða gagnleg kenning stjórnmálaflokk- um annara landa, svo að þeir festi sér vel í minni þann sannleika, að nú á tím- um græðir enginn stjórnniálaflokkur á því ad vera áfengisins megin. ------o------- Kvikmyndir. (Ræða flutt við vígslu G.-T.-salsins víð Bröttugötu, Rvík, 7. nóv. 1927), Go.od-Templararl Kæru bræður og systur! í þessum sal hafa um mörg undanfarin ár verið sýndar myndir. í kvöld eru oss enn sýndar hér myndir. Ritningarorðin, sem upp voru lesin, bregða upp fyrir oss myndum frá löngu liðnum tíma. Og á myndunum sést mikil barátta, stríð og erfiði, en líka mikil sigurgleði og lofgerð- arhljómur. Hjólið snýst, tímans hjól, sem aldrei nemur staðar. Altaf birtast nýjar myndir, og þó ekki nýjar, heldur æ og æfinlega þær sömu: erfiði, stríð og barátta í fram- sýn, og það svo yfirgnæfandi frá fjölda- mörgum að sjá, að þeir koma ekki auga á neitt annað eða nreira. »Lífið alt er blóðrás og logandi und«. Það sjá allir, og margiiv alt of rnargir, bæta við: »Sem læknast ekki fyr en á aldurtilastund« — ef það þá læknast nokkurntíma. Þeir sjá ekki síðasta þátt myndarinnar, koma ekki auga á sigurgleðina. Frá þeim að sjá er barátta og erfiði ilt, ekkert annað en ilt eitt. Þeir hafa ekki numið, að »þar sem við ekkert er að stríða, er ekki sigur neinn að fá«, þar er heldur enginn árang- ur og engin gleði. Vér erum kölluð satnan í kvöld til að gleðjast. Yfir hverju? Fremst á myndinni blasir við framför félagsskapar vors, Good-Templararegl- unnar hér í Reykjavík, svo nrikil, að þörf var á auknu húsnæði; Reglan gat ekki lengur rúmast í sínum görnlu húsakynn- um. Vissulega er þetta mikið fagnaðar- efni. En í baksýn á myndinni, bak við þenna stóra sigur Reglunnar er nokkuð, sem ýmsir koma ef til vill ekki auga á. Þar getur að líta ótölulegan fjölda smærri sigra. Eg segi: smærri, og á þá við, að þessir sigrar, hver fyrir sig, séu ekki eins víðtækir eins og heildársigur Reglunnar. En í raun og veru eru þeir stærri. Þegar einstaklingurinn vinnur sigur á sjálfum sér, illum fýsnum sínum og tilhneiging- um, þá er það stærsti sigurinn. »Sá, sem stjórnar geði sínu, er meiri en sá, sem liertekur borgir«. Úr fjölda slíkra sigra myndast heildarsigurinn. Hefðu þeir ekki unnir verið, værum vér ekki hér í kvöld. Regla vor hefði þá yfirleitt ekki þurft á neinu húsnæði að halda. Þessvegna vil eg fyrst af öllu segja: Heiður þeim, sem slíkan sigur unnu. Þar næst vil eg ílytja þakkir öllum þeim, sem starfað hafa að því að gera þennan sal nothæfan samkomustað fyrir vora göfugu Reglu. Eg veit, aö það hefir kostað mikla fyrirhöfn, og Iaun ýmsra, sem að því hafa unnið, engin nema gleðin yfir að vinna nauðsynjastarí fyrir gott málefni. Nú er sigurhátíð. Verkið er fram- kvænrt. Reglunni í Reykjavík er búið hús- næði, sem henni nægir til bráðabirgða, þangað til hún getur aftur safnast saman á einum stað, nægilega rúmgóðum til frambúðar, og vænta allir, að þess verði sem skemst að bíða. Þegar nú þessi salúr er tekinn til af- nota fyrir Regluna, skal þess minst, hver þau afnot eru. Er þess þá sérstaklega að geta, að af- notin af þessum sal eru ekki algerlega með sama hætti eins og tíðast er um þá sali, sem Reglan notar'. Hér verða ekki leyfðar háværar skemtanir eða gleðskap- arsamkomur, heldur verða templarar kallaðir hér saman fyrst og fremst til al- vörustarfs. »Templar« þýðir upphaflega hermað- ur. »Góðtemplar« þýðir þá góður her- maður. Það er skyldustarf hvers her- manns að berjast, og góðir hermenn berjast vel. Óvinurinn, sem Góðtemplar- ar eiga i höggi við, er öflugur og máttug- ur. Þess er full þörf, að vel sé barist, ef sigurs á að verða auðið, og vitanlega leggur enginn til orustu með öðrum á- setningi en þeim að sigra. En starf Reglunnar er meira en bar- átta; það er einnig uppbyggingarstarf. »Þeir, sem hlóðu, voru allir girtir sverði um lendar sér. Þannig unnum vér að verkinu«, segir Nehemía. Þannig skulum vér Góðtemplarar einnig vinna að voru verki. Hvað skal byggja? Oss sjálfa skuluin vér framar öllu öðru uppbyggja. Oss er það fyrirsett að vera musteri, veglegra en nokkurt það hús, sem með höndum er reist. . »Vort lijarta sé musteri heilagt það, er herrann í bústað eigi«. Úr þessum efnivið myndast svo stærri bygging — bygging Reglunnar. »Látið uppbyggjast sem lifandi stein- ar«. Þegar svo er til efnisins vandað, skal vissulega fyrirheitið rætast: »Þar skal nafn mitt búa«. Hér skulu nú Góðtemplarar — góðir hermenn — safnast saman sér til upp- kyggmgar og Reglu vorri, og hér skulu þeir tygjast til baráttunnar. Hingað skulu þeir koma og leita þess slyrks trúar og vonar, sem bræðralagið veitir, en umfram alt til að leita styrks hjá honum, sem í veikum er máttugur. Hingað skulu þeir koma til að sækja meira ljós þekkingar og skilnings á þörf- um mannanna og á ráðum og meðulum til að bæta úr þeim. Hingað skulu þeir koma til að sækja meiri yl kærleikans og samkendarinnar með þeim, sem bágt eiga. Dimt og kalt er í mörgum hjörtum og á mörgum heimilum vegna bölvunar á- fengisnautnarinnar, og vegna þess að mennirnir hafa ekki skilið afstöðu sína til meðbræðra sinna, aldrei lært að hugsa um aðra en sjálfa sig. Héðan skulu góðir hermenn út ganga styrkari en þeir komu hingað, og þeir skulu miðla þeim, sem veikir eru, af styrkleika sínum. Þeir skulu héðan fara upplýstari, og ekki skulu þeir setja ljós sitt undir mæli- ker, heldur glæða það með því að flytja birtu til þeirra, sem í myrkri ganga. Ylríkari skulu þeir fara út héðan og • verma þá, sem kalt er úti fyrir. »Af ávöxtunum skuluð þér þekkja þá«. Góðir hermenn eru sívakandi. Það var dauðasök hjá Rómverjum, að sofna á verðinum. í Reglu vorri er það einnig dauðasök. Það líf, sem Reglan hefir gróðursett og glætt, kulnar út, ef svefnin fær yfirhönd. Verum því sívakandi, sistarfandi, lýs- andi og vermandi. Þá mun á oss rætast fyrirheitið. Þá mun vegsemd Reglu vorr- ar aukast fyrir vorn tilverknað. Oss mun þá hlotnast náð til þess að stilla blóðrás og glæða logandi undir þjóðféfags vors. Templar-nafnsins mun þá minst verða með virðingu og þakklæti af öldum og óbornum: Templarar eru góðir hermenn fyrir gott málefni. Guð gefi því orði sigur. -------o------- Adam Poulsen leikhússtjóri frá Kaupmannahöfn var staddur i Reykjavík í nóvembermánuði. Flutti hann erindi í Templarasalnum við Bröttugötu 26. nóv. og sýndi skugga- myndir. Efni fyrirlestursins var um hag Norðurlandabúa í Bandaríkjunum og bannið þar. Hefir Poulsen farið víða um Bandaríkin og verið þar mikið á árunum 1918—1924. Er hann strangur bindind- ismaður og ákveðinn bannmaður. Sagð- ist honum mjög á annan veg frá um áhrif bannsins þar vestra heldur en ýmsum þeim ferðamönnum, sem andbanninga- blöðin hér hafa verið að vitna í. Sannaði hann með óhrekjandi tölum nytsemi bannsins. Bandaríkjamenn hafa jafnan þótt standa öðrum þjóðum framar um verndun einstaklingsfrelsisins. Hefir því mörgum hér austan hafsins þótt kynlega við bregða, er þeir lögleiddu bannið, sem af ýmsum er talið vera glæpur gegn ein- staklingsfrelsinu. Sýndi ræðumaður ræki- lega fram á, að bannið væri einmitt til þess sett að vernda frelsi einstakling- anna. Amerískar mæður og þeir aðrir, sem ant væri um framtíð þjóðar sinnar, hefðu tekið rögg á sig og svift í vetfangi burt þeirri hættu, sem alstaðar var á leið unglinganna og var vel á veg komin að gera marga þeirra að þrælum. Væri þetta öruggasta leiðin til þess að uppala frjálsa og þróttmikla þjóð í frjálsu landi. i

x

Templar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Templar
https://timarit.is/publication/532

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.