Sólöld - 01.01.1919, Qupperneq 5
SÓLÖLD
3
*
t
t
Jólabæn Sólaldar pr si'i að gyðja friðarins megi
breiða líknar vængi sína yfir alla bústaði mannanna
hvar sem þeir eru og hverjir sem þeir eru; að hún
mégi mæla huggunarorð í eyra þeirra sem sorgirnar
þjaka, að liún megi hella græðandi smyrslum í öll hin
inörgu og djúpu sár;; að hún megi anda blæ hugg-
unar og friðar í sálir þeirra allra sem um þessi jól
horfa á auð sæti horfinna ástvina.
Megi gyðja friðarins strjúka hlýrri líknarhendi
uin vanga hvérrar eiginkonu, hverrar elskandi syst-
ur, hverrar syrgjandi móður, hverrar saknandi ást-
meyjar, sem engill dauðans hefir svift ástvini á liðn-
um árum. Megi hún leiða við hönd sér öll munað-
arlaus börn sem stríðsguðinn hefir skilið eftir for-
sjárlaus. Megi hún um þessi jól mæla svo hátt, svo
áhrifamikið orðin “Friður á jörðu!” að þau ekki
einungis festist mönnum við varir og tungu heldur
þrengist inn í sálir þeirra og innra mann og beri þar
ávöxt.