Vísis-drengurinn - 01.01.1914, Page 3

Vísis-drengurinn  - 01.01.1914, Page 3
7 Skógareldur II. (Sjá 4. síðu.) var líka aragrúi frakkneskra fiskiskipa á sunirin. Mjer þótti fjarska gaman að leika mjer við frakk- nesku drengina, sem oft komu i land. Þeir komu lika einatt heim til okkar og fengu allt af góðar við- tökur. Hvorugir skildu að vísu mál annars, en það gerði litið til, við bgettum úr því með bendingum og lát- brigðum. Stundum sótti jeg hestana okkar og reið með þeim i stuttar skemmtiferðir. Þessir litlu drengir voru allt af einstaklega vingjarn- legir og kátir. Jeg var svo aitur á móti tiður gestur úti á herskip- unum. — Engin furða, að Frakkar voru vinir mínir. Alt þetta birtist mjer sem bjartar draumsjónir úr hug- skoti mínu. — Loksins sagði jeg við mömmu: »Helst vildi jeg fara til Frakk- lands, mamma, ef jeg ætti völ á. .Teg held það sje fallegast allra landa, eins og Frakkar eru ástúðlegustu mennirnir, sem jeg þekki«. Mamma gat ekki að sjer gert að brosa að þessu. Hún vissi af dálæti mínu á Frökkum og bjóst við þessu svari. »Jæja«, sagði hún, »þú ert hygginn í valinu, Nonni minn! Þú átt einmitt að fara til Frakk- lands, eftirlætislandsins þins. »En hvernig stendur á þessu, mamma? Hvaðan kemur okk- ur þetta boð?« »Það skal jeg nú segja þjer, barnið mitt. Þú þekkir vist að nafni sjera Boudoin, frakk- neska prestinn, sem verið hef- ur hjer á íslandi nokkur ár. »Já, mamma! Jeg hef oft heyrt hans getið. Hann er frá Reims. Hann hefur venjulega átt heima í Reykjavík og þar er hann núna. Hann var eitt ár hjerna i Eyjafirði hjá hon- um góðvini okkar, Einari As- mundssyni i Nesi«. »Alveg rjett, drengur minn. Sjera Boudoin hefur nú fyrir skemmstu skrifað mjer brjef; segir hann þar, að frakkneskur aðalsmaður nokkur í borginni Avignon, sem er rjett suður við Miðjarðarhaf, hafi tekið ást- fóstri miklu við Island. Hann kvað vera góður, guðhræddur maður og þar á ofan mjög auðugur. Nú er það innileg- asta ósk hans að fá til sín í Avignon tvo islenska drengi. Hann ætlar að sjá fyrir þeim, láta þá læra og ala þá upp svo vel, sem auðið er. Helst eiga þeir að vera um 12 ára gamlir, af góðu fólki, hraustir, prúðir og óspilltir, og verða að hafa löngun og hæfileika til náms«. »En, mamma, — heldur þú að jeg hafi alla þessa eigin- leika?« spurði jeg hálfvand- ræðalega og dró nokkuð niður í mjer. »Jeg vona það, drengur minn. Sjera Boudoin skrifar nefnilega, að góðvinur okkar, Einar Ás- mundsson, hafi bent sjer á okk- ur. Og nú spyr hann mig, hvort jeg vilji taka boði sínu. Þú átt að tara núna i ágúst, ef við föllumst bæði á þetta. Þetta eróvenjulega gott boð, barnið mitt gott, — og jeg er viss um, að faðir þinn hefði undir eins tekið því, ef hann væri lifandi«. »En þú sagðir, mamma, að hann vildi fá ivo drengi. Hver er þá hinn drengurinn?« »Það er sonur Einars i Nesi, mjög góður, gáfaður og vel upp alinn piltur. Hann heitir Gunnar. Hann á að fara á undan þjer. Þú hittir hann í Kaupmannaliöfn. Þaðan verðið þið svo samferða til Fraklc- lands. Og svo skal jeg segja þjer nokkuð. Prestur nokkur hjerna í Eyjafirði hefur átt völ á þessu sama fyrir son sinn, Pórhall, sem er 12 ára og mjög gáfað- ur. Faðir hans var ákveðinn i því að lála hann sigla og drengurinn vildi það lika. En móðir hans vildi það ekki, — hún var hrædd um, að honum gæli viljað eitthvert slys til á þessari löngu leið. Faðir hans hjelt því að vísu fram, að lor- sjón guðs myndi vaka jafn vel yfir barninu hennar þar sem hjer, en mamma hans ljet ekki undan og varð svo ekkert úr ferðinni. Nú átt þú að fara i stað Þór- halls, ef þú vilt«. »En hvað þetta er allt ein- kennilegt, mamma! En hvern- ig verður nú ferðinni háttað?« »Þú ferð hjeðan mcð siðasta danska kaupskipinu, sem i ár fer frá Akureyri. Líklega verð- ur það litla Borgundarhólms- skipið »Valdemar«, sem Foss er skipstjóri á. Það kemur hingað einhverntíma næstu vikurnar og verður hjer um tima. Á þvi fer þú rakleiðis til Kaupmannahafnar og þar verður þú að vera um tíma«. »Hjá hverjum á jeg að dvelja í Iíaupmannahöfn, mamma?« »Hjá forstöðumanni ka- þólskra manna i Danmörku. Hann er kirkjumálaforstöðu- maður og heitir Hermann Grii-

x

Vísis-drengurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísis-drengurinn
https://timarit.is/publication/550

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.