Ný þjóðmál - 10.12.1974, Síða 1

Ný þjóðmál - 10.12.1974, Síða 1
SVIPMYND ÚR HVERSDA GSLÍFINU — SJA GREIN í OPNU NÝ ÞJÓÐMAL Afgreiðsla Nýrra þjóðmála er að Ingólfs- stræti 18, Reykjavik, simi 19920. Ritstjóri blaðsins hefur aðsetur að Vonarstræti 8, simi 12002. 1. árg. Þriðjudagur 10. desember 25. tbl. NÝ PJÓÐMÁL Ný þjóðmál koma út vikulega. Útgáfudagur blaðs- ins er þriðjudagur. Ný þjóðmál fást á blaðsölustöðum, og i afgreiðslunni að Ingólfsstræti 18. Magús Torfi Ólafsson um aðförina að útvarpsráði: Öfgaöflin i Sjálfstæðis- flokknum ráða ferðinni! ,,Það sem mér finnst einna athyglisverðast við meðferð þessa máls er, hvað það sýnir vel niðurlægingu fram- sóknamanna i núver- andi stjórnarsamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn, að þeir skuli láta öfga- menn Sjálfstæðis- flokksins beita fram- sóknarmönnum fyrir sig til þess að flytja og bera fram og ætla að styðja frumvarp eins og þetta”, — sagði Magnús Torfi ólafsson, formaður Samtakanna, i viðtali við hljóðvarpið um helgina, er hann var spurður álits á stjórnarfrumvarpinu um breytingu á kjöri útvarpsráðs. Magnús var fyrst að þvi spurður, hver væri afstaða hans til frumvarpsins, og sagði þá: „Ég er andvlgur þessu frum- varpi. Ég tel, að það hafi verið rétt ráðið, sem samþykkt var einróma á Alþingi þegar núgild- andi útvarpslög voru afgreidd, að kjörtimabil útvarpsráðs skuli vera reglulegt, en ekki falla endilega saman við kjör- timabil Alþingis. Þetta fyrir- komulag var vandiega rökstutt af þeim, sem sömdu þetta frum- varp, og ég held að ekki sé á rfeinn hallað þó sagt sé, að þá- verandi formaður útvarpsráðs og núverandi formaður Alþýðu- flokksins, Benedikt Gröndal, hafi haft forystu fyrir þvl verki”. Þá var Magnús að þvi spurð- ur, hvort ákvæði til bráðabirgða I frumvarpinu um, að umboð núverandi útvarpsráðs félli niður þegar frumvarpið væri orðið að lögum og ætti þvl þegar að kjósa nýtt útvarpsráð, væri ekki nokkuð harkalegt, og hann svaraði: „Það fer ekki á milli mála af hvaða rótum þetta frumvarp er unnið. Allt frá þvl núverandi útvarpsráð var kjörið hafa viss öfl I Sjálfstæðisflokknum, ég vil kalla þau öfgaöflin i Sjálfstæðis- flokknum, haldið uppi mjög harðri gagnrýni — og ekki að- eins gagnrýni heldur blátt áfram árásum — á þá menn, sem skipað hafa undanfarið meirihluta útvarpsráðs. Þessar árásir hafa greinilega sprottið af þvi, að þessum öfga- armi S jálfstæðisflokksins finnst, að hann eigi ekki aðeins að ráða Morgunblaðinu — hon- um finnst að hann eigi að ráða ríkisfjölmiðlunum, ráða þvl, hvaða skoðanir fái þar að koma I ljós. Þetta kom mjög glöggt fram á viöreisnarárunum, þótt þáverandi formaður útvarps- ráðs, Benedikt Gröndal, berðist á móti þessari afstöðu eftir föngum, og reyndi að opna út- varp og sjónvarp, þá fékk hann blátt áfram ekki ráðið við öfga- menn Sjálfstæöisflokksins, eins og til dæmis kom I ljós þegar Ólafi Itagnari Grlmssyni eða mér var bolað frá vissum þátt- um I rlkisfjölmiðlunum”. Loks var Magnús að þvi spurður, hvort ekki væri ástæða til þess, ef þetta frumvarp yrði samþykkt, að sami háttur yrði hafður á varðandi aðrar nefnd- ir, stjórnirog ráð á vegum rfkis- ins, t.d. bankaráð, að kosið yrði i þau eftir hverjar kosningar. Magnús svaraði: „Ef þaö eru einhver rök fyrir þvi að svona eigi að fara með þessa stofnun, þá ættu þau einn- ig að gilda um aðrar stofnanir. En það sem mér finnst einna athyglisverðast við meðferð Magnús Torfi ólafsson. þessa máls er, hvað það sýnir vel niðurlægingu framsóknar- manna I núverandi stjórnar- samstarfi við Sjálfstæðisflokk- inn, að þeir skuli láta öfgamenn Sjálfstæðisflokksins beita fram- sóknarmönnum fyrir sig til þess að flytja og bera fram, og ætla að styöja, frumvarp eins og þetta. Þvi aðþrátt fyrir allar til- hneigingar Morgunblaðsins og öfgamannanna I Sjálfstæðis- flokknum til að leita uppi árás- arefni á núverandi meirihluta útvarpsráðs, þá veit ég ekki til þess, að það hafi nokkru sinni verið sýnt fram á þaö með nein- um rökum, að þeir hafi beitt hlutdrægni eða skoðanakúgun. Auðvitað má deila um einstök verk þeirra, en það hafa engin rök verið deidd fyrir þvl, að þær hlutdrægnistilhneigingar, sem Sjálfstæðismenn hafa sýnt hvað eftir annað einmitt I störfum út- varpsráðs, hafi ráðiö feröinni hjá núverandi meirihluta út- varpsráðs”, sagði Magnús að lokum. Verkalýdsforingjar gera furðusamning við danskt hreingerningafyrirtæki: Ekkert samráð við félags- menn við samningagerðina Það hefur vakið sérstaka at- hygli síðustu dagana, að for- svarsmenn nokkurra verka- lýösfélaga hér syðra hafa gert samning við danskt hreingern- ingarfyrirtæki um kaup og kjör. Þessi samningur var gerður án þess, að umrætt fyrirtæki hefði fengiðnauðsynleg rekstrarleyfi, og án þess að málið væri rætt al- mennt í verkalýösfélögunum, hvað þá að samningur þessi hafi verið lagður fyrir fundi i við- komandi verkalýðsfélögum. Er það þeim mun undarlegra, þar sem ýmis ákvæði eru I þessum samningi, sem ekki eru i öðrum samningum verkalýðsfélaga hér á landi. Margrét Auðunsdóttir, sem var formaður Starfsstúlknafé- lagsins Sóknar um langt árbil, og á sæti i miðstjórn Alþýðu- sambands íslands, hefur vakið sérstaka athygli á þessum samningi og ákvæðum hans i grein I Þjóðviljanum. Samningur þessi mun vera undirritaður af Þóri Daniels- syni, framkvæmdastjóra Verkamannasambandsins, Halldóri Björnssyni, starfs- manni Dagsbrúnar, Þórunni Valdimarsdóttur, formanni Framsóknar i Reykjavik, Guð- mundu Helgadóttur, formanni Sóknar, Guðriði Eliasdóttur, formanni Framtiðarinnar i Hafnarfirði, og Indriða Hall- dórssyni, form. Félags starfs- fólks á veitingahúsum. Mörgum er mikil spurn að þvi, hvers vegna ástæða hafi þótt til þess af hálfu forystu- manna verkalýðsfélaga hér að gera samning við þetta fyrir- tæki um kaup og kjör nú, þegar ekkert liggur fyrir um það, hvort það fær yfirleitt rekstrar- leyfi hér á landi eða ekki. Það vekur einnig furðu, að slikur samningur skuli yfirleitt gerður við erlent fyrirtæki, sem félagsmenn i verkalýðsfélögun- um hafa ekkert heyrt um fyrr en nú, án þess að málið sé fyrst rætt sérstaklega i hinum ein- stöku félögum, og hugur félags- manna til sliks samnings kann- aður. Hvers vegna hefur þetta gengið svona hratt og hljóðlega fyrir sig? Sérkennileg ákvæði Þegar þessi samningur er skoðaður efnislega, er ljóst, að þar eru ýmis sérkennileg ákvæði, sem virðast veita fyrir- tækinu mun meiri umráðarétt yfir starfsmönnum sinum en eölilegt getur talist miðað við þau réttindi, sem launþegar á islandi hafa barist fyrir og náð fram. Skoðum til dæmis ákvæðin um vinnutima þeirra, sem hjá þessu fyrirtæki myndu starfa. Þar kemur m.a. eftirfarandi fram: Daglegur vinnutimi getur verið hvenær sem er sólar- hringsins. Hið danska fyrirtæki „hefur rétt til að ákveða vinnu- tlma, vinnustað og tegund vinnu”. „Þar sem nauðsyn krefur vegna vinnufram- kvæmdar er heimilt að haga vinnutima eftir þörfum fyrir- tækisins”. Hafa skal „samráð” við starfsfólk um ákvörðun vinnutima, matar- og kaffihlé. Daglegur vinnutimi er svo samningsatriði danska fyrir- tækisins við hvern einstakan starfsmann. Þarna kemur skýrt fram, að fyrirtækið getur ráðskast með starfsfólkiö að viid. Það ákveð- ur hvenær sólarhrings unnið skuli, hvar unnið skuli i hvert eitt sinn og hvernig vinnu skuli inna af hendi. Samkvæmt þessu væri hægt að senda starfsfúlku i vesturbæinn fyrir hádegi og Framhald á 7. siðu. ÁRÁSUM KRATA Á KARVEL OG SAMTÖKIN SVARAÐÁ 7. SÍÐU

x

Ný þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.