Ný þjóðmál - 10.12.1974, Blaðsíða 8

Ný þjóðmál - 10.12.1974, Blaðsíða 8
VÉSTEINN ÓLASON SKRIFAR UM VERK GUÐBERGS í OPNU Jgo&mál VIÐ TAKANDI: Breytingin 1971 var gerð til að tryggja sjálfstæði ríkisútvarpsins: Öfgaöflin í Sjálfstæðisflokknum vilja ráða yfir ríkisfjölmiðlum Það fer víst ekki fram- hjá neinurri/ að stjórnar- frumvarpiðum breytingu á kosningu útvarpsráðs/ og um að nýtt úrvarpsráð skuli kjörið strax og breytingin hefur orðið að lögum, er mikill sigur fyrir öfgaöflin í Sjálf- stæðisflokknum. Þessum öfgaöflum hefur tekist að fá foringja Framsóknar- f lokksins i lið með sér, og svínbeygt Vilhjálm Hjálmarsson, mennta- málaráðherra, þótt þeim hafi ekki tekist að beygja þann þingmanninn í þeirra röðum, sem mest veit um málefni útvarps- ins, og ber hag þess mest fyrir brjósti, Þorvald Garðar Kristjánsson. Þykir mörgum, að hlutur Vilhjálms sé sárgræti- legur, því hingað til hefur hann þó af flestum verið talinn „góði drengurinn" í ríkisstjórninni, en hefur sýnt það i þessu máli, að hann er bara alveg eins og hann Einar. bað þarf enginn aö fara i grafgötur með það, hvaða ástæður liggja að baki kröfu öfgaaflanna i Sjálfstæðisflokkn- um. beim er nákvæmlega sama, hvert kjörtimabil lit- varpsráðs sé. bað sem skiptir þessa öfgamenn öllu máli er að ná undir sig meirihlutavaldi i útvarpsráði til þess, að þeir geti stjórnað þvi eins og Morgun- blaðinu. beir geta ekki komist i slika aðstöðu, nema losa sig fyrst við ýmsa þá menn, sem nú sitja i útvarpsráöi, og þá er þessi aðferð notuð. Tilgangurinn árið 1971 Eins og flestum mun kunnugt fór fram mjög itarleg athugun á útvarpslögunum, og gildandi reglum varðandi útvarpið, á siðustu árum svonefndrar við- reisnarstjórnar. A árinu 1969 var skipuð sérstök nefnd til að framkvæma þessa endurskoð- Moirihlu ti ú trur/>srn<)s sem ojgiiojlui i ilju Jru un, og var Benedikt Gröndal, þáverandi formaður útvarps- ráðs, formaður hennar, en með honum i nefndinni Andrés Björnsson, útvarpsstjóri, og dr. bórður Eyjólfsson, fyrrverandi hæstaréttardómari. bessi nefnd skilaði áliti árið 1970, og þar á meðal frumvarpi að nýjum útvarpslögum, og var það lagt fram á Alþingi haustið 1970 og samþykkt vorið 1971. í þessum nýju útvarpslögum var margt, sem styrkti sjálf- stæði stofnunarinnar, og þar á meðal ákvæðið um að útvarps- ráð skyldi hafa fjögurra ára kjörtimabil hvað sem liði átök- um i stjórnmálalifinu. 1 greinargerð með frumvarp- inu var þessi breyting rökstudd á eftirfarandi hátt: ,,bá er gert ráð fyrir, að út- varpsráð sé kosið til fjögurra ára hverju sinni. Arið 1939 var ráðið kosið til þriggja ára, en 1942 var lögunum breytt á þann veg, að hvert nýkjörið þing skyldi kjósa útvarpsráð. Hefur komið fyrir, að kosið væri i út- varpsráð tvisvar á sama ári, og kjörtímabil ráðsins væri innan við hálft ár. Með núverandi skipan er Rikisútvarpið nátengt við stjórnmálabaráttuna og sveifl- ur hennar. Virðist hyggilegra, og meira i samræmi við hug- myndir samtiðarinnar um sjálf- stæði Rikisútvarpsins, að út- varpsráð hafi fast kjörtimabil eins og mikill meiri hluti þeirra stjórna og ráða, sem Alþingi kýs. Mundi það skapa meiri festu i störf útvarpsráðs og stofnunarinnar i heild”. bingheimur féllst fyllilega á þessi rök, og var þessi breyting samþykkt i einu hljóði á Alþingi. Vorið 1971 var svo kjörið nýtt úrvarpsráð i samræmi við þessi lög. bað er þetta útvarpsráð, sem nú á að setja af að kröfu öfgaaflanna i Sjálfstæðisflokkn- um, enda eru þau öfl ekkert að hugsa um „hugmyndir samtið- Framhald á 7. siðu. EINAR ÞORSTEINN ASGEIRSSON: Störf umhverfismálaráðs Reykjavíkur 1974 bann 16. mai i ár samþykkt borgarstjórn að kjósa sérstakt umhverfismálaráð, sem falin eru störf náttúruverndar- nefndar, fegrunarnefndar og Árbæjarnefndar. Ráðið er skipað sjö fulltrúum, fjórum frá Sjálfstæðisflokknum, og einum frá hverjum eftirtaldra Alþýðu- bandalaginu: Framsóknar- flokknum: og sameiginlegu framboði Samtakanna og Alþýðuflokks. bannig vill til að hér eiga Samtökin eina fulltrúa sinn i nefndum borgarinnar, en eins og kunnugt er ráðskaðist efsti maður J-listans, sem einn náði kjöri, með nefndarstörfin að kosningum loknum, rétt eins og Alþýðuflokkurinn einn hefði átt aðild að J-listanum. Og var þar jafnaðarmannslega að fariö. En hið kaldhæðnislega við þessa deilingu nefndarstarfa er raunar, að það var fulltrúi SFV i borgarstjórn, Steinunn Finn- bogadóttir, sem mótmælti gamla kerfinu i þessum málum, sem varð til þess að J-listinn fékk mun fleiri nefndarstörf i sinn hlut en eftir þvi gamla. bað sem af er árinu hefur Umhverfismálaráð haldið 12 fundi og fjallað þá m.a.: um veitingu viðurkenninga fyrir snyrtimennsku og vandaðan frágang stofnana, mannvirkja og gatna: um frágang hússins Laufás i Arbæ, þar sem undir- rituðum var falið að vera tækni- legur ráðunautur: um endur skipulagningu reitar við Reykjanesbraut norðan Mjóddarinnar, sem ekki voru gerðar aðrar athugasemdir en að frágangur yrði til fyrir- myndar og svæðið girt af með jarövegg til Reykjanesbrautar: um áætlun um að koma Pioner eimreiðinni i Arbæ undir þak! um greinargóða skýrslu um Arbæ, gerða af Nönnu Her- mannsson nýráðnum safnverði: um merkingu náttúruminja: um skipulagsskýrslu stór- reykjavikursvæðisins 69-83: um úttekt á beitarþoli afrétta Reykjavikur, ásamt jarðanna Kolviðarhóls og Nesjavalla, um beiðni borgarráðs um umsögn um Oddgeirsbæ við Framnes- veg, hvort flytja beri hann i Arbæjarsafnið eður ei. Astæða er til'aö fjalla nánar um tvö siðustu málin. 1 skýrslu Rannsóknar- stofnunar Landbúnaðarins kemur fram að ofbeit er á öllum þeim svæðum, sem rannsökuð Einar Þorateinn Asgeirsson. voru, þó mismikil sé. Mest er ofbeitin i landi Nesjavalla, en þar má segja að beitarþolið sé 350 ærgildi, en þar munu nú vera 700 ær. Um Nesjavelli segir m.a.: „betta land þyrfti nær algerrar friðunar viö i lengri tima, svo að gróður nái að endurnýjast. Með núverandi beitarþunga er ekki annað sjáanlegt en að gróður og jarð- vegur hverfi þarna með öllu á næstu áratugum.” A siðasta fundi Umhverfis- málaráðs hvatti Eysteinn Jónsson, formaður Náttru- verndarráðs, borgina eindregið til þess að ganga hér fram með góðu fordæmi og friða jörðina og girða, en jafnframt að halda þar úti einhverjum búskap, þar sem fjáreign væri i lágmarki. Meginstefnuna i þessum málum kvað hann vera að „Landinu færi ekki aftur”. Nönnu Hermannsson, minja- verði, var falið að gera könnun á Oddgeirsbæ vegna hugsanlegs flutning hans að Arbæjarsafni. Niðurstaða hennar var, að ekki væri ástæða til þess að flytja steinbæinn, en hins vegar að gera nákvæma úttekt á honum, uppmælingar, ljósmyndun o.fl. Kom i ljós að slik vinna myndi taka um 4-6 vikur fyrir sérfræðinga. Féllst umhverfis- málaráð á tillögur minjavarðar og gerði undirritaður um leið eftirfarandi bókun: Vegna beiðni borgarráðs um umsögn Umhverfismálaráðs um Oddgeirsbæ við Fram- nesveg, vil ég lýsa þeirri skoðun minni að stefna beri að þvi að varðveita þau gömlu hús borgarinnar, sem sögulegt eða byggingasögulegt gildi hafa, á sinum upprunalega stað. 1 þeim undantekningartil- fellum, þar sem almannaþörf krefst tilfærslu á viðkomandi húsum, eða þegar það er einróma mat sérfræðinga borgarinnar og húsafriðunar- nefndar, að eðlilegra sé að endurbyggja viðkomandi hús I Arbæjarsafni, þá greiði þeir aðilar, sem hagnast á brott- flutningi þeirra, flutnings kostnað þeirra og gerð grunna og undirstöðumannvirkja i Árbæjarsafni. Ennfremur er það skoðun min, að tillögur húsafriðunar- nefndar eða annarra aðila, sem borgin felur gerð tillagna þaraðlútandi, sé stöðugt i endurskoðun i samræmi við endurskoðunarákvæði skipu- lagslaganna og þá i þá átt, að við núverandi tillögur bætist fleiri hús og götuheildir, eftir þvi sem skilningur manna á umhverfi sinu eykst. Einar Þorsteinn Ásgeirsson FRIÐGEIR BJÖRNSSON SKRIFAR FRÉTTABRÉF í OPNU

x

Ný þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.