Ný þjóðmál - 10.12.1974, Qupperneq 2

Ný þjóðmál - 10.12.1974, Qupperneq 2
2 NY ÞJOÐMAL HREINT ÚT SAGT I MIKIÐ HEFUR VERIÐ rætt f, um hugsanlega járnblendiverk- ( smibju I Hvalfirði aö undan- förnu, og sýnist sitt hverjum | eins og vænta mátti. Nokkuð f; hefur dregist að leggja málið fyrir Aiþingi, og bendir það til i þess, að undirbúningur málsins hafi ekki gengið eins greiðlega I og ráðherrar núverandi rfkis- }■ stjórnar höfðu gert sér vonir um f fyrir skömmu slöan. Viröist nú I; með öllu óvfst, að ákvörðun verði tekin af löggjafarsam- | komunni um þessa verksmiðju I fyrr en einhvern timann á næsta | ^ri. ;■ Verði slikur frestur á endan- I legri ákvörðun, þá gefst betri timi en ella til að athuga málið [L og ræða það Itarlega, en auðvit- | að hlýtur það aö vera frum- | skylda ábyrgra stjórnvalda á ( hverjum tima að Itarleg um- ræða fari fram um mál sem þetta áöur en tii endanlegrar á- ( kvörðunar kemur, svo almenn- ( ingi sé bæði ljóst hvaö um er að 1 vera, og hafi tækifæri til þess | með ýmsum hætti að láta sjón- 1 armið sln i ljósi. | ÞAÐ ER AUÐVITAÐ margt | sem kemur til skoðunar þegar ákveða á, hvort ástæða sé til að § reisa verksmiöju sem þessa hér f á landi^bæði grundvallarsjónar- i mið varðandi stóriðju á tslandi ( og hlutdeild erlends einkafjár- ( magns i Islensku atvinnullfi al- jt mennt, og sérstök atriði sem | eingöngu eru tengd þessari verksmiðju út af fyrir sig. Ég ætla ekki hér að ræða ( nema mjög Htíllega eitt atriði, sem snýr að þessari verksmiðju | sérstaklega. Það er mengunar- | hættan, sem henni kann að fyigja. ; NÚ FYRIR NOKKRUM dög- um var gefin út opinberlega skýrsla frá viðræðunefnd um orkufrekan iðnað til rikis- stjórnarinnar um járnblendi- ( verksmiðjuna, og fjallar einn kafli hennar um mengunarmál- in — eða umhverfismál eins og það heitir I skýrslunni. Þar er m.a. rætt um þetta mál 'i með eftirfarandi hætti: „Varöandi mengunarmál vls-l ar ráðið (þ.e. Náttúruverndar-1 ráð, sem viðræðunefndin leitaðU umsagnar frá um umhverfis- mál verksmiðjunnar) til Heil- I brigðiseftirlits rikisins, og fór , Baldur Johnsen, forstöðumaður ( þess, i stutta kynnisför till Bandarikjanna til þess að kynna ( sér þessi mál. t viðtali við nefndina taldi Baldur ljóst, að Union Carbide gerði mjög mikl- [( ar kröfur að þvl er varðar ör- V yggis- og mengunarvarnamál”. 1 Þessi kafli i skýrslunni virðist benda til þess, að upplýsingar |í þær, sem fyrir liggja hjá Is-I lenskum aðilum um mengunar- hættu, og mengunarvarnir, séu komnar frá þeim erlenda auð- hring, sem verið er að semja við J um verksmiðju hér á landi.fi Bæði hefur auðhringurinn gefið j viðræðunefndinni slikar upplýs- ingar um eigið ágæti I meng- ( unarmálum, og svo hefur einn starfsmaður Heilbrigðiseftir- [[ litsins farið ,,í stutta kynnisför” | til Union Carbide og fengið, sams konar upplýsingar. Það hlýtur að teljast furðu- j;j legt, að fariö skuli með meng- unarmál þessarar verksmiðju j af sllkriléttúð. EN ÞAÐ ER EKKI aðeins, að 1 vitneskjan virðist fyrst og | fremst, eða jafnvel cingöngu, *’ komin frá þeim auðhring sem verið er að semja viö — eins og alþjóðlegir auðhringar hafa lika > sýnt sig I heiðarleika að undan- förnu — heldur er beinllnis játað ( i skýrslunni, að varðandi sum ;; mengunaratriði sé engin vit- *j neskja fyrir hendi. Eða hvernig , á að skiija eftirfarandi setn- : ingu: I „Vitað er, að frá verksmiðj- unni koma nálægt 2500 tonn á ári!: af föstum úrgangsefnum... en ( ekki er vitað til þess, að I þeim t> séu hættuleg snefilefni. Komi I ! Ijós, að svo sé, er gengið út frá þvl, að þau skuli gerö óskaðleg f með öllu”. Þarna er staðfest, að um mik- ( ið magn úrgangsefna sé aö ræða, og að ekki sé vitað, að um hættuleg efni sé þar að ræða, en ; Framhald á bls. 6. SFV-félagið í Reykjavík: Framhalds- aðalfundur Framhaldsaðalfundur SFV-félagsins í Reykjavik verður haidinn miðvikudaginn 11. desember næstkomandi i Félagsheim- ili prentara við Hverfisgötu. Dagskrá: 1. Framhald aðalfundarstarfa. Kosning stjórnar. 2. Fréttir frá Landsfundi Samtakanna. Stjórnin A Byggingalánasjóður Kópavogskaupstaðar Umsóknarfrestur um lán úr sjóðinum er til 16. desember n.k. Umsóknir skal senda undirrituðum á þar til gerð eyðublöð sem liggja frammi á bæjarskrifstofunni. Bæjarritarinn I Kópavvogi. l)R ÖLLUM ATTUM Bandarlska leikkonan og söngkonan Debbie Reynolds er enn I fullu fjöri, þótt hún sé 42 ára að aldri. Nú á dögunum hcfur hún tekið þátt I margvíslegum fjársöfnunum til málefna, em hún hefur sérstakan áhuga á. Er þar einkum um að ræða stofnun sér- staks Hollywood-safns, sem á aö varöveita minjar um hina lit- riku sögu þessa bæjar, sem eitt sinn var miðstöð kvikmynda- gerðarinnar I heiminum, og sem enn gegnir mikilvægu hlutverki I þvl efni. Myndin hér að ofan er tekin á skemmtun, sem Debbie hélt til að safna fjármagni til safnsins. Ummæli vikunnar „Vitaskuld verða bátarnir teknir eins og hverjir aðrir lögbrjót- ar”. Sjávarútvegsráðherra um rækjubátana frá Blönduósi, sem lönduðu rækju annars staðar en þeir höfðu heimild til. Eins og áður hefnr ver- ið skýrt frá I þessum dálkum, hefur bandariskt sjónvarpsfyrirtæki og BBC I London látið gera sjónvarpskvikmynd um Winston Churchill I tilefni af 100 ára afmæli hans, og lék Richard Burton aðal- hlutverkið. Rétt áður en sjónvarps- kvikmyndin var sýnd I BBC og I Bandaríkjunum, birtist viðtal við Burton I New York Times, sem vakti mikinn úlfaþyt I Bretlandi. Þar lýsti Burt- on þvi yfir, að eftir þvl sem hann hefði sökkt sér meira ofan I Churchill sem persónu hefði hann skiliö betur og betur, að hann hataði hann og alla hans tegundar. Hann fór slðan ýmsum svipuðum orðum um Churchill, og llkti honum m.a. við ribb- aldakónga miðalda, sem hefðu I reynd verið ótindir glæpamenn. Þessi ummæli komu við hjartað á mörgum Bret- anum, og er talið ósenni- legt að Burton verði nokkru sinni aftur ráðinn til að leika I sjónvarps- kvikmynd á vegum BBC. Ilins vegar drógu þessi ummæli Burtons ekki úr hrifningu gagnrýnenda dagblaðanna eftir sýning- una i BBC, en þeir luku miklu lofsorði á Burton fyrir leik hans. Og velta menn því mjög fyrir sér, hvernig Burton hafi getað leikið svo snilldarlega mann, sem hann segist fyrirlita og hata. ÞAÐ ER VISSULEGA MIKILL svipur með þeim mæðgunum hér á myndinni. A miðri mynd- inni er Nina van Pallandt, sem varð þekkt hér á landi fyrir fjöldamörgum árum er hún kom hingað og söng ásamt manni slnum, Friðrik. Nina, sem nú er 42 ára, eignaðist tvær dætur með Friðrik — Kirsu, sem er II ára, og önnu Mariu, sem er 9 ára. Dæturnar búa hjá móður sinni, sem skildi við Friðrik árið 1969. Nína hefur haldið áfram að syngja, þótt hún segði skilið við eiginmanninn, og hlaut loks heimsfrægð fyrir tveimur árum siðan þegar hún komst i heims- fréttirnar vegna tengsla sinna viö rithöfundinn Clifford Irving, sem dæmdur var i fangelsi fyrir að falsa ævisögu miiljónamæringsins Howard Hughes. Eftir allt það umtal, sem þá varð, jókst mjög eftirspurnin eftir Nlnu, og hefur hún siðan sungið á ýmsum þekktustu skemmtistöðum á Vesturlöndum. Að undanförnu hefur hún komið fram i kabarett á Savoy Hótel i London. Fólk í fréttum Hinn þekkti gamanleikari Bob Hopalenti illilega i um- ferðaröngþveiti New York- borgar s.l. fimmutdag, og kom á síðustu stundu til þess að taka á móti heiðursverð- launum bandarlska Hjálp- ræðishersins fyrir árið 1974. Afhendingin fór fram I há- degisverði á Waldorf-Astoria hótelinu, og voru 2500 gestir viðstaddir, en verðlaunahaf- inn kom ekki fyrr en undir lok hádegisverðarins. En hann kom þó að lokum, og tók við verðlaununum, sem ýmsir þekktir Bandarikja- menn hafa fengiö á undan honum, svo sem Dwight D. Eisenhower, fyrrum Banda- rlkjaforseti, BiIIy Graham, predikarinn þekkti, Lyndoii B. Johnson, fyrrum forseti Bandarikjanna og margir fleiri. Það hefur margt skritið gerst I Uganda siðan Idi Amin tók ,við völdum þar meö byltingu. Eitt af þvi er frami fyrrverandi fyrir- sætu, sem Elisabet Bagaya heitir, og ber titilinn Prin- sessa af Toro, en hún var gerð að utanrlkisráðherra landsins. Var talið, að það hefði gerst vegna fegurðar hennar og eftirlátssemi við forsetann. En nú fyrir helg- ina staðfesti Amin að gam- anið væri búið, a.m.k. i bili, og væri Elisabet I stofufang- elsi. Sakaði hann hana m.a. um að hafa haft kynmök við evrópumann nokkurn inni á salerni i flughöfninni I Paris, og sagðí hana hafa haft sam- bönd við bandariska og breska njósnara. Verður fróðlegt að vita hvort fegurð- in og eftirlátssemin nægir til þess að bjarga Elisabetu úr þessari klipu.

x

Ný þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.