Ný þjóðmál - 10.12.1974, Qupperneq 7

Ný þjóðmál - 10.12.1974, Qupperneq 7
NY ÞJÓÐMÁL ■■■■■■■■■■ Arásum krata á Karvel og Samtökin svarað: Samtökin tryggðu Vestfirðingum annanfulltrúa í fjárveitinganefnd Kr ataf orin g j arnir hafa að undanförnu sýnt ótrúlegan skort á skapstillingu i skrifum sinum um Samtökin og þingmenn þeirra. Hafa þeir ráðist i málgögn- um sinum að forystu- mönnum Samtakanna með stóryrðum og upp- hrópunum, svo að fá- dæma er nú á timum i blaðamennsku stjórn- málablaðanna. Eitt dæmi um slíkar ómál- efnalegar árásir á forystumenn Samtakanna er grein i Skutli, sem Alþýöuflokksmenn á Vest- fjör&um gefa út, um Karvel Pálmason og Samtökin, og af- stö&u þeirra til nefndarkosninga á Alþingi. Eru Samtökin þar sökuö um að hafa haft þaö að meginmarkmiði varðandi nefndakjör á Alþingi að bola Al- þýöuflokknum úr fjárveitinga- nefnd! Af þessu tilefni þykir rétt að upplýsa nokkru nánar um gang nefndarkosninga á þvi þingi, sem nú situr, og ástæðurnar fyr- ir þvi, að stjórnarflokkarnir fluttu sérstakt stjórnarfrum- varp til þess að koma fulltrúa Alþýðuflokksins inn i fjárveit- inganefnd. Sama staðan hjá Alþýðuflokknum og Samtökunum Kjarni málsins er sá, að eins og málum er nú háttað á Al- þingi, er staða Alþýðuflokksins og Samtakanna hvað nefndar- kjör snertir alveg hin sama — sem sé, að hvorugur flokkurinn getur komið mönnum sinum i nefndir i þinginu nema með samstarfi við aðra flokka. Þar sem það er auðvitað mik- ilvægt, að hafa fulltrúa i þýð- ingarmestu nefndum þingsins, og þá auðvitað ekki sist i fjár- veítinganefnd, sem fjallar um fjárlagafrumvarpið, er það að sjálfsögðu skylda forystumanna hvers flokks að gera það, sem hægt er, til þess að koma full- trúum flokksins i þær nefndir, sem mestu máli skipta. Þetta á miðað við núverandi aöstæöur jafnt við um Samtökin og Alþýðuflokkinn. Reynt að tryggja mann i mikil- vægustu nefndina Þvi var það, að forystumenn Samtakanna hófu i sumar at- hugun á þvi, með hvaða hætti hægt væri að koma fulltrúa flokksins i fjárveitinganefnd, og kom i ljós, að Alþýðubandalagið var reiðubúið að leggja fram sameiginlegan lista með Sam- tökunum v|& kosningu i f járveit- inganefnd, er slikur listi hefði fengið tvo menn kjörna i nefnd- ina — einn frá Alþýðubandalag- inu og einn frá Samtökunum. Með þessu samkomulagi höfðu forystumenn Samtakanna tryggt flokknum fulltrúa i mik- ilvægustu nefnd þingsins. Forysta Alþýðuflokksins virð- ist hins vegar á engan hátt hafa sinnt þvi að hugsa um hag sins flokks i þessu efni. Áhugaleysið var jafnvel svo mikið, að i þeirri undirnefnd fjárveitinganefndar, sem starfar á sumrin milli þinga og sem allir þingflokkar „eiga fulltrúa i, mætti enginn fulltrúi frá Alþýðuflokknum allt sumarið nema á siðasta fundin- um. Áhugaleysi forystu Alþýðuflokksins Þannig sýndi forysta Alþýðu- flokksins málinu algjört áhuga- leysi, þar til i þá mund að þing var að koma saman nú i haust. Þá fyrst hóf forysta Alþýðu- flokksins að gera tilraunir til að koma fulltrúa frá sér i fjárveit- inganefnd, en komst fljótlega að raun um, að aðrir aðilar á þing- inu höfðu ekki áhuga á að gefa Alþýðuflokknum þar sæti. Hins vegar var þeim boðið af hálfu Alþýðubandalagsins og Samtakanna að eiga þriðja mann á sameiginlegum lista þessara þriggja flokka, og láta síðan hlutkesti ráða úrslitum um, hvort sá maður, eða þriðji maöurinn á lista Framsóknar- flokksins, kæmi inn i nefndina( sem aðalmaður. Jafnframt var ljóst, að ef Al- þýðuflokksmaðurinn kæmist ekki inn með þessu móti, þá gat hannmættsem áheyrnarfulltrúi með öllum réttindum nema at- kvæðisrétti, en svo er að skilja á greininni i Skutli, að á þessu og kjöri sem aðalmaður sé litill munur. Samt sem áður hafnaði Al- þýöuflokksforystan þessu góða boði, og reyndi að fá aðstoð stjórnarliðsins, en hvorugur stjórnarflokkanna vildi gefa eft- ir sæti, enda margir um hituna i þingflokkum þeirra. Fjölgað fyrir Alþýðufiokkinn En þá kom i ljós, að einhverj- ar taugar voru á milli núverandi ihaldsmeirihluta á Alþingi og forystumanna Alþýðuflokksins, þvi stjórnarliðar fóru nú aö ympra á þeim möguleika að fjölga um einn i fjárveitinga- nefnd fyrir Alþýðuflokkinn. Ekki hafði verið minnst á slika afgreiðslu málsins á sumar- þinginu, þegar fulltrúi Samtak- anna varð að sætta sig við að vera áheyrnarfulltrúi i fjárveit- inganefnd, en auðséð var, að stjórnarliðinu var mun meira i mun að friðþægja foringja Al- þýðuflokksins. Það var þvi samkomulag Al- þýðubandalagsins og Samtak- anna sem leiddi til þess, að stjórnarliðið ákvaö að fjölga i fjárveitinganefnd, og þar með að Alþýðuflokkurinn fékk mann kjörinn i nefndina. Foringjar þess flokks ættu þvi að spara sér skammir i garð forystumanna Samtakanna út af þessu máli. Hvað hefði þjónað best hagsmunum Vest- fjarða? Svo geta Vestfirðingar velt þvi fyrir sér, hvort þeir hefðu talið það þjóna betur sinum til- gangi, að forystumenn Samtak- anna hefðu ekkert aðhafst I málinu. Hefði svo farið, þá hefði ekki verið fjölgað i fjárveitinga- nefnd. Og þá hefði Reyknesing- urinn og Alþýðuflokksmaðurinn Jón Armann Héöinsson setið i fjárveitinganefnd en ekki Vest- firöingurinn Karvel Pálmason. Þaö er einmitt það, sem for- ystumenn Alþýðuflokksins böröust fyrir. Halda menn, að það hafi kom- ið Vestfirðingum til góða? Halda menn að það hefði aukið fjárveitingar til mikilvægra umbótamála á Vestfjörðum? Nei, það þarf enginn að halda það. Framtakssemi forystu- manna Samtakanna i þessu máli mun reynast Vestfirðing- um mikilvæg, hversu mjög sem þaö æsir skapið i úrillum for- ystumönnum Alþýðuflokksins. Furðusa mningur Framhald af bls. 1. sömu stúlkuna i austurbæinn eftir hádegi, eða út og suður eftir þvi sem passar inn I kerfið hjá ráðamönnum fyrirtækisins. Fólk veit ekkert um þaö, þegar það ræður sig i vinnu hjá fyrir- tækinu samkvæmt þessum samningi, hvar það mun i reynd vinna næstu vikur og mánuði, né jafnvel heldur hvenær sólar- hringsins. Þó skyldi maður ætla, að það væri lágmarkskrafa, að starfs- fólk geti ráðið sig til vinnu á ákveðnum vinnustað, og á ákveðnum tima. Slik réttindi eru sjálfsögð, en þeim er varpað fyrir borð 1 þessum sérkenni- lega samningi. Önnur ákvæði Ákvæði eru i samningnum um laun i sérstökum kafla þar um. Þar er „venjulegt timakaup” starfsmanns fastsett Isl. kr. 275.00 á milli kl. 8.00 og 21.00, en siöan er ákveðiö álag fyrir vinnu á öðrum tima, og svo fyrir yfirvinnu. Engin ákvæði eru um starfsaldurshækkanir. Málsvarar þessa samnings hafa talið að þetta væri hag- kvæmt, en i áðurnefndri grein Margrétar Auðunsdóttur er sýnt meö skýrum dæmum, aö það er vægast sagt mjög umdeilt atriði. Og þannig er hægt að halda áfram að ræða einstök atriði þessa samnings. Að ekki sé tal- að um starfsreglur fyrirtækis- ins, sem starfsfólkið verður að hlýöa I einu og öllu, og sem aug- sýnilega eru ekki sniðnar eftir ástandinu hér á landi, heldur þeim lifnaðarháttum og þvi ófrelsi, sem viða ríkir i atvinnu- lifi svonefndra iðnvæddra rikja. Hvers vegna? Athugun á samningnum vek- ur þvi enn frekar upp þá spurn- ingu, hvers vegna i ósköpunum þessi samningur er gerður. Og um leið hvers vegna unnið hefur veriö að honum með þeim hætti, sem raun ber vitni um. Það stendur vonandi ekki á svörum. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 6. desember 1974. Laus staða Staða læknis við heilsugæzlustöö i Búðardal er iaus til umsóknar. Umsóknárfrestur er til 3. .janúar 1975. Staðan veitist frá 10. janúar 1975. Umsóknir sendist heilbrigöis- og tryggingamálaráöu- neytinu. \A STRÆTISVAGNAR KÓPAVOGS Leiðakerfi Nýtt leiðakerfi SVK tók gildi 7. desember, og féllu þá niður aukaferðir, sem tilheyrðu gamla leiðakerfinu. Vagnar SVK munu aka bæði i Austurbæ og Vesturbæ, sömu leið, hver á eftir öðrum. FOSSVOGUR Nýþýlavégur ^bcsnest Borgorhoitsbrout Kopavogsbraut V, j. XOPAVQGUR Bæklingur um leiðakerfi hefur verið borinn út til bæjar- búa. STRÆTISVAGNAR KÓPAVOGS

x

Ný þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.