Ný þjóðmál - 01.07.1976, Síða 1

Ný þjóðmál - 01.07.1976, Síða 1
MALGAGN JAFNAÐAR- OG SAMVINNUMANNA- Gerum myndar- legt lokaátak • í gær, 30. júní, var dregið í 4. og síðasta flokki happdrætti Samtakanna 1976. Vinningsnúmerin voru innsigluð og verða þau ekki birt fyrr en seinni hluta júlímánaðar. Þann tíma, sem eftir er þar til vinningsnúmerin verða birt, er því hægt að nota til þess að gera skil i 4. flokki happdrættisins. • Allir þeir, sem fengið hafa miða senda, eða tekið hafa miða í sölu, eru hvattir til þess að gera skil um miðjan júlí í síðasta lagi. GERUM LOKAÁTAKIÐ I HAPPDRÆTTINU MYNDARLEGT! • Eins og kunnugt er var dregið í 3. flokki happ- drættisins 31. maí siðastliðinn, og voru vinnings- númerin innsigluð. Það innsigli hefur nú verið rof- ið, og féllu vinningar í 3. flokki sem hér segir: 1. vinningur kom á miða nr. 107, 2. vinningur á miða nr. 487, 3. vinningur á nr. 32, 4. vinningur á nr. 156, og 5. vinningur á miða nr. 5. • Sérstök áhersla er lögð á nauðsyn þess að sala og endurnýjun miða í 4. flokki happdrættisins takist vel. • Miðar í 4. flokki eru, eins og í hinum fyrri f lokkum, 500 talsins, og kostar hver miði 1000 krón- ur. • Hægt er að fá miða keypta á skrifstofu Samtak- anna að Ingófsstræti 18, Reykjavfk. Þangað ber einnig að gera skil fyrir senda happdrættismiða. Símarnir eru: 27075 og 19920: HAPPDRÆTTI SAMTAKANNA Spá Þjóðhagsstofnunar fyrir árið 1976: Kaupmáttur launa minni en í fyrra Að venju hefur Þjóð- hagsstofnunin sent frá sér yfirlit um ástand og horfur í efnahagsmálum landsmanna nú um mitt árið. i þessu yfirliti kem- ur fram mat efnahags- sérfræðinga á þróun mála að undanförnu og spá þeirra um afkomu þjóðarbúskaparins á ár- inu í heild. i þessu yfirliti koma m.a. fram eftirtalin atriði: Fyrstu fjóra mánuði ársins var heildarafli landsmanna 522 þúsund tonn, en var 647 þúsund tonn á sama tima i fyrra. Mest munar um minni loðnuafla, þar sem botnfiskaflinn var aðeins 7 þúsund tonnum minnien i fyrra. Verðmæti sjávaraflans á föstu verðlagi er 5.5% minna en 1975. Þjóðhagsstofnunin spáir þvi, að heildarþorskafli iandsmanna á árinu verði 290-320 þúsund tonn, samanborið við 370-380 þúsund tonn i fyrra. Þessi áætlun er a 11- langt fyrir ofan það hámark, sem Hafrannsóknarstofnunin hefur gert tillögu um. Aætlað er að heildarfram- ieiðsla sjávarafurða muni minnka á þessu ári um lr-1.5% frá fyrra ári miðað við ofan- greindar forsendur. Fram kemur að verðlag út- fluttra sjávarafurða hefur farið mjög hækkandi að undanförnu og var það í maí lok tæplega 35% hærra I islenskum krónum að meðaltali en 1975. Áætlað er að allt árið verði verðlagið um 29% hærra en i fyrra. Af þessum sökum og vegna grósku i iðnaði ýmiskonar, er þvi spáð, að út- flutningsframleiðslan I heild verði óbreytt frá fyrra ári, eða muni aukast eitthvað. Þjóðarframleiðslan I heild er talin munu minnka um 2—3%, en vegna verulega batnandi við- skiptakjara munu þjóðartekjur minnka mun minna, eða um 0.5—1.5% Viðskiptakjörin voru á 1. árs- fjórðungi 1976 um 3.5% betri en að meðaltali 1975. Mestu máli skiptir þar hækkun á útfluttum sjávarafurðum, sem áður er nefnd. t heildina er talið að við- skiptakjörin muni batna um 7% að meðaltali 1976. Gengi íslensku krónunnar hefur farið stöðugt lækkandi það sem af er þessu ári. S.l. ár var verð erlendra gjaldmiðla 56.5% hærra f krónum en árið á undan og siðan hefur gengið áfram farið lækkandi. Gjaldeyris- staðan var neikvæð um 5.640 milljónir í lok apríl 1976. Greiðslubyrði erlendra skulda hefur aukist verulega að undan- förnu, enda hafa erlendar ián- tökur verið meiri undanfarin tvö ár en á árunum 1971—1973, auk þess sem vextir hafa hækkað og lánstimi yfirleitt styst á alþjóðlegum lána- markaði. Greiðslubyrðin var að meðaltali 11% árin 1970—1974. t fyrra jókst hún á 14.8% og stefnir i 18—19% á þessu ári og gæti enn aukist á næstu árum jafnvel þótt útflutningstekjur ykjust, segir i yfirlitinu. Búist er við nokkrum sam- drætti i atvinnu á árinu, en ekki er búist við alvarlegu atvinnu- leysi. 1 fyrra minnkaði bygg- ingastarfsemi um 3% og I ár mun hún væntanlega minnka um 6% miðað við síðasta ár, og yrði hún þá um 9% minni en á árinu 1974. Þetta hefur veruleg áhrif á atvinnuástand. Verðhækkanir hafa sem kunnugt er orðið meiri en spáð hefur verið, og i yfirlitinu kem- ur fram, að sfðustu spár um verðbreytingar bendi til þess að visitala framfærslukostnaðar hækki um 28% frá ársbyrjun til ársloka. Sambærilegar verð- hækkanir hafi verið 37% i fyrra og 53% árið 1974. Þá er talið að framfærsluvisitalan verði um 30% hærri að meðaltali f ár en i fyrra. Talið er i yfirlitinu, að kaup- máttur kauptaxta allra laun- þega muni verða um 3% minni i ár cn i fyrra. Og kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna er talinn verða um 3% lakari i ár en á siðasta ári. Þjóðarútgjöldin eru áætluð um 4% minni á árinu en f fyrra. Einkaneyslan mun standa nokkurn veginn i stað. Fjár- munamyndun mun samkvæmt áætluninni minnka um 8%. Eins og þessi ineginatriði Framhald á bls. 6. LÍFEYRISSJÓÐIRNIR OG VERÐBÓLGAN 1974 Raunveruleg ávöxtun var 7.2 % en hefði þurft að vera 48.5 %! Um síðustu áramót námu eignir þeirra um 95 lifeyrissjóða, sem starf- andi eru í landinu, um 19 þúsund milljónum króna, en ráðstöfunarfé þeirra það ár nam um 6000 milljónum króna. Þessar tölur gefa nokkra hug- mynd um, hversu umfangs- mikið lifeyrissjóðakerfið e'r þegar orðið og fer það þó alltaf stækkandi með hverju árinu sem liður. 95 sjóðir Ef nánar er litið á þá lifeyris- sjóði, sem nú starfa, má greina þá i þrjá meginflokka. 1 fyrsta lagi eru það almennu lifeyrissjóðirnir, sem sam- komulag náðist um i almennu kjarasamningunum i mai 1969. Þessir sjóðir tóku til starfa árið 1970 og eru 26 talsins. Þeir hafa myndað með sér samtök, sem nefnast Samband almennra lif- eyrissjóða. t öðru lagi eru það ýmsir lög- boðnir sjóðir og lifeyrissjóðir rikisbankanna, en þessir sjóðir eru niu talsins og hafa þá sér- stöðu, að þeir greiða yfirleitt verðtryggðan lifeyrir. I þriðja lagi eru það svo sjóð- ir einstakra stéttarfél. eða starfshópa. Þessir sjóðir hafa yfirleitt starfað lengur en al- mennu lifeyrissjóðir verkalýðs- félaganna og munu nú vera um 60 talsins. Skuldabréfakaup Á árinu 1975 keyptu lifeyris- sjóðirnir i landinu verðtryggð skuldabréf frá Byggingasjóði og Framkvæmdasjóði fyrir alls 1028,4 milljónir kr. Samkvæmt upplýsingum Seðlabanka ts- lands var áætlað ráðstöfunarfé lifeyrissjóðanna á árinu 1975 5580 milljónir kr. Lifeyris- sjóðirnir keyptu þvi verðtryggð skuldabréf á árinu 1975 fyrir um 18,4% af ráðstöfunarfé sinu. S k u 1 d a b r é f a k a u p frá Byggingasjóði námu alls 804,8 milljónum kr. en frá Fram- kvæmdasjóði 223,6 milljónir kr. Aætlað ráðstöfunarfé þeirra lifeyrissjóða, sem stóðu að sam- komulaginu um málefni lif- eyrissjóðanna frá 28. febrúar s.l. nam á árinu 1975 4386 milljónir kr. Þeir sjóðir keyptu þvi alls verðtryggð skuldabréf fyrir um 18.1% af ráðstöfunarfé sinu á árinu 1975. Aðildarsjóðir SAL keyptu á árinu 1975 verðlryggð skuldabréf Byggingasjóþs fyrir 302,3 milljónir kr. Ekkert var keypt frá Framkvæmdasjóði. Áætlað ráðstöfunarfé áðildar- sjóða SAL á árinu 1975 nam alls 1645,4 milljónir kr. Aðildar- sjóðirnir keyptu þvi alls verð- tryggð skuldabréf Bygginga- sjóðs fyrir um 18,4% af ráðstöfunarfé sinu á árinu 1975. I báli verðbólgunnar Eins og áður sagði, er talið, að ráðstöfunarfé lifeyrissjóðanna hafi á siðasta ári numið um 6000 milljónum króna. óðaverðbólgan sér hins vegar um að rýra mjög fjármagn sjóð- anna. Framhald á bls. 6. SPARIFÉ ALMENNINGS BRENNUR Á BÁLI ÓDA VERÐBÓLGUNNAR

x

Ný þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.