Ný þjóðmál - 01.07.1976, Qupperneq 6

Ný þjóðmál - 01.07.1976, Qupperneq 6
FIMMTIWAGUR 1. JCLI 1976 6 N Ý ÞJÓÐMÁL Andrés Framhald af bls. 5. þvi, að leiðaraorð Þórarins i Tlmanum væru i senn sönn viljayfirlýsing Framsóknar- flokksins og eitthvað meira en fyrri innantóm orö um svipaö efni, og á bak við þau væri vilja- styrkur til að fylgja þeim eftir, þvi að sú staðreynd verður ekki sniðgengin, að herinn fer ekki héðan á næstu áratugum, nema fólkið i Framsóknarflokknum gefi slikum orðum inntak i verki og knýi forystumenn flokksins til að standa við orð sin - eða kjósi sér nýja. Fyrir kosningarnar 1974, er Framsóknarfl heyktist i annað sinn á þvi að standa við yfirlýs- ingar sinar um brottför hersins taldi ég mig fa fullvissu um það, að hann gæti aldrei unnið þetta sjálfstæðisverk I þágu þjóöar sinnar, —að láta herinn fara— þvi að til þess yrði hann að sprengja sjálfan sig i loft upp. Nú virðist hafin i Timanum ný söfnun orða i brottfararyfir- lýsingu fyrir næstu kosningar. Nú er að sjá, hvort viljinnfylgir loks i þriðju tilraun - og allt er þá þrennt er. Llklega ætlar flokkurinnaðfara þessá leit viö þjóðina, að hann fái að endur- taka þetta landspróf sitt I þriðja sinn-landsprófið um það, hvort hann er fær um að standa við stefnuyfirlýsingar sinar eða ekki. Það yrði mikil endurreisn þeim flokki, sem einu sinni var skeleggur, þjóðhollur og orð- heldinn I anda ungmenna- félaganna og gaman ef manni entistaldur til að eiga sálufélag við hann endurfæddan. Og þá mundi lika lagður grunnur að nýju og traustu samstarfi vinstri manna i iandinu. Einn helsti postuli 1 e i g u s öl u m a n n a , Aron Guðbrandsson, sem ég les ætiö með áhuga sakir hreinlyndis hans og vigreifs málflutnings, vitnaði i grein á dögunum til dæmis Jóns Sigurðssonar til stuðnings málstað sinum. Hann minnti á, að Jóni hefði vel þótt hæfa að krefjast hárra gjalda af Dönum fyrir afhroð, sem islenska þjóðin hefði goldið á löngum, svörtum öldum I á- þján þeirra. Jafnvel hann hefði viljaö taka greiðslu fyrir afnot og arð af landinu og þjóðinni. Ekki væri leiðum að likjast. Þetta var ágæt tilvitnun, og við skulum einmitt hafa þessa afstöðu Jóns að leiðarljósi i her- málinusem flestum sjálfstæðis- málum öðrum — en við skulum fylgja dæmi hans rétt og af heiðarleika. A þaðskorti nokkuö hjá Aroni. Jón Sigurðsson stakk aldrei upp á þvi, að við leigðum Dönum land um óákveðna framtið. Aðalkrafa hans var sú, aö þeir færu og hættu afskiptum sinum hér, en um leið og þeir færu ættu þeir að greiða vænar fjárfúlgur fyrir unnar skemmdir og skaða. Fylgjum nú dæmi Jóns, sem Aronvitnaði til.Látum það vera ófrávikjanlega meginkröfu, að herinn fari, en um leiö og hann kveður getum við gjarnan —aö dæmi Jóns— sýnt honum, Bandarikjunum og Nató reikning fyrir ýmsu tjóni á liðnum tima. Þá getum viö krafist að hann borgi að- flutningsgjöldin.afnot af vegum og flugvöllum, niðurgreiðslur landbúnaðarvara og fleira, sem herinn á ógreitt að islenskum lögum. Aðalkrafa Jóns var að Danir færu, og hlitum þvi dæmi hans einnig um erlenda herinn. Andrés Kristjánsson. Blaðamennska Framhald af bls. 4. þeim eftir á þeim grundvelli. Allt viröist við það eitt miðaða að blaðið geti orðið nógu „krassandi” og selst i sem stærstu upplagi. Hefur oröið Laus staða Staða húsvaröar við Menntaskólann við Tjörnina (við Gnoðarvog i Reykjavik) er laus tii umsóknar Laun skv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum, um fyrri störf, sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 8. júli n.k. Menntamálaráðuneytið, 10. júni 1976. Styrkir Sameinuðu þjóöirnar bjóða fram styrki til rannsóknar á ýmsum málefnum er varöa mannréttindi. Styrkirnir eru einkum ætlaðir embættismönnum er vinna að málefnum á sviði mannréttinda. Sérstök nefnd á vegum Sameinuðu þjóöanna velur styrk- þega úr hópi umsækjenda og metur upphæð styrksins I hverju tilfelli. Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamála- ráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reýkjavik, fyrir 15. júli n.k. Nánari upplýsingar fást I ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið,, 21. júni 1976. Söluskattur Viðurlög falla á söluskatt fyrir máimánuö 1976, hafi hann ekki verið greiddur i siöasta lagi 25. þ.m. Viðurlög eru 2% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin 10% en siðan eru viðurlögin 1 1/2% til viöbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. degi næsta mánaöar eftir eindaga. Fjármálaráðuneytið 18. júni 1976. Ritari óskast til vélritunarstarfa i 3-4 mánuði. Góð vélritunar- og islenzkukunnátta nauðsynleg. Dóms- og kirk ju m álar áðuney tið, 11. júni 1976. Lausar stöður Staða löglærös fulltrúa I iðnaðarráðuneytinu er laus til umsóknar. Laun skv. hinu almenna launakerfi opin- berra starfsmanna. Umsóknir sendist ráðuneytinu fyrir 1. júli n.k. Staða rafmagnsveitustjóra rikisins er laus til umsókn- ar. Um laun og starfskjör fer samkvæmt gildandi lög- um og samningum opinberra starfsmanna. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu lagðar inn til iðnaðarráðuneytisins fyrir 15. júli 1976. Iðnaðarráðuneytið 9. júni 1976. Auglýsing um umsóknir um starfslaun rithöfunda Hér meö eru auglýst til umsóknar starfslaun úr Launa- sjóöi rithöfunda samkvæmt lögum nr. 29/1975 og reglu- gerð gefinni út af menntamálaráöuneytinu 9. júni 1976. Rétt til greiðslu úr sjóönum hafa islenskir rithöfundar og höfundar fræðirita. Heimilt er og að greiöa laun úr sjóön- um fyrir þýöingar á Islensku. Starfslaun eru veitt samkvæmt 26. launaflokki opinberra starfsmanna (byrjunarþrepi) skemmst til tveggja og lengst til niu mánaða I senn. Höfundur, sem sækir um og hlýtur starfslaun þrjá mánuði eöa lengur, skuldbindur sig til að gegna ekki fastlaunuðu starfi meðan hann nýtur starfslauna. Slik kvöö fylgir ekki tveggja mánaða starfslaunum, enda skulu þau ein- vörðungu veitt vegna verka sem birst hafa næsta al- manaksár á undan. Skrá um birt ritverk höfundar siöastliöin fimm ár og verk, sem hann vinnur nú aö, skal fylgja úmsókninni. Þeim, sem sækja um starfslaun vegna fræðirita, ber að geta styrkja sem þeir hafa hlotið til verksins. Umsóknarfrestur aö þessu sinni er til 15. júli 1976. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu,Hverfis- götu 6, Reykjavik. Reykjavik, 15. júni 1976. Stjórn Launasjóðs rithöfunda. Til lesenda Vegna sumarleyfa starfsfólks mun næsta tölublað Nýrra Þjóð- mála ekki koma út fyrr en í lok júlimánaðar. Þéttbýli Framhald af bls. 2 ibúa. Þannig hafa 186 lönd færri ibúa en New York: • New York 11 529 Nepal 11 470 Malaysia 11 450 • Tokyo 11 408 Venezuela 11 108 • Shanghai 10 820 Uganda 10 479 Hungary 10 398 Iraq 10 070 Chile 10 040 Portugal 9 803 Belgium 9 710 Ghana 9 086 Greece 8 940 Cuba 8 750 • Mexico City 8 590 Bulgaria 8 579 # Buenos Aires 8 436 • Paris 8 197 Sweden 8 120 # Sáo Paulo 8 062 Mozambique 7 962 Saudi Arabia 7 616 • Peking 7 570 Austria 7 490 Madagascar 7 400 # London 7 345 Cambodia 7 343 # Rio de Janelro 7 094 # Moscow 7 061 # Los Angeles 7 032 # Calcutta 7 031 # Chicago 6 979 Syrian Arab Rep 6 740 Ecuador 6514 Switzerland 6 280 Cameroon 6 084 Yemen Arab Rep. 6 060 • Bombay 5 971 Rhodesia 5 690 Angola 5 644 Guatemala 5 623 Upper Volta 5 613 # Seoul 5 536 Ivory Coast 5 400 Tunisia 5 340 Mali 5 260 Bolivia 5 194 • Calro 5 126 Guinea 5 100 Denmark 4 990 # Philadelphia 4 818 Malawi 4 711 Finland 4 630 # Djakarta 4 576 Zambia 4 515 Haiti' 4 377 Niger 4 250 Dominican Rep. 4 234 # Detroit 4 200 Hong Kong 4 077 mjög hörð samkeppni á þessu sviði, einkum meðal siðdegis- blaðanna. Það skal þó tekið fram aö stundum hefur orðið vart viðleitni hjá þessum blöðum til jákvæðrar umfjöll- unar um vandamálin en sú við- leitni hefur mjög fallið I skugg- ann fyrir æsiskrifum. Skrif blaöa að undanförnu gefa fullt tilefni til að álykta að menntun blaðamanna og þekkingu sé mjög ábótavant. Augljóst er að margir þeirra, sem starfa við blöðin nú valda ekki verkefninu. 1 skrifum þeirra um hin ýmsu málefni úir og grúir af hvers kyns mis- sögnum og bágbiljum. Þeir gera sig hvað eftir annað bera aö fullkominni fáfræði um sjálf- sögðustu hluti svo sem um stofnanir þjóðfélagsins, eðli þeirra og hlutverk. Blaðamaður á að vera upplýsandi i skrifum slnum og ber að leitast við að gera lesendum kleift að átta sig á kjarna hvers máls. Þessvegna veröur hann að þekkja svið málsins og bakgrunn. Skrifi hann um mál án slikrar þekkingar er hætt við aö mynd hans verði skæld og leiöi til rangra ályktana af hálfu lesenda. Með sliku bregst hann hrapallega hlutverki sinu. Þráttfyrir dapurlega mynd af islenskri blaðamennsku um þessar mundir er ástæðulaust að ætla aö Eyjólfur muni ekki hressast. Meðal islenskra blaðamanna finnast vissulega menn, sem trúandi er tíl góðra hluta og gera sér grein fyrir hlutverki frjálsra blaöa. Ber að vonaað þeirmuni beita áhrifum sinum i þá átt aö þessu hlutverki verði sinnt i framtlðinni með meiri reisn en verið hefur. Noröri. Flugleiðir Framhald af bls. 5. Þess má geta að yfir sumar- mánuðina, þegar starfsemin er i hámarki, fjölgar starfsfólki verulega. 1 skýrslu stjórnar kom fram að á næstunni yröi timabært að hefja undirbúning að aukningu flugflota félagsins og að ekki yrði komist hjá aukningu fyrir sumarið 1977. Lyfsöluleyfi, sem forseti íslands veitir Lyfsöluleyfi i Reykjavik, Ingólfs Apótek, er laust til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. ágúst 1976 og leyfið veitist frá 1. nóvember 1976 Gert er ráð fyrir að lyfjabúðin annist af- greiðslu lyfja til skipa á sama hátt og áður. Samkvæmtheimildí32. gr. lyfsölulaga nr. 30/1963 er viðtakanda gert skylt að kaupa vörubirgðir og áhöld lyfjabúðarinnar. Umsóknir sendist landlækni. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 29. júni 1976 Laus staða Við Bændaskólann á Hvanneyri er laus til umsóknar staða kennara við bændadeild og búvisindadeild Bændaskólans með fóðurfræði og lifeðlisfræði sem aðal- kennslugreinar. Laun samkvæmt launakerfi strfsmanna rikisins. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar landbúnaðar- ráðuneytinu fyrir 31. júli 1976. Landbúnaðarráðuneytið, 24. júni 1976.

x

Ný þjóðmál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný þjóðmál
https://timarit.is/publication/553

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.