Kvennasmiðjan - 24.10.1985, Qupperneq 2
Avarp
Kvennaáratug Sameinuöu þjóöanna er
aö ljúka. I dag 24. október 1985 opnar
Kvennasmiðjan.
Á tíu ára afmæli kvennafrídagsins á Is-
landi er nú opnuö sýning í Kvennasmiðj-
unni til að vekja athygli á vinnuframlagi
og launakjörum kvenna.
Kjörorö sýningarinnar eru: KONAN —
VINNAN - KJÖRIN.
Kvennasmiöjan í Seölabankanum
verður opin í vikutíma. I smiöjunni gefst
kostur á að kynnast atvinnuþátttöku
kvenna í þjóðfélaginu.
Hér veröa konur viö störf. m.a. bakari,
söölasmiður, skósmiður, læknir, fóstra,
kennari, setjari, snyrtifræöingur og neta-
gerðarmaður. Konur munu í verki, máli
og myndum kynna hér störf sín og kjör.
sín og kjör.
Þessari sýningu er meðal annars ætlaö
það hlutverk að vekja athygli á því aö
konur hafa líka sótt í starfsgreinar sem
ekki teljast hefðbundnar kvennagreinar.
Sýningunni er líka ætlað þaö hlutverk að
sýna aö atvinnuþátttaka kvenna hefur
aukist gífurlega á kvennaáratugnum.
Kjörin eru ekki í samræmi viö vinnu-
framlagið. Efnahagslegt sjálfstæöi er
undirstaöa aö sjálfstæöi hvers einstakl-
ings. Því veröa konur aö vera samtaka í
lokaátakinu í jafnréttisbaráttunni, sem
er aö fá sömu laun fyrir sömu vinnu. Fyrr
verður ekki jafnrétti í raun á íslandi.
Fyrir tíu árum var blásið í lúöra.
Reyndar gáfu formæður okkar upp rétta
tóninn viö landnám.
Hljómurinn er enn tær í loka kvenna-
áratugarins.
Kvennasmiöjan er orðin að raunveru-
leika. Hún er vottur um samstöðu
kvenna, getu, þor og kraft.
Krafturinn úr Kvennasmiðjunni fylgir
konum vonandi í launabaráttunni sem er
framundan.
Meö þessum orðum er Kvennasmiöj-
unni, blaöi sýningarinnar, sem bás 15
gefur út, fylgt úr hlaði.
Þórunn
Nokkrar úr undirbúningshópnum gera grein fyrir
stöðu mála á fundi með fulltrúum þátttakenda. F.v.
Ólöf, hönnuður sýningarinnar, Ragnheiður fram-
kvæmdastjóri, Annie, Ingibjörg, Þórunn, Ingibjörg
Sólrún og Arndís.
Undirbún
ingurinn
Síöastliöiö vor skip-
aði ’85 nefndin konur í undirbúnings-
hóp til aö vinna aö aögeröum 24. októ-
ber.
I undirbúningshópnum eru sjö
konur. Þær eru Alfheiður Ingadóttir
blaöamaður, Annie G. Haugen félags-
ráðgjafi, Arndis Steinþórsdóttir viö-
skiptafræöingur, Ingibjörg R.
Guömundsdóttir skrifstofumaöur,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar-
fulltrúi, Jóhanna Siguröardóttir
alþingismaöur og Þórunn Gestsdóttir
blaðamaöur.
Hópurinn hefur skrifaö fjölmörg
bréf, haldiö ótal fundi og kastaö fram
hundruöum hugmynda.
Nú, þegar upp er staðiö, hefur hópur-
inn undirbúiö útifundinn á Lækjartorgi
og sýninguna í Seðlabankanum
Kvennasmiðjuna. Konur í hópnum
hafa einnig skrifað undir áskorun til
kvenna um aö leggja niður störf í dag.
Þaö var strax í vor sem hugmyndin
um sýningu á störfum kvenna og kjör-
um kom fram.
Leit hófst að húsnæöi. Á einum há-
degisfundi hópsins í sumar var þeirri
hugmynd varpað fram að Seölabanka-
byggingin stæði ónotuð og nærri tilbú-
in.
Þaö var strax farið á vettvangskönn-
un. Þessi líka fína sýningaraðstaða
blasti viö! — síöar kom í ljós aö um var
að ræða framtíðarhúsnæði Reiknistofu
bankanna.
Stjórn Seölabankans brást mjög vel
við beiðni hópsins um afnot af þessu
húsnæði og leyfið var veitt.
Kann hópurinn yfirmönnum Seðla-
bankans bestu þakkir fyrir velvilja og
gott samstarf.
Þegar húsnæöiö var fundiö var
næsta skref tekið. Það var að skrifa öll-
um launþegasamtökum bréf og óska
eftir stuöningi og samstarfi viö að
koma þessari sýningu upp. Fagfélög-
um og stéttarfélögum var einnig skrif-
aö. Haldnir hafa veriö þrír fundir með
þátttakendum. Fyrsti fundurinn var
haldinn í Risinu Hverfisgötu 105 í
ágústlok. Annar fundurinn var haldinn
aö Hótel Hofi í september og sá þriðji í
október í Domus Medica. Fyrsti
fundurinn var fámennur en á þann síö-