Kvennasmiðjan - 24.10.1985, Síða 3
•Kvennasmiöjan
Ótrúlegt en settl Þannig leit sýningersvnflið út þegar framkvœmdastjóri hennar, Ragnheiflur Harvey, fór afl taka til höndunum í salnum.
asta mættu á annaö hundraö fundar-
menn.
Hjólin fóru að snúast af krafti í
septemberbyrjun. Þá var Ragnheiður
Harvey ráöin framkvæmdastjóri
sýningarinnar. Hönnuöir fengnir til
starfa, þær Olöf Þorvaldsdóttir og
Elísabet Cochran.
Og síöan koll af kolli. Hundruð
kvenna víöa um bæ hafa lagt hönd á
plóginn. 1 dag sjáum viö afrakstur af
góðu samstarfi kvenna. Kvenna-
smiðjan er orðin að veruleika. Þaö var
stundum sagt við konur í undir-
búningshópnum að þetta væri ekki
framkvæmanlegt. Blásiö var á slíkt
hjal.
Ástæða er til að óska konum til ham-
ingju með Kvennasmiðjuna.
Annar þáttur, sem undirbúnings-
hópurinn hefur staðiö að er útifundur-
inn á Lækjartorgi. Fjórir ræðumenn
voru fengriir og valið af mikilli kost-
gæfni. Launamál kvenna skyldu vera
umræðuefni ræðumanná.
Lokaátak kvenna á kvennaáratug-
um er að benda á launakjör kvenna.
Því voru kjörorð sýningarinnar valin:
Konan — Vinnan — kjörin.
-ÞG
Hvað er '85-
nefndin?
I ár er lokaár Kvennaáratugar
Sameinuöu þjóðanna, sem hófst árið
1976. Af því tilefni var sett á laggirnar
hér á landi samstarfsnefnd, svokölluð
’85 nefnd, sem hefur það að verkefni að
minnast þessa áratugar með ýmsum
hætti og vekja athygli á stöðu kvenna
hérlendis.
Nefndin var stofnuö að frumkvæði
undirbúningsnefndar Félagsmála-
ráðuneytisins vegna kvennaráðstefnu
S.Þ. í Nairobi 1985. I nefndinni eiga
sæti fulltrúar eftirtalinna samtaka:
Kvenréttindafélag Islands,
Kvenfélagasamband tslands, Kvenna-
framboð, Kvennalisti, Landssamband
Sjálfstæöiskvenna, Samband Alþýðu-
flokkskvenna, Landssamtök Fram-
sóknarkvenna, Kvennafylking Alþýöu-
bandalagsins, Framkvæmdanefnd um
launamál kvenna, Samtök kvenna á
vinnumarkaðnum, Friðarhreyfing
kvenna. Menningar og friöarsamtök
islenskra kvenna, Verkakvennafélagið
Framsókn, Verkakvennafélagiö
Framtíðin, Starfsmannafélagið Sókn,
Samtök um kvennaathvarf, Jafnréttis-
nefnd Kópavogs, Jafnréttisnefnd
Hafnarfjarðar, Jafnréttisnefnd
Keflavíkur og Jafnréttisráð.
Valin var 5 manna framkvæmda-
nefnd til þess að hafa yfirumsjón með
aögerðunum, en starfshópar hafa unn-
ið að sérstökum málum. I fram-
kvæmdahópnum sitja: Lára V. Júlíus-
dóttir, lögfræðingur, Jóhanna
Sigurðardóttir alþingismaöur, Sólveig
Ölafsdóttir framkvæmdastjóri, María
Pétursdóttir skólastjóri og Elín Páls-
dóttir Flygenring, framkvæmdastjóri.
Samstarfsnefndin hefur nú þegar
staðið að gróðursetningu tr jáa um land
allt og hátíðafundi á Þingvöllum þ. 19.
júní sl. í tilefni þess að þann dag voru
70 ár liöin frá því að íslenskar konur
fengu kosningarétt og kjörgengi til
Alþingis.
’85 nefndin stóö einnig fyrir undir-
skriftasöfnun undir friðarávarp ásamt
Friöarhreyfingu íslenskra kvenna,
sem afhent var á kvennaráðstefnunni í
Nairobií júlísl.
Listahátíð kvenna var haldin á
vegum ’85 nefndarinnar, en á hátíðinni
var sýnd myndlist, höggmyndalist,
húsagerðarlist og ljósmyndir, allt eftir
konur, haldin var sérstök kvikmynda-
hátíð kvenna, konur léku á tónleikum
eingöngu verk eftir konur, það voru
lesin ljóð og leikið o.fl. Þessi listahátíð
var sú fyrsta sinnar tegundar á Is-
landi. Hún markaði sérstök spor og gaf
yfirlit yfir listsköpun kvenna við lok
áratugarins. Á vegum ’85 nefndar-
innar var safnaö fé til samnorræns
þróunarverkefnis, sem hefur það
markmið að þjálfa konur til að annast
fræðslustörf um hreinlæti meðal
kvenna í löndum þriðja heimsins.
Enn er störfum ’85 nefndarinnar
ekki lokið: Nú er veriö aö leggja loka-
hönd á útgáfu bókarinnar „Konur,
hvað nú?” og mun hún koma út þ. 24.
október. Hópurinn réði ritstjóra, Jón-
ínu Margréti Guönadóttur, cand. mag.
og í bókinni verða eftirtalin sviö rædd
af konum, sem þekkja vel til mála á
sínusviði: Löggjöf, menntun, atvinnu-
þátttaka, laun, forysta, félagsleg
staða, heilbrigðismál, menningarmál.
Ef ágóði verður af útgáfu bókarinnar,
mun hann renna til Krabbameins-
félags Islands til kaupa á rannsóknar-
tækjum vegna krabbameins í brjóst-
um.
Elín Pálsdóttir Flygenring,