Kvennasmiðjan - 24.10.1985, Síða 5

Kvennasmiðjan - 24.10.1985, Síða 5
tillögu Kvennanefndarinnar að árið 1975 skyldi útnefnt sem Alþjóðlegt kvennaár S.Þ. Kjörorðin: Jafnrétti — Framþrðun — Friiur VOru samþykkt og starfið sem framundan var helgað eftirfarandi markmiðum: I. Jafnréttikarlaogkvenna. II. Að tryggja fulla þátttöku kvenna í heildarátaki til framþróunar, einkum með því að leggja áherslu á ábyrgð kvenna og mikilvægi þeirra í sambandi viö fjárhagslega og menningarlega þróun innan einstakra landa, heimshluta og á alþjóðasviði. III. Að viðurkennt verði mikilvægi aukins framlags kvenna til bættrar sambúðar ríkja og til eflingar heimsfriöar. Kvennanefnd S.Þ. var falin öll framkvæmd viðvíkjandi kvennaárinu og var Helve Sipilá, finnskur lögfræðingur, formaður nefndar- innar. Hún var þá aðstoðaraðalritari S.Þ. öll aðildarríki S.Þ. skyldu standa að aðgerðum í hverju landi fyrir sig til að fram- fylgja markmiðum kvennaársins, eftir aðstæðum á hverjum stað. Kvennaráöstefnur Sameinuðu þjóðanna Efnt var til alþjóðlegrar kvennaráðstefnu í Mexico City 19. júní—2. júlí 1975 og var meginverkefni hennar að semja frumvarp að alþjóðlegri áætlun um aðgerðir til bættrar stöðu kvenna í heiminum. Alisherjarþingið samþykkti áætlunina 15. desember 1975 og jafnframt að næsti áratugur skyldi helgaður aðgerðum til að hrinda áætluninni í fram- kvæmd. Áhersla var lögð á eftirfarandi at- riði: menntun, stjómmál, heilbrigðismál og fjölskyldumál. Því var beint til stjómvalda í aðildarríkjun- um að gera átak í þessum efnum og þau hvött til að setja ákvæði rnn jafnan rétt kynjanna í stjómarskrá eða löggjöf landa sinna. Á áratugnum hálfnuðum var önnur Kvennaráðstefna S.Þ. haldin í Kaupmanna- höfn 14—30. júlí 1980. Þar voru markmiðin sem kristallast í kjörorðunum: Jafnrétti — Framþróun — Friður áréttuð og jafnframt að næstu fimm árin skyldi megináhersla vera á: atvinnu, heilsu og menntun. Þriðja Kvennaráðstefna S.Þ. var í Nairobi í Kenya 15,—26. júlí 1985. Þar var metið hvað náðst hefði undanfarin áratug og samþykkt framkvæmdaáætlun til næstu aldamóta um áframhald aðgerða til að bæta stöðu kvenna í heiminum. Starf sem var víða hafið í aðildar- ríkjum S.Þ. en misjafnlega á veg komið. Það talar sínu máli að nú var tíminn sem þjóðunum var ætlaður til að ná árangri orðinn einn og hálfur áratugur — eða samanlagt frá upphafi kvennaársins einn aldarfjórðungur. Þarf raunar ekki f rekar vitnanna við um hver staða kvenna hefur veriö meðal þjóða heims. Erindi sem erfiði Eðlilegt er að spyrja hvort mannkyn hafi haft erindi sem erfiði viö að bæta stöðu kvenna og stuðla að jöfnum rétti og jafnri stöðu karla og kvenna. Hafa verður í huga að af þeim 159 þjóðum sem nú eiga aöild að S.Þ. eru aðeins 29 ríki sem flokkast undir skilgreininguna vestræn ríki og viðurkenna lýðræðislega stjómar- hætti. Menningarlegar, trúarlegar og stjóm- málalegar aðstæður eru svo gerólíkar eftir heimshlutum og þjóðfélögum að líkja mætti við — í því samhengi sem hér um ræðir — að sumir sitji við að læra stafina meðan aðrir stundi nám á háskólastigi. En mannkynið er í raun aðeins eitt sambýli og það hlýtur að vera skylda þeirra sem telja sig betur á vegi stadda að lyfta þeim sem verr eru settir. Og niðurstaðan af Alþjóðlega kvennaárinu 1975 og Kvennaáratug S.Þ. 11975—1985 er aug- ljós. Þjóðfélögin hafa ekki efni á því að snið- ganga konur. I þekkingu kvenna, verkkunnáttu og starfs- reynslu er fólginn forði til umsköpunar og endumýjunar mannlegra lifnaðarhátta og til að auka gæði mannlífs. Kvennaráðstefnumar hafa skapað viðmiðun og samkeppni þjóða í milli að ná sem mestum og jákvæðustum árangri. Konur hafa færst nær hver annarri og jafnframt lært að hafa heimssýn í huga þegar rætt er um sameiginleg málefni. Islenskar konur hafa fengiö tækifæri til að taka stöðu sína út og skerpa í vitund sinni hvað þær vilja með lífi sínu. Fleira mætti telja. Þaö var betur af stað farið en heima setið. Björg Einarsdóttir

x

Kvennasmiðjan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennasmiðjan
https://timarit.is/publication/568

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.