Dagur - 16.06.1998, Síða 2
2 - ÞRIÐJUDAGUfí 16. JÚNÍ 1998
AKUREYRI NORÐURLAND
Birta, vor og farfuglar
„Ég er svo tengd umhverfinu þegar ég vinn. Ég get t.d. ekki gert drungalegar vetrarmyndir yfir sumartímann,
segir Sveinbjörg. mynd: brink
Sveinbjörg Hallgríms-
dóttir opnaði nýverið
sýningn á Café Kar-
ólínn. Ilúii kennir í
VMA og rekur eigið
listagaHerí.
„Eg er svo tengd umhverfinu
þegar ég vinn. Eg get t.d. ekki
gert drungalegar vetrarmyndir
yfir sumartímann," segir Svein-
björg Hallgrímsdóttir, myndlist-
armaður í Gallerí Svartfugl á Ak-
ureyri. Sveinbjörg opnaði sýn-
ingu á Café Karólínu 6. júní
síðastliðinn. Þemað í sýningunni
er vorkoman: „Birtan, vorið,
koma farfuglanna og gróandans,"
segir Sveinbjörg.
Fékk snemma áhuga
Sveinbjörg er framhaldsskóla-
kennari að mennt og kennir við
Verkmenntaskólann á Akureyri
og kennir þar myndlist og búta-
saum. „Eg var atvinnulaus og
þurfti að búa mér til starf. Eg
byrjaði að þróa eins konar náms-
skeið í bútasaum og í framhaldi
af því bauðst mér kennarastaðan
f VMA.“ Auk þessa rekur Svein-
björg lítinn sýningarsal og vinnu-
stofu í Gallerí Svartfugl. Þar hafa
verið stöðugar sýningar síðan sal-
urinn var opnaður fyrir ári síðan.
„Þetta er búið að vera gefandi og
viðburðaríkur tími. Listafólkið
kemur víða að og sýningarnar
hafa verið fjölbreyttar. Akureyr-
ingar hafa líka verið duglegir að
saekja sýningarnar.“
„Eg hef alltaf haft áhuga á
myndlist. Eg byijaði að teikna
sem krakki og sem unglingur fór
þetta að mótast. Ég fór Iíka mjög
snemma í myndlistarnám. Það er
listhneigt fólk í ættinni." Svein-
björg var aðeins 16 ára þegar hún
hóf nám í Myndlista- og hand-
íðaskóla Islands og hún útskrif-
aðist þaðan 1978 og úr málara-
deild sama skóla 1992. Hún
stundaði einnig nám í Myndlista-
skóla Reykjavíkur.
Sýningin hlotið góð viðhrögð
„Ég tók nokkra kúrsa í grafík í
náminu mínu og ég vinn mest í
því núna. Þegar maður er með
svona opna vinnustofu eins og ég
þá er svo lítið samfellt næði til að
vinna á meðan sýningarsalurinn
er opinn. I grafíkinni er unnin
ákveðin hugmynda- og undir-
búningsvinna áður en sjálf þrykk-
vinnan hefst en hana má vinna í
áföngum. I málun vinn ég hins
vegar meira „spontant", í eigin
hugarheimi sem síður má rjúfa.
Þú tekur ekki upp þráðinn svo
auðveldlega. Það þarf meira næði
í máluninni en grafíkinni, a.m.k.
eins og ég geri þetta."
Sýning Sveinbjargar hefur
mælst vel fyrir. „Sýningin er björt
og glaðleg og viðbrögðin eru eftir
því. Þegar svona sýning er unnin
er lagt upp með ákveðið þema en
síðan tekur vinnslan völdin. Eitt
fæðist af öðru. Það myndast eins
konar flæði sem oft Ieiðir til
óvæntra úrlausna." Myndirnar á
sýningunni eru allar grafíkmynd-
ir unnar á kopar- og álplötur. Það
tók Sveinbjörgu jafnvel marga
daga að vinna sumar plöturnar
undir þrykk. „Ég nota ekki
ætingu og því eru plöturnar
grafnar með svokallaðri þurrnál
áður en þær eru þrykktar." Svein-
björg segist hafa gaman af
kennslunni en hún taki jafnframt
mikið af sköpunarkraftinum.
„Þess vegna er ég að reyna að
minnka hlut kennslunnar og
færa meiri tíma inn á vinnustof-
una.“ Nú stendur til að Einar
Gíslason grafíklistamaður komi
inn í starfsemina á Gallerí Svart-
fugli og með því vonast Svein-
björg til að hægt verði að auka
tækjakost og tækni og einnig að
henni gefist meiri tími fyrir Iist-
ina.
Framundan eru fleiri sýningar
hjá Sveinbjörgu og sú næsta
verður þann 26. júní en þá stend-
ur Grafíkfélagið fyrir samsýningu
grafíklistamanna í Listamanna-
skálanum hjá Einari Hákonar-
syni í Hveragerði. Sveinbjörg ætl-
ar að vera með sama þema, vorið
og farfuglana. -jv
Söntf- oö
skemmtihátíð
Mikil sönghátíð fer fram í stóru
tjaldi, tjaldi galdramannsins, að
Lónkoti í Skagafirði, um næstu
helgi. Hátíðin stendur á laugar-
deginum 20. júní frá kluldtan
14.00 til 18.00 en henni stjórn-
ar Björn Jósef Arnviðarson
sýslumaður. Þama koma fram
Karlakór Akureyrar-Geysir sem
verður með Iétta og skemmti-
lega söngdagskrá við allra hæfi
og Heilsugæslukórinn á Akur-
eyri. Allir Hðstaddir fá að þenja
raddböndin þv£ fjöldasöngur
mun þrýstast út í öll horn og af-
kima tjaldsins. Erlingur Sigurð-
arson mun flytja laust og bund-
ið mál um Sölva Helgason og
hagyrðingarnir Pétur Péturs-
son, Erlingur Sigurðarson og
Hjálmar Freysteinsson láta
gamman geysa undir styrkri
stjórn Birgis Guðmundssonar
aðstoðarritstjóra.
Um kvöldið mun svo hljóm-
sveitin Sixties sjá um að útlima-
gleði viðstaddra fái útrás fram á
nótt. GG
Mtnntngu Hákarla-
Jörundar haldlð á lofti
Upplýsiugamiðstöd
fyrir ferðameim opn-
uð á jarðhæð gamla
Syðsta-Bæjarhússins
á næsta sumri.
Endurbyggingu „gamla“ Syðsta-
Bæjarhússins í Hrísey, sem byggt
var árið 1885 og er friðlýst í dag,
miðar áfram, þó margur vildi sjá
það gerast hraðar. Búið er að
fletta klæðningunni af húsinu að
hluta en Ásgeir Halldórsson mál-
arameistari, sem ber hita og
þunga dagsins af þessum fram-
kvæmdum, segir að framkvæmd-
ir séu að mestu íjármagnaðar
með „betli“ en styrkur hafi feng-
ist á þessu ári frá Húsfriðunar-
sjóði að upphæð 1.200 þúsund
krónur, en það er í þriðja sinn
sem Húsfriðunarsjóður styrkir
endurbyggingu hússins. En bet-
ur má ef duga skal því áætlað er
að endurbygging hússins kosti
um 20 milljónir króna.
I húsinu verður opnað hákarla-
safn á efri hæðinni í minningu
Hákarla-Jörundar, og á neðri
hæðinni upplýsingamiðstöð fyrir
ferðamenn. Stefnt er að því að
ljúka í sumar við framkvæmdir á
framhlið hússins, þ.e. klæða það
götumegin og opna upplýsinga-
miðstöðina sumarið 1999, en
kostnaður við það er áætlaður
um 2 milljónir króna. Stofnaður
hefur verið félagsskapur um upp-
byggingu hússins sem heitir
Húsfélagið Hákarla-Jörundur og
er um 100 manns í félaginu,
meirihlutinn fólk sem búsett er
utan Hríseyjar en öllum er frjáls
þátttaka. Lágmarksárgjald í fé-
lagið er 500 krónur en margir
greiða meira. Félög og sjóðir hafa
einnig lagt endurbyggingunni
lið, m.a. Islenskar sjávarafurðir,
Menningarsjóður Sparisjóðs
Svarfdæla og Menningarsjóður
KEA. Kaupfélag Eyfirðinga hóf
verslunarrekstur sinn í Hrísey í
gamla Syðstabæjarhúsinu árið
1934 en flutti sig um set árið
1940. GG
Norrænt mót Sorop-
thnitassystra á Akureyri
Höfuðmarkmið
soroptimista er að
vinna að hetra iiiaim
lííi í hverfulum
heimi.
Soroptimistasystur á Norður-
löndum halda vinadaga á Akur-
eyri 19. til 21. júní nk. og taka
þátt í þeim hátt á þriðja hundrað
soroptimistasystur. Norrænir
vinadagar eru haldnir annað
hvert ár til skiptis á Norðurlönd-
unum og er þetta í þriðja sinn
sem þeir eru haldnir á Islandi.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver-
andi Forseti Islands, er verndari
vinadaganna og flytur aðalræð-
una á fundinum næsta Iaugardag
og forseti Evrópusambands
Soroptimista, Helen van
Themsche, mun verða á vina-
dögum ásamt öllum forsetum
Soroptimistasambanda Norður-
landanna.
Nafnið soroptimisti er dregið
af latnesku orðunum „soror op-
tima“, besta systir - bjartsýnis-
systir. Alþjóðasambandið er
málsvari kvenna um víða veröld
og það sameina dugandi konur
úr öllum starfsgreinum til að
vinna að eflingu dugandi
soroptimista og til samstarfs við
önnur samtök um að stuðla að
góðvild, skilningi og friði meðal
þjóða. Höfuðmarkmið soroptim-
ista er að vinna að betra mannlífi
í hverfulum heimi. GG
Fjölhreytt sumardag-
skrá Frostrásariimar
Sumardagskrá útvarpsstöðvar-
innar Frostrásinnar á Akureyri,
sem sendir út á FM-98,7; hefur
nú verið opinberuð. Þeir Dabbi
Rún og Siggi Rún verða fram-
vegis á morgnana milli klukkan
10.00 og 13.00 og hyggjast þeir
félagar skemmta hlustendum
með gleði og kærleika.
Alla fimmtudaga klukkan
19.00 er Holulistinn á dagskrá
og þar má heyra Iög sem alla
jafna heyrast ekki á öldum ljós-
vakans. Þátturinn Út um hvipp-
inn og hvappinn hyggst gera vfð-
reist í sumar en Bíóboltar verða
framvegis á sunnudögum klukk-
an 17.00. Viking I, topp 20 list-
inn, er á föstudögum klukkan
20.00 en síðan endurtekinn á
sunnudögum klukkan 19.00.
Fyrir þá sem vilja koma á fram-
færi óskalagi er árangursríkast
að hringja í síma 461-3987. GG