Tíminn - 19.05.1982, Blaðsíða 6

Tíminn - 19.05.1982, Blaðsíða 6
Fimmtudagur 19. mai 1982 „ÉG MUNDI ÞAKKA TRAUSTIÐ SEM MÉR VÆRI SÝNT” svaradi Egill Skúli er hann var spurður hvort hann mundi gegna borgarstjóraembættinu áfram, ef þess yrði farið á leit við hann ■ Egill Skúli Ingibergsson hefur þd sérstöðu meðal þeirra manna sem gegnt hafa starfi borgar- stjóra i Reykjavik.að hann er ráð- inn til starfsins sem embættis- maður og á ekki sæti i borgar- stjórn. Borgarstjóraefni Sjálf- stæðisflokksins hafa ávallt verið á lista flokksins og ákveðið fyrir kosningar, hver átti að verða borgarstjóri að þeim loknum. begar Sjálfstæðisflokkurinn missti meirihluta sinn i Reykja- vík i kosningunum 1978 og meiri- hluti vinstri flokkanna var mynd- aður kom þvi i hans hlut að á- kveða hveryrði borgarstjóri. Var Egill Skúli Ingibergsson verk- fræðingur ráðinn til starfans, og er óþarfi að orölengja um það að hann hefur gegn,t þvi með prýði og þeim virðuleik sem stööunni hæfir. I stefnuskrá Framsóknar- I manna i Reykjavik er þaö eitt af höfuðmálunum að fara þess á leit við Egil Skúla að hann gegni á- fram embætti borgarstjóra næsta kjörtimabil. Hér fer á eftir viðtal sem Tim- inn átti við borgarstjórann nú i vikunni um störf hans og viðhorf til þeirra mála sem borgarstjór- inn i Reykjavik þarf við að glima. bú ert fyrsti borgarstjórinn i Rcykjavík sem ekki kemur úr röðum kjörinna borgarfulltrúa, heldur ráðinn sem ópólitískur embættismaður. Hvernig finnst þér sjálfum að þessi tilhögun hafi reynst og hcfur starfið verið svip- að og þú gerðir þér hugmyndir um þcgar þú settist i borgar- i stjórastólinn fyrir nær fjórum ár- um ? — Ég vissi greinilega ekki að hverju ég var að ganga, það skal viðurkennt. En á hinn bóginn höfðu störf min um langan tima áður, fyrst og fremst verið stjórn- unarstörf svo að ég bar engan kviðboga fyrir nýja starfinu, en siðan hefur ýmislegt skeð sem ég hefði gjarnan viljað vita meira um, ég held samt sem áður að ekki fáist nema með reynslu. Maður verður að læra að mæta þeim viðfangsefnum sem upp koma. Enveran hér hefur verið mjög á- hugaverð. Maöur hefur kynnst svo ótrúlega mörgum hliðum mannlifsins sem ég held að von- laust sé að ætla sér að maöur geti kynnst annars staðar á sama máta. Þetta hefur verið mjög lær-. dómsrikt. fsg hef átt skemmti- lega og lærdómsrika samvinnu við fjölda manns. Réttara að hafaembætt- ismann í þessu starfi Hefur þaö háð þér i starfi aö vera ekki kjörinn borgarfulltrúi jafnframt að vera borgarstjóri, eða er það kostur að vera ópóli- tiskur embættismaður? — Mér virðist miöað við þá | vinnu, sem þvi fylgir að vera |hér embættismaður þó ekki sé bætt við pólitisku leiðtoga- starfi, sé nægur starfi, en hvoru- tveggja sé mjög mikið álag á einn mann, nánast svo mikið að ef hann ekki breytir sinni vinnutilhögun, þá sé hann oflest- aður. Að þvi leytinu held ég, að fenginni reynslu, að það sé féttara að hafa embættismann i þessu starfi, vegna þess að þa"ð sem ég er búinn að sjá til vinnubragða stjórnmálamanna sem leggja þar sig fram, að það sé of mikil vinna til þess að þeir sinni sinni köllun, að ég sé ekki að þeir geti sinnt hvorutveggja að fullu. Þar á ég von á að stjórn- málastörfin hljóti að hafa for- gang, þvi þeir eru fyrst og fremst kosnir sem leiðtogar en siður til að takast á við hin daglegu vandamál, leysa þau með öllu þvi kvabbi sem sliku fylgir. Hvernig finnst þér samstarfið við borgarfulltrúana hafa geng- ið? — Eg hef um flest átt mjög skemmtilegt samstarf við þessa borgarfulltrúa sem ég hef unnið mest með. Okkur hefur að sjálf- sögðu greint á i mörgum tilfell- um. Það er eins og hlýtur að vera manna á milli. En það hefur verið mér lærdómsrikt að kynnast þeim hliðum sem stjórnmála- mennirnir þurfa að koma að og ég vona að þeir hafi dregið einhvern lærdóm af þeim hliðum mála, sem ég hef snúið að þeim, með þeim bakgrunni, sem ég hef, en það er að vera verkfræðingur. Ég hef kannski lagt meiri áherslu á hinar reikningslegu niðurstöður, sem mér er þó ljóst að eru ekki alltaf einhlitar, siður en svo. Mismunandi sjónarmid Áður bcindist þin stjórnun ein- vöröungu að verklegum fram- kvæmdum. En að stjórna borg þar sem taka þarf tillit til allra hliða mála og hinn félagslegi þáttur er mikilvægari en hinn verklegi. Hvernig finnst þér hafa gengiö að samrýma þetta? — I svona stóru stjórnkerfi, eins og Reykjavikurborg er, þarf vissan tima til að átta sig á við- feðmi þeirra stofnanatsem hér eru^til að takast á við hin ýmsu vandamál, og að læra að nýta þær. Þegar manni hefur tekist það fara mál að finna sér ákveð- inn farveg. Við getum beint máli inn i þá farvegi til þess að flýta fyrir. Mörg málin eru svo per- sónuleg að maður hlýtur að þurfa að taka á þeim sjálfur, en það er nokkuð sem ég held að komi upp hjá öllum, sem við stjórn fást. Þeir komast ekki hjá þvi að þurfa að taka á persónulegum málum, sem þeir vilja ekki láta aðra fást við. Mál geta verið þess eðlis að maður ætlast ekki til þess af öðr- um að þeir taki af manni erfið- leikana. 1 borgarstjórn er meirihluti og minnihluti. Finnst þér há þér i störfum sá reipdráttur og ágrcin- ingur á milli þessara aðila á stjórnmálasviöinu? Hvernig kem- ur þetta við hina faglegu stjórn á borginni og þina afstöðu til við- fangsefna? — Það er ljóst þegar þrir flokkar mynda meirihlutann, að þeirra sjónarmið á ýmsum málum eru mismunandi. Það þýðir að ég reyni að tryggja mér afstöðu þeirra allra i þeim málum sem upp koma, og siðan vinna úr þvi. Það er kannski ekki alltaf sú afstaða sem ég hefði sjálfur kosið, en til þess að koma málum áfram hlýt ég að fara þá leið sem ég kemst næst þvi að fá alla sammála um. Það er lfka skemmtilegt að vinna á þennan hátt að prófa sig áfram og finna hvers vegna ekki svona, heldur einhvern veginn öðruvisi. Þetta hefur auðvitað i för með sér að viss mál taka meiri tima heldur en maður hefði fljótt á litið haldið að þau ættu að gera, en þetta er nauðsyn miðað við það stjórn- kerfi sem við höfum valiö okkur. Ánægjulegur árangur Getur þú nefnt eitthvcrt ákveð- ið mál eða málaflokk sem þú ert hvað ánægðastur með að hafa unnið að á kjörtimabilinu og hvað hefur valdið þér mestum von- brigðum i starfinu? Sá málaflokkur sem ég hef haft hvað beinust og persónulegust af- ■ Eitthvað skemmtilegt hefur farið milli þeirra Ólafs Jóhannessonar og Egils Skúla á fjölmennum fundi sem B-listinn I Reykjavfk hélt á dögunum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.