Ægir - 01.05.1912, Page 6
ÆGIR.
58
fisks hefur að líkindum verið veiddur við
ísland, en verkaður í Englandi.
Hversu mikið af áðurnefndum flski er
frá Færeyjum, er eklci unt að segja. Hve
mikið hefur verið ílutt til annara ítalskra
hafna af Islanda, og beina leið á járn-
braulum inn í landið, er óvíst, fyrr en
síðar á árinu.
Venjulegt verð á árinu var þetla:
í júlí . Smáf. ísa »Style«
l)Líra 70—72 60—62 60
- ágúst. — . 70—72 60—62 60—63
- sept. . — 75 65 63—68
- olct. . — 75—78 65—68 70—73
- nóv. . — 80—83 68—70 70—60
- des. . — 85 70 60
alt fyrir 100 kg. á vagn tolllaust og þar
frá að draga venjulegar % — sem sje 5
líra af smáfiski, 4,25 af ísu og 6 af »Stylc«
í þessu er innifaldir forvextir og miðlara-
laun — og fyrir fyrsta flokks vöru. Að
sama skapi minna fyrir lakari vöru. Af
öðrum fisktegundum komu:
Labrador................... 2,082,577 kg.
Lavé....................... 1,534,214 —
Harðfiskur................. 4,802,034 —
Enskur Salachi, Pilchords . 1,263,276 —
Spanskur Salachini . . . 1,462,195 —
Túnfiskur.................. 3,807,935 —
Síld....................... 2,666,615 —
Ansjósur og Sardínur . . 4,713,612 —
Samt. 22,332,558 icg.
Allur innfluttur fiskur til Genua til
ársloka vóg þannig um 27,535,829 kg„ en
árið áður 24,663,338 kg.
Af Islanda var ílult snögtum meira
inn þetta ár, en árið áður, en þess utan
af harðfiski og Sardin-ansjósum en þó
einkum af frönskum Lavé, en það á rót
sína að rekja til þess, að allir farmar af
Lavé njóta nú sömu hlunninda fluttir til
Genua og þeir áður nutu að eins íluttir
til Livorno.1)
Það vantar skýrslur um hversu mikið
af Lavé var ílutttil Livorno, en þangað komu
6 farmar af Labrador, samtals 1,036,770 kg.
Útlitið fyrir þetta ár er ekki gott að
dæma um nú. Sem stendur er markað-
urinn góður, þó er örðugt að selja ísu.
Sala hennar suður á bóginn — en þangað
fer það mesta af stórísunni — er nú úti-
lokuð með þvi, að verslunarliús í Kaup-
mannahöfn hafa selt þar minni sendingar
við lægra verði en hjer er krafist fyrir isu
í heilum förmum. Það er leitt að slíkt
skuli geta átt sjer stað.
Veðráttan en orðin mildari, en það
bætir ekki fyrir fiskmarkaðinum, því að
þá kemur meira af grænmeli og annari
ódýrari fæðu lianda þeim, sem annars
mundu borða fisk.
A þessu ári hefur það rnikið að segja
hvernig fiskiveiðar Frakka ganga og fiskið
við Labrador.
Það væri þó mjög misráðið afíslend-
ingum að freista hamingjunnar með því
að verka ennþá meira af »Style« en í stað-
inn verka minna af hinum góðkunna
smáfiski.
Ef flutt er í meira lagi inn af Lavé
og Labrador þar á eftir, dregur það óhjá-
kvæmilega úr sölunni á »Style«, og komi
mikið af þessum fiski, leiðir það til verðfalls.
Aftur á móti eru ýms hjeruð, sem nær
eingöngu brúka íslenskan smáfisk ogverði
skorlur á Islanda, verður afleiðingin sú,
að þangað verður einnig fluttur annar
fiskur, og þá verður alt það starf, sem
unnið liefur verið árum saman til þess að
skapa markað fyrir Islanda, til einskis.
1) Frakkar veita nú 10 franka verðlaun
fyrir hver 100 kg. af frönskum Lavé sem ílutt-
ur er til allra ítalskra liatna, áður galt pað að
eins fisk, fluttan til Livorno.
1) Liri — 72 aurar.