Ægir - 01.01.1927, Qupperneq 22
14
ÆGIR
það fengið 2500 kr. og Hörðafylki (amt-
sjóður) hefir lagt því til 3000 kr. Tillög
félagsmanna hafa numið einum 130 kr.
Fiskifélag Sunnmæra og Raumsdals
(Sunnmöre og Romsdalsfiskifélag) mun
vera stærsta fiskifélagið á Vesturlandinu.
Deildir þess eru taldar 49 í Fiskiinannaal-
manakinu, en ekki er þar getið um tölu fé-
lagsmanna. Prentaðar skýrslur þess náði
ég ekki í, en ég átti tal við kunnugan mann
i félaginu, fiskveiðaumsjónarmann, Knudt
O. Otterlei í Fjörtoft hjá Álasundi. Hann
hefir tekið mikinn þátt í almennum mál-
um á þessum slóðum, verið stórþingsmað-
ur í 3 kjörtímabil, en á ekki sæti á þingi
sem stendur. Hann kvað mjög erfitt að
halda fiskideildunum saman. Samtök ineð-
al sjávarmanna væru yfirleitt ófullkomin
enn þá, og væri þó all mikið gert að því að
glæða félagsskapinn með fundahöldum,
fyrirlestrum og hvatningum ýmiskonar.
Undanfarin ár hafði verið unnið að þvi að
koma á fót sölusambandi milli þeirra á
þessum slóðum, er selja nýjan fisk til Osló
og Austurlandsbæjanna, og væri nú slíkt
sölusamband nýlega komið á laggirnar.
Samlag þetta hefir með höndum sölu á
nýjum fiski félagsmanna, og mun tekið
við fiskinuin í Álasundi, en þaðan er hann
sendur með gufubát að Ándalsnesi í
Raumsdal og siðan með Raumdalsbraut-
j inni yfir Guðbrandsdal og til Osló. Hefir
sala á nýjum fiski aukist ákaflega mikið
síðan Raumsdalsbrautin var fullgerð 1921.
— Töluvert kvað hann og rætt um sam-
lagskaup á útgerðavörum, og væri að
nokkru leyti um samkaup að ræða á stein-
olíu, og hefir áður verið getið um það í
frásögn af Hörðalandsfélaginu. — Á stríðs-
árununi kvað hann hafa verið rætt um
það, að stofna til ríkiseinkasölu á stein-
olíu og hafi Gunnar Knudsen þáverandi
forsætisráðherra verið því fast fylgjandi,
en ekki hafi það þótt tiltækilegt ýmsra
hluta vegna. Steinolíuverslunin í Noregi
(vestanfjalls a. m. k.) er nú að mestu í
höndum „Norsk Brændselolie Co.“ og
„Vestlanske Petroleums Company“. Mun
hið síðarnefnda iniklu stærra félag. Má
hvervetna líta stóra olíugejmia þess, oftast
á liólmum utan við bæina, alla leið frá
Björgvin og norður á Finnmörk. Hlutafé
þess er sagt að niiklu leyti enskt.
Fiskifélag Norðurlands (Nordlands
Fiskeriselskab) er elst fiskifélaganna, að
„Selskáb for de norske Fiskeriers Fremme“
undanteknu, og er 46 ára. Það nær yfir
Norðurlandsfylki (Hálogaland hið forna)
og hefir heimilisfang í Bodey. í því eru 46
deildir og félagsmenn taldir um 1100.
Eg álti tal við formann félagsins, R.
Sannes, í Bodey. Gaf hann mér ýmsar upp-
lýsingar um starfshætti félagsins og lét
mér í té nokkrar prentaðar ársskýrslur
þess. Félag þetta er talið standa á nokkuð
fastari fótum en hin fylkjafélögin, hefir
lengra og meira starf að baki sér og nokk-
uð meiri fjárráð, en þó mega tekjur þess
litlar heita ef uni verulegar framkvæmdir
væri að ræða. — Reikningsárið 1924—25
sé ég að fél. hefir haft 18 þús. kr. tekjur.
kr. Ríkissjóðsstyrk hefir félagið fengið
rúm 4000 kr. Norðurlandsfylki hefir lagt
því til 1000 kr. og nokkur sveitafél. á þess-
um slóðuin 495 kr. Hitt eru tekjur, sem það
hefir fengið annarstaðar frá, t. d. til sam-
vinnufyrirlestra 3250 kr., og til eftirlits með
fiskverkun og umbúnaðar á ísuðum fiski til
innanlands sendinga. Hefir nokkru hærri
upphæð aftur verið veitt af félaginu til
þessa hvorutveggja.
Á yfirstandandi fjárhagsári er gert ráð
fyrir 33 þús. króna útgjöldum hjá félaginu.
Sagði mér fonnaður þess, að tilætlunin
væri að efla starfsemi þess til muna, og
framkvæma meira en félaginu liefði enn þá
tekist.