Ægir

Árgangur

Ægir - 01.02.1927, Blaðsíða 5

Ægir - 01.02.1927, Blaðsíða 5
ÆGIR. MÁNAÐARRIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS. 20. árg. Revkjavík, Febrúar 1927. Nr. 2. Benjamín Bjarnason. A síðastliðnu sumri lést á Þingeyri einn hinna nafnkendustu eldri bænda í Dýrafirði, Benjainín skipstjóri Bjarnason frá Múla, atorku- og atkvæðamaður. Síra Ivr. Daníelsson, áður prest- ur á Söndum, ritar þessi minningarorð um hann. — Benjamín var fædd- ur í Krossadal í Tálknafirði 17. mars 1851, sonur Bjarna Ingimundarsonar hrepp- stjóra á Sveinsevri og Sigriðar Jónsdóttur í Krossadal. Var honum komið í fóstur að Bakka í Tálknáfirði til systkina, er þar bjuggu, Guðmundar Gíslasonar og Elínar systur hans. Olst hann upp hjá Benjamin þeim fram undir tví- tugs aldur. En 19 ára gamall fór hann U1 hálfbróður sins, Árna B jarnasonar, óðalsbónda á Kvígindisfelli og dvaldi lijá honum í 4 ár. Þá fluttist hann að Gerð- hömrum í Dýrafirði til sér Jóns Jóns- sonar og konu hans, Sigríðar Snorradótt- úr. Þar kvæntist hann 2 árum síðar, 28. okt. 187(>, Guðrúnu Pétursdóttur, systur skipstjóranna Andrésar og Ólafs Péturs- sona og þeirra inörgu systkina, sem ínargt er frá komið vestra af merku og góðu fólki. Ari síðar fluttust þau að Núpi í Dýrafirði, sem vinnuhjú til Guð- ínundar óðalsb. Björns- sonar og konu hans, Þuríðar Gísladóttur, er nokkrum árum síðar fluttu vestur um haf, ásamt allstórum lióp útflytjenda, er þá (1886) fluttust af Vesturlandi. Árið 1880 flutlust þau Benjamín að Söndum í Dýrafirði. Var þá presfs- laust þar, en bjó þar svili séra Jóns, er áð- ur er nefndur, Berg- ur bóndi Einarsson og kona hans, Þorbjörg Snorradóttir, foreldrar Kristj. formanns Fiski- félagsins. Voru þau hjá þeim í húsmensku eitt ár en fluttu þá í hús- Bjarnason. mensku að næsta bæ, Múla, en þar bjó þá svili Benjamíns, Kristján bóndi Öss- ursson og kona hans, Ragnheiður Pétursdóttir, foreldrar þeirra Guð- mundar skipamiðlara og Kristjáns verk- stjóra, sem búsettir ern nú i Reykjavík. Árið 1885 fluttu þau Kristján frá Múla og fékk Benjamín þá ábúð á jörðinni og bjó þar sjðan allan búskap sinn, sem

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.