Ægir - 01.09.1975, Page 8
Bjöm B. Braaten:
Um þ róun fiskeldis í Noregi
Fyrstu tilraunir til að ala fisk í sjó, voru
gerðar árið 1912 í Noregi. Þá var reynt að ala
regnbogasilung í sjó, en árangur varð ekki
af því starfi.
Síðan liðu mörg ár, og það var ekki fyrr en
árið 1950, að reynt var á ný að ala regnboga-
silung í sjó í Noregi.
Nú er fiskeldi í sjó stundað nokkuð víða við
strendur Noregs, iog margir álíta, að þar sé
nú að þróast ný og vaxandi atvinnugrein.
Afskipti stjórnvalda af fiskeldismálum
voru lítil sem engin fyrstu árin, þannig að
þeir sem vildu hefja tilraunir og framkvæmd-
ir með fiskeldi nutu ekki fyrirgreiðslu opin-
berra aðila. Flestir af þeim sem hófu fram-
kvæmdir við fiskeldi höfðu litla reynslu, og
aðferðir þær sem beitt var við eldið voru
óhagkvæmar vegna kunnáttuleysis. í fyrstu
voru gerðar eldistjarnir fyrir regnbogasilung
með svipuðu sniði og gert hafði verið með
góðum árangri í Danmörku, og þannig var
reynt að aðlaga hina dönsku aðferð norskum
aðstæðum.
Mikill fjöldi af steyptum tjörnum var
byggður, og oft voru þessar tjarnir þannig
gerðar að hægt var að dæla í þær sjó og
blanda saman sjó og fersku vatni. Þá gerðu
margir tilraunir með að loka sundum eða vík-
um og ala fiskinn þar, en oft gleymdist að
huga að ýmsum umhverfisþáttum, eins og t. d.
hvort næg endurnýjun yrði á sjónum á þess-
um lokuðu svæðum, en það varð oft til þess
að illa tókst til með eldið. Aðalástæðurnar
fyrir því að illa gekk og starfsemin lagðist
sums staðar niður voru: 1) gegnumstreymið
var ekki nógu ört, 2) tjarnirnar voru ekki
rétt byggðar, 3) mengun, 4) sjúkdómar, 5)
ónóg kunnátta á sviði fóður- og næringar-
fræði. Þá höfðu fiskeldisbændur engin hags-
munasamtök til að selja framleiðslu sína og
halda verðlagi stöðugu. Á árunum 1965—66
komu upp mjög mikil markaðsvandamál, og
urðu þá mörg fiskeldisfyrirtæki að leggja
niður starfsemi sína. Af þeim 93 fiskeldis-
fyrirtækjum, sem voru starfandi árið 1960,
eru aðeins 17 starfandi nú. Regnbogasilungur
var eina tegundin, sem var framleidd fram til
1969, en þá hófst eldi á laxi í sjó.
Árið 1971 hljóp mikill fjörkippur í fiskeldi,
enda höfðu opinberir aðilar þá farið að sýna
málinu áhuga og veittu fé til starfseminnar,
einkum styrki til rannsókna.
Árið 1973 setti norska þingið lög um fjár'
veitingar, sem stuðla skyldu að stofnun físk'
eldisfyrirtækja, en Fiskimálastofnunin norska
hafði yfirumsjón með þessum fjárveitingum-
Þá var sett á laggirnar sérstök deild við Berg-
ensháskóla, sem stuðla skyldi að auknum
rannsóknum á sviði fiskeldis og fiskræktar'
Margar aðrar stofnanir störfuðu einnig í sam-
vinnu við Bergensháskóla að því að auka sem
mest þekkingu manna á þessu sviði. Þá stofu-
uðu þeir aðilar sem starfa að fiskeldi hags-
munasamtök árið 1970.
Tafla 1
Framleiðsla á regnbogasilungi og laxi
á árunnin 1962—1973.
Ár Regnboga- Lax Heildar-
silungur fram-
alinn alinn leiðsla
í fersku í sjó ísjó
vatni
Lestir Lestir Lestir Lestir
1962— ’66 200—600
1969 1000
1971 340 127 106 573
1972 567 202 152 921
1973 1050 144 256 1450 níl
1974 2500- -3000 1100 3600—4106
Staða fiskeidis í Noregi eins og hún er
Ekki eru til skýrslur yfir það magn sem
framleitt hefur verið af laxi og regnbogas1^
ungi nema fyrir síðustu árin. Eins og sja
á töflu 1 jókst framleiðslumagnið stöðug
254 — Æ GIR