Ægir - 15.06.1977, Page 36
Slóru togararnir
1976
Þegar meðfylgjandi töflur eru lesnar munu
margir sjálfsagt spyrja hvernig á því standi,
að úthaldsdagar skips geti verið fleiri en dag-
arnir í árinu. Ástæðan er sú, að úthald er
látið fylgja löndunardögum ársins og þegar
svo stendur á, að fyrsta löndun er rétt í árs-
byrjun og hin síðasta nálægt áramótum, þá
getur þetta skeð.
Togurunum fækkaði um einn á árinu. Vík-
ingur landaði síðast 6/5 og var þá lagt. Fór
síðan til Noregs 8/10 þar sem honum var
breytt með tilliti til veiða í hringnót og flot-
vörpu og telst því ekki lengur til togara.
Ver landaði síðast 29/3 og gekk ekki til
veiða eftir það. Var leigður til landhelgis-
gæzlu, laskaðist mjög við þau störf sem kunn-
ugt er og tók langan tíma að gera við
skemmdirnar. í árslok var hann seldur og
gefið nýtt nafn, Jón Dan GK 141.
Karlsefni var frá veiðum vegna bilunar
fyrri hluta árs og fór ekki af stað fyrr en
15/5. Snemma vetrar fór skipið tvo rann-
sóknarleiðangra á vegum Hafrannsóknastofn-
unarinnar og eru þeir taldir með í eftirfarandi
töflum. I þeim var aflinn 80,2 lestir, tog 137
togtími 145 klst. og úthald reiknað 29 dagai'-
Sólbakur var tekinn til rækilegrar viðgerð'
ar á árinu og lá frá maí til októberloka af
þeim sökum. Útgerð annarra skipa var að
mestu snurðulaus.
Eftir f jögurra ára hlé var reynt á Nýfundna-
landsmiðum þegar Júní fór þangað um miðj'
an maí, og var þar í tvo daga. Mikill ís va^
á miðunum og fengust aðeins 11,3 lestir á 2<
togtímum. Tog voru 18 talsins.
Um veiðar á Austur-Grænlandsmiðum verð-
ur ekki fjölyrt. Töflur um veiðar þar undan-
farin ár sýna ljóslega hvernig þær hafa
gengið. Aðeins ber að hafa í huga að veiði-
ferðir þangað eru oftar en hitt blandaðar
þannig, að líka er veitt á heimamiðum.
Og þá er komið að flotvörpunni. Flotvörp11'
afli skipanna hefur verið ákaflega misjaf^
þessi þrjú ár sem stóru togaramir hafa nota
flotvörpu, frá tveim lestum minnst upp í
lestir mest, miðað við slægðan fisk með haus-
Annar afli en þorskur var 1975; ufsi 0,7 °S
karfi 0,8 lestir. 1976 var karfi 56,5 lestir.
Minni togararnir
1976
Eftirfarandi tafla um afla og sókn togara af
minni gerð, 44 skuttogara og 2 síðutogara er
gerð með sama hætti og taflan um þá stóru,
nema sá munur er á, að heimtur á togskýrsl-
um hafa ekki verið nógu góðar. Vegna þeirra
sem vilja bera saman aflabrögðin frá ári til
árs er rétt að geta leiðréttinga á töflu ársn1
1975. Afli Dagnýjar var talinn 200 lesturn a
hár. Réttur afli var samtals 2672,0 lestir, Pa
af heimalandað 1932,7 lestir. Hjá Arnari v°
tog 1.477 og togtími 4.068 klst., og Páli Pa
syni tog 1.320 og togtími 3.463 klst.
212 — Æ G I R