Ægir - 15.08.1977, Side 7
RIT FISKIFÉLAGS ÍSLANDS
70. ÁRG. 14. TBL. 15. ÁGÚST 1977
Efnahagsstaða
fiskvinnslunnar
EFNISYFIRLIT:
Efnahagsstaða
fiskvinnslunnar 257
p Fiskimálanefnd
fnahags- og framfara-
stofnunarinnar (OECD) 258
Fiskverð:
á loðnu til beitu 261
Verð á fiskbeinum og
slógi 261
S'gurður RE 4 fyrsta ís-
lenska skipið sem fær
'nirad CD myndtölvu 262
^tgerð og aflabrögð 264
F’í'amleiðsla sjávaraf-
Urða 1. jan.—30. júní
1977 og 1976 269
't tækjamarkaðnum:
Hreinsibúnaður fyrir
dieselvélar 270
stýrisvélargerð frá
Tenfjord 270
Tilkynningar til
sjófarenda 271
Minningarorð:
Hörður Þorsteinsson
skipstjóri 272
J°n hogi Jóliannsson:
Um rækjuveiðar við
V.-Grænland 273
'ilögur stjórnar Fiski-
eiagg Islands um til-
^Un síldveiða haustið
1977 274
n Uöff 0g reglugerðir:
' " uSerð um síldveiðar 276
ÚTGEFANDI:
fiskifélag íslands
höfn. ingólfsstræti
SÍMI 10500
RITSTJÓRN:
MÁR ELÍSSON (ábm.)
JÓNAS BLÖNDAL
AUGLÝSINGAR :
GUÐMUNDUR
INGIMARSSON
UMBROT:
GÍSLI ÖLAFSSON
PRENTUN:
ÍSAFOLD
ÁSKRIFTARVERÐ
2000 KR. PR. ÁRG
KEMUR ÚT
hálfsmAnaðarlega
Um þessar mundir stendur
yfir úttekt á erfiðri efnahags-
stöðu fiskiðnaðarins í landinu.
Vart getur hjá því farið að
gera verði einhverjar þær ráð-
stafanir, sem duga til að þessi
þýðingarmikla starfsemi geti
haldið áfram, en í hverju þær
verða íólgnar er ekki vitað á
þessu stigi.
Orsakir þessa vanda fisk-
vinnslunnar, eru af mörgum
rótum runnar. Meginorsök
þess almenna ástands má rekja
til verðlagsþróunar í fram-
leiðsluþáttum innanlands. Það
hefur áður verið á það bent á
þessum síðum að brýna nauð-
syn beri til að taka upp efna-
hagsstefnu sem miðar að því
að halda þessari þróun í skefj-
um. Það hefur ekki tekist nú
fremur en endranær og boginn
spenntur til hins ítrasta. Nú
virðist sem hann ætli að bresta
og taka þurfi nýja kollsteypu.
Af þeim fréttum, sem berast
erlendis frá er að sjá, að ekki
sé að vænta frekari verðhækk-
unar á fiskafurðum, heldur
öllu fremur lækkunar. Upp-
skeruhorfur eru góðar víðast
hvar og hefur það þegar haft
áhrif á verðlag fiskmjöls. Þá
hefur heildsöluverð fóðurvara
á Bandaríkjamarkaði farið
lækkandi undanfarna tvo mán-
uði eftir langvarandi tilhneig-
ingu til hækkunar. Haldi
þessi þróun áfram, sem líklegt
má teljast, má jafnvel reikna
með lækkunum á verðlagi fisk-
afurða á þessum þýðingar-
mikla markaði. Fari svo verð-
ur kollsteypan sársaukafyllri
en ella. Við höfum ekkert lært
og engu gleymt.
Annað atriði þessa máls eru
svæðisbundnir erfiðleikar ein-
stakra landshluta, sem eru af-
leiðing af minna og lakara
framboði hráefnis. Það er
vissulega löngu orðið tímabært
að móta fiskveiðistefnu sem
hefur mið af skynsamlegri nýt-
ingu fiskstofna, skynsamlegri
nýtingu þess fjármagns og
vinnuafls, sem í sjávarútvegi
starfar og hefur að leiðarljósi
bætta hagsæld allra.
J. BI.