Ægir - 15.08.1977, Side 20
Á TÆKJAMARKAÐIMUM
Hreinsibúnaður
fyrir dieselvélar.
Fyrirtækið Rivenæs í Berg-
en, Noregi, framleiðir búnað
til þess að hreinsa sog- og út-
blástursgöng, ásamt bruna-
holi dieselvéla og annarra
brunavéla.
Aðferðin er einkaleyfis-
vernduð og byggist á því að
sérstökum vökva er ýrt inn í
soggöng viðkomandi vélar og
berst hann með fæðiloftinu inn
í brunaholið og þaðan í út-
blástursgöngin. Einnig er
stundum komið fyrir ýri í
blástursgöngum rétt framan
við afgashverfilinn til þess að
hreinsa hann.
Samkvæmt upplýsingum frá
umboðsaðila, hreinsar vökv-
inn óhreinindi úr soggöngum,
loftkæli og þeim hlutum afgas-
hverfils, sem fæðiloftið leikur
um. í brunaholi leysir hann
upp steinefnaútfall og sót, og
losar hugsanlega fasta bullu-
hringi. í útblástursgrein losar
hann um sótmyndun og stein-
efnaútfall. Sé vökvinn notaður
reglulega heldur hann áður-
nefndum hlutum hreinum.
Vökvinn er óeldfimur og skað-
laus og á ekki að hafa áhrif
á strokksmurninguna, auk
þess inniheldur hann smurefni.
Hreinsun fer fram undir
venjulegu álagi án sérstakrar
gæzlu. Hversu oft er hreinsað
fer eftir óhreinindamagni og
vélargerð.
Nauðsynlegur búnaður fyrir
hreinsiaðferðina er þrýsti-
geymir, slöngur, lofttengi og
ýrar. Ýrunum er komið fyrir
á áðurnefndum stöðum og þeir
tengdir geyminum rneð
gúmmíslöngu. Loft undir
þrýstingi er hleypt á geyminn,
sem þrýstir vökvanum í gegn'
um ýrana og berst hann Þa
með fæðiloftinu gegnum vél-
ina. I dag eru framleiddar
þrjár gerðir af búnaði varð-
andi þessa hreinsiaðferð, tvaer
eru fluttar hingað til lands cn
þær eru HS-10 og SS-25-
Hreinsiaðferðin er viðurkennd
af Lloyds Register of ShipP'
ing.
Geta má þess að 22 íslenzk
skip hafa pantað eða tekið 1
notkun þennan hreinsibúnað-
Umboðsaðili á íslandi er
Magnús Ó. Ólafsson umboðs-
og heildverzlun, Reykjavik.
Ný stýrisvélargerð
frá Tenf jord.
Árið 1953 komu stýrisvélar
frá Tenfjord fyrst á markað,
og í dag eru vélar frá þessum
framleiðanda, af ýmsum stærð-
un og gerðum, í um 6500 skip-
um frá rúmlega 40 þjóðum.
A alþjóðlegu fiskveiðisýn-
ingunni, sem haldin var í
Þrándheimi á liðnu ári var
sýnd ný gerð stýrisvélar frá
Tenf jord, sem kemur á markað
í ár. Einnig var stýrisvélin
sýnd á alþjóðlegu skipasýning-
unni, sem haldin var í Osló í
maí á þessu ári.
Stýrisvélin: Aðalbreytingin
á stýrisvélinni er í því fólgin
að nú er stýrissveifin byggð
út úr kúlu, sem stýrisöxullinn
gengur í gegnum. Kúlan teng-
ist öxlinum með þensluhringj-
um án kýls eða róar. Þegar lagt
er á stýrið snýst kúlan í þar til
gerðu rúmi í stýrisvélarhúsinu
og myndar ásamt því aðallegu
stýrisvélarinnar. Þessi lega ber
uppi þunga stýrisöxuls og stýr-
isblaðs, og tekur hluta af á-
lagi skrúfustraumsins á stýris-
blaðið. Breytt útfærsla á aðal-
legu stýrisvélarinnar auðveld-
ar niðursetningu hennar Þal
sem nákvæm afrétting er °'
þörf.
Afl- og stjómkerfi: Stýri®'
vélar frá Tenfjord hafa veri
knúnar ýmist vélrænt og/e®'1
með handafli. Alltaf hefur vei
ið ein handknúin vökvadæla
upp í tvær vélknúnar vökva
dælur. Þannig hafa vökvadæ
ur verið allt að þrjár við sömu
stýrisvélina. Hver vökvadæa
hefur eigin stjórnloka og ha a
lokar og dæla verið byg8’® 1
eina heild. Vélknúnu dœlurnai
hafa breytilega staðsetningu 1
skipinu, en handknúna vökva
dælan er alltaf staðsett
270 — Æ GIR