Ægir - 15.08.1977, Qupperneq 22
t
Minningarorð
Hörður Þorsteinsson
skipstjóri
Þegar sjóvinnunámskeið Fiskifélagsins hóf-
ust haustið 1973, réðst Hörður Þorsteinsson
skipstjóri og kennari til félagsins ásamt Pétri
H. Ólafssyni til að skipuleggja námskeiðin
víðsvegar um land og til að þjálfa kennaraefni.
Of langt mál yrði hér að rekja forsögu málsins
og geta allra þeirra, er lögðu hönd á plóginn til
að hrinda fram þessum þýðingarmikla þætti
fræðslumála sjávarútvegsins. Má í því sam-
bandi vísa til greinar Ásgeirs Jakobssonar í
3. tbl. Ægis 1974.
Það var mikil gæfa fyrir Fiskifélagið og
framgang málsins, að Ilörður skyldi takast á
hendur þennan vanda. Að vísu var hann enginn
nýgræðingur, þar sem hann hafði átt mikinn
þátt í að undirbúa og koma til vegs sjóvinnu-
fræðslu við gagnfræðaskóla í Reykjavík. Engu
að síður var hér að ýmsu leyti verið að leggja
út á nýjar brautir og því mikils um vert, að
vel tækist til frá upphafi.
Þegar nú litið er yfir farinn veg, er árang-
urinn undraverður. Er það ekki sízt að þakka
árvekni Harðar og ósérplægni, svo og þekkingu
hans á allri sjóvinnu. Hann var og þeim hæfi-
leika gæddur að geta laðað að sér unglingæ
starfað með þeim og vakið áhuga þeirra og
virðingu.
Hörður andaðist að heimili sínu aðfaranótt
26. maí s.l. Kom fráfall hans samstarfsmönn-
um hans hjá Fiskifélaginu mjög á óvart. Hann
gekk þó enganveginn heill til skógar, átti við
gömul meiðsli að stríða, auk þess sem hann
hafði fyrir skömmu gengið undir erfiða skurð-
aðgerð.
Hörður fæddist í Reykjavík hinn 22. okt-
1920 og var því einungis tæplega 57 ára er
hann lézt. Hugur hans hneigðist snemma að
sjómennsku og var hann lengst af á togurum,
þar til hann lauk prófi frá Stýrimannaskólan-
um á árinu 1947 og raunar lengur eða til ars-
ins 1949, að hann gerðist stýrimaður og skip'
stjóri á bátum. Á árinu 1955 hætti hann a
mestu sjómennsku, vegna afleiðinga gamalla
meiðsla, er tóku sig upp.
Gerðist hann fyrst á eftir húsvörður við
Laugarnesskólann en síðar og jafnframt leið*
beinandi á sjóvinnunámskeiðum Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur. Á árinu 1959 réðst Hörður
að Lindargötuskólanum í Reykjavík, þar sem
hann tók að sér skipulagningu sjóvinnubraut-
ar og kennslu undir stjórn hins ágæta skóla-
manns Jóns Á. Gissurarsonar. Að þessu start'
aði hann næstu 12 ár við vaxandi orðstír. A
þessu starfi var síðan byggt, er Lúðvík Jóseps-
son fól Fiskifélaginu á árinu 1973 námskeiðs-
hald í sjóvinnu í unglingaskólum víðsvegar um
land. Hörður vann að þessu verkefni af mik1 1
elju til dauðadags — og með þeim árangrú a
þessi fræðsla er orðinn fastur liður hjá fj°
mörgum skólum.
Við samstarfsmenn Harðar hjá FiskifélafP
íslands vottum eftirlifandi konu hans VigdlS1
S. Ólafsdóttur og fjölskyldu allri samúð okkan
M. EI.
272 — Æ GI R