Ægir - 01.05.1981, Page 60
NÝ FISKISKIP
Otto Wathne NS-90
25. apríl s.l. afhenti Vélsmiðja Seyðisfjarðar
h/f, Seyðisfirði, nýtt 149 rúmlesta tveggja þilfara
stálfiskiskip, sem hlotið hefur nafnið Otto Wathne
NS-90. Skipið, sem er hannað hjá Vélsmiðju Seyð-
isfjarðar, er nýsmíði nr. 15 hjá stöðinni og er 11.
fiskiskipið sem stöðin smíðar, og annað í röð
tveggja þilfara fiskiskipa.
Skipið hefur samsvarandi aðalmál og síðasta
nýsmíði verksala (nr. 10) sem var Sigurbára VE
(afhent í júní '78, 9. tbl. '78), en fyrirkomulag er
með öðrum hætti, þar sem skip þetta er með brú
og íbúðarými framskips í stað afturskips.
Þetta er annað skipið með sama nafni og smíðað
fyrir sömu eigendur, sem Vélsmiðja Seyðisfjarðar
afhendir. Fyrra skipið, sem nú ber nafnið Bjarni
Gíslason SF-90, var nýsmíði nr. 7 hjá stöðinni og
afhent í ágúst 1973.
Otto Wathne NS er í eigu Gyllis h/f, Seyðisfirði,
og eru skipstjórar Páll Ágústsson og Trausti
Magnússon en 1. vélstjóri er Jón Árni Guðmunds-
son. Framkvæmdastjóri útgerðar er Trausti
Magnússon.
Almenn lýsing:
Skipið er byggt úr stáli skv. reglum og undir eft-
irliti Siglingamálastofnunar ríkisins og er búið til
tog-, neta- og línuveiða. Skipið er með tvö heil
þilför stafna á milli, perustefni, gafllaga skut og
skutrennu upp á efra þilfar, og stýrishús á reisn
framantil á efra þilfari.
Undir neðra þilfari er skipinu skipt með fjórum
vatnsþéttum þverskipsþilum í eftirtalin rúm, talið
framan frá: Stafnhylki fyrir ferskvatn; íbúðarými
framskips ásamt botngeymi fyrir ferskvatn; fiski-
lest; vélarúm með hágeymum fremst og síðugeym-
um aftast fyrir brennsluolíu og skuthylki aftast
fyrir brennsluolíu. Fremst í íbúðarými eru keðju-
kassar en asdikrými er aftast.
Fremst á neðra þilfari er íbúðarými, sem fremst
Mestalengd .......................... 25.92 m
Lengd milli lóðlína.................. 22.90 m
Breidd ............................... 6.60 m
Dýpt að efra þilfari.................. 5.55 m
Dýpt að neðra þilfari ................ 3.45 m
Eiginþyngd ............................ 205 t
Særými (djúprista 3.40 m).............. 325 t
Burðargeta (djúprista 3.40 m)...... 120 t
Lestarrými............................. 152 m3
Beitufrystir........................... 8.0 m3
Brennsluolíugeymar ................... 36.6 m3
Ferskvatnsgeymar ..................... 13.1 m3
Ganghraði (reynzlusigling)............ 11.0 hn
Rúmlestatala .......................... 149 brl.
Skipaskrárnúmer....................... 1574
nær yfir breidd skips, en aftantil liggur íbúðarými
lengra aftur meðfram b.b.-síðu. Aftan við íbúða-
rými er vinnuþilfar með fiskmóttöku aftast fyrir
miðju. S.þ.-megin við fiskmóttöku er vélarreisn
(vélarrúm) en b.b.-megin geymsla. Aftast á neðra
þilfari, aftan við framangreind rúm, er klefi fýr'r
stýrisvél og togvindur skipsins. Fremst, b.b.-megin
á vinnuþilfari, er beitufrystir.
Á efra þilfari, rétt framan við miðju, er stýrishús
skipsins, sem hvílir á reisn. Aftarlega á efra þilfari,
s.b.-og b.b.-megin, eru síðuhús með stigagöngum
niður á neðra þilfar. Aftast á efra þilfari er skut-
Otto Wathne NS-90 í reynzlusiglingu (Ljósm. Haraldur !dar
Seyðisfiröi).
300 — ÆGIR