Ægir - 01.07.1991, Qupperneq 61
HAGSKYRSLUR
Bækur um landsins gagn og nauðsynjar
Landshagir 1991
I þessu riti er að finna mikinn fróðleik um mannfjölda, atvinnuvegi, félags- og
heilbrigðismál, menntamál, þjóðarbúskap, verslun o.m.fl. Ómissandi rit öllum þeim sem
vilja fræðast um hag lands og þjóðar. Ritið er um 260 síður og kostar 2.000 kr.
Verslunarskýrslur 1989
Itarlegar upplýsingar um utanríkisviðskipti íslendinga á árinu 1989. Skýrslan er aðgengileg
öllum þeim sem vilja kynna sér viðskipti okkar við umheiminn. Skýrslan er ríflega 400 bls.
og kostar 1.800 kr. Verslunarskýrslur 1990 eru væntanlegar innan skamms.
Sveitasjóðareikningar 1985-1986
^agstofan hefur gert gangskör að því að koma út skýrslum um sveitarsjóðareikninga og
síðan 1990 hafa komið út reikningar sveitarfélaga fyrir árin 1979-1986. Jafnframt eru
v*ntanlegar skýrslur fyrir árin 1987 og 1988. Skýrslan fyrir árin 1985-1986 er 270 síður
og kostar 1.800 kr.
Lífskjör og lífshættir á íslandi
^ árinu 1988 var gerð á vegum forsætisráðuneytisins og Hagstofunnar könnun á lífskjörum
°8 lífsháttum íslendinga. Stefán Ólafsson forstöðumaður Félagsvísindastofnunar hefurtekið
Saman fróðlega skýrslu úr gögnum þessarar könnunar. Hún er 400 síður og kostar 2.000 kr.
Fyrirtækjaskrá 1991
Fyrirtækjaskrá er nú með nýju sniði, þannig að nú er auk kennitölu og heimilisfangs
fyrirtækja og félagasamtaka að finna símanúmer og virðisaukaskattsnúmer þeirra. í skránni
eru 21.000 aðilar. Hún kostar 2.500 kr.
Skrá um stofnanaheiti
I þessu hefti koma fram heiti rösklega 1.300 stofnana, fyrirtækja og félaga, með þýðingum
a er>sku og eitthvert Norðurlandamál auk annarra tungumála, ef sérstök ástæða þótti til.
^uk íslenskra aðila eru skráð heiti allflestra þeirra alþjóðastofnana og samtaka sem
íslendingar eiga aðild að. Kostar hún 2.500 kr.
Norræn tölfræðihandbók 1991
^agstofan annast dreifingu hérlendis á Norrænni tölfræðihandbók (Yearbook of Nordic
tatistics), sem Norðurlandaráð og norræna hagstofan gefa út. í riti þessu er margvíslegur
róðleikur í talnaformi um Norðurlönd og þær þjóðir sem þau byggja. Handbókin fyrir árið
1991 er 430 bls. Ritið kostar 2.500 kr.
Auk þeirra rita sem hér eru nefnd fást á Hagstofunni fjölmargar aðrar útgáfur af ýmsum
skýrslum um þjóðlegan fróðleik.
HACSTOFA ÍSLANDS