Tímarit lögfræðinga - 01.05.1981, Blaðsíða 53
til kl. 16.30 á kvöldin. Farið var á fætur kl. sjö á morgnana, þar sem aka
þurfti í um 3 stundarfjórðunga frá dvalarstað þátttakenda til aðalstöðva náms-
stefnunnar.
Eigi að síður gafst tóm til að fara í ýmsar skipulagðar kynnisferðir, svo
sem til dómstóla og á lögmannaskrifstofur. Mikil áhersla var lögð á að gefa
þátttakendum kost á að kynnast bandarísku þjóðlífi, og um þann þátt var
þannig séð, að hverjum þátttakanda var komið í samband við einstakling
eða fjölskyldu, sem hann gat leitað til um hvaðeina, t.d. varðandi leikhús —
eða hljómleikaferðir.
Þá var mikið um allskonar boð bæði á einkaheimili og til opinberra aðila
og bækistöðvarnar í Hockaday School höfðu upp á margt að bjóða til dægra-
dvalar, svo sem sundlaugar, tennisvelli, knattspyrnuvelli, billjard- og borð-
tennissal, hljómlistarherbergi o.s.frv., og verður það ekki nánar tíundað hér.
Að lokum er rétt að geta um sérstakan félagsskap gamalla og nýrra þátt-
takenda, sem m.a. heldur aðalfund sinn á hverri námsstefnu, kýs sér stjórn
og ákveður verkefni næsta starfsárs, þ.á m. ritstjórn blaðs, sem gefið er út
tvisvar á ári.
Þótt hin mikla vinsemd og gestrisni sem þátttakendum var sýnd muni
seint gleymast, verður ferðin sennilega islendingi minnisstæðust fyrir þá
sök, að nær allan tímann gekk hitabylgja yfir Texas, sú mesta í manna minn-
um, hiti um og yfir 40 stig á Celsíus.
Björn Þ. Guðmundsson.
ALÞJÓÐADÓMSTÓLLINN í HAAG
Hinn 15. janúar 1981 tóku tveir nýir dómarar sæti í Haag-dómstólnum.
Þeir eru Abdallah El-Khani frá Sýrlandi og Stephan M. Schwebel frá Banda-
ríkjunum. — El-Khani er fæddur 1925 í Damascus og menntaður í heima-
landi sínu. Hann hefur lengstum starfað í sýrlensku utanríkisþjónustunni og
átti um skeið sæti í ríkisstjórn lands síns. Hann tekur sæti í dómstólnum í
stað landa síns Tarazi, sem lést 4. október s.l. — Schwebel er fæddur 1929
í New York. Hann hlaut lögfræðimenntun í Bandaríkjunum og Englandi. Hann
var lögmaður 1954-9, aðstoðarprófessor við Harvard háskóla 1959-61, starfs-
maður utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna 1961-7, og prófessor við John
Hopkins háskóla 1967-81. Schwebel tekur sæti í Haag-dómstólnum í stað
landa síns Baxters, en hann lést 25. september 1980. — Þess má geta, að
alþjóðadómstóllinn fjallar um þessar mundir um ágreining Túnis og Líbíu
um landgrunnsmörk. Hafa bæði ríkin notað sér rétt sinn til að nefna dómara
til að fjalla um mál þetta. Eru það Jens Evensen frá Noregi nefndur af stjórn
Túnis og Jiménez de Aréchaga frá Uruguay, fyrrum forseti dómsins. Stjórn
Möltu óskaði að gerast meðalgöngumaður í máli þessu, en því var hafnað.
Um Haag-dómstólinn var síðast fjallað hér í tímaritinu 1980 á bls. 113-4.
Þ. V.
47