Tímarit lögfræðinga - 01.06.1982, Qupperneq 20
Tryggingabætur og lífeyrir, t.d. barnalífeyrir, sem greiddur er for-
eldrum vegna barna þeirra, teljast tekjur foreldra, og má því ekki
færa þær á skattframtal barns, sbr. þó 2. tl. A-liðs 7. gr. 1. nr. 75/-
1981. Aðrar tekjur barns en þær, sem falla undir 1. tl. A-liðs 7. gr.,
skulu að vísu færðar á sérframtal barns, aðrar en arður af hlutabréf-
um, en skattlagðar með tekjum foreldra, svo sem leigutekjur af lausa-
fé og fasteignum, vaxtatekjur, söluhagnaður, happdrættisvinningar
o.fl.
Skattskylt barn nýtur frádráttar svo sem segir í 2. mgr. 65. gr. 1.
nr. 75/1981 eftir því sem við á (fargjöld, útgjöld vegna móttekins
risnufjár og ökutækjastyrkja, hlunnindi í fatnaði, fæði, húsnæði o.fl.,
sjómanna- og fiskimannafrádráttur, iðgjöld af lífeyri og lífsábyrgð
og iðgjöld til stéttarfélaga, styrktarsj óða og sjúkrasjóða).
1 2. mgr. 67. gr. 1. nr. 75/1981 um skattstiga við tekjuskattsútreikn-
ing er börnum ákveðið sérstakt, fremur lágt skatthlutfall. Það var
upphaflega 5% af tekjuskattsstofni, miðað við að staðgreiðslukerfi
skatta kæmist á, en það var síðar hækkað í 7%, enda staðgreiðsla
skatta enn ókomin. Barn nýtur hins vegar ekki persónuafsláttar, sjá
2. mgr. 67. gr. Auk þessa bætist við 2% sjúkratryggingagjald, ef
gjaldstofn nær 6.750.000 gkr., þ.e. af þeim hluta, sem umfram er, sjá
1. gr. 1. nr. 36/1981, og 3% útsvar, sjá 6. mgr. 23. gr. og 2, mgr. 25. gr.
1. nr. 73/1980, og nýtur barn ekki lækkunar skv. 26. gr. sömu laga,
sbr. þó 7.-9. mgr. Alls skulu börn því greiða 10% (12%) af tekju-
skattsstofni.
Börn bera ábyrgð á greiðslu skatta, sem á þau eru lagðir,7) en auk
þess bera þeir, sem hafa á hendi fjárforræði ólögráða manna, ábyrgð
(sjálfskuldarábyrgð) á skattgreiðslum þeirra, sjá 2. mgr. 114. gr. 1.
nr. 75/1981 og 2. mgr. 32. gr. 1. nr. 73/1980.
3) Börn eru samsköttuð með foreldrum sínum að því leyti sem þau
eiga eignir eða hafa aðrar tekjur en þær, sem greindar eru í 1. tl. A-
liðs 7. gr., sjá 6. gr., 1. mgr. 65. gr. og 82. gr. 1. nr. 75/1981 og 6. mgr.
23. gr. 1. nr. 73/1980.
Það er skilyrði samsköttunar, að barn sé á framfæri foreldra sinna,
þ.á m. kjörforeldra, stj úpforeldra eða fósturforeldra. Ef fósturfor-
eldrar eru framfærendur, verða þeir skattskyldir, en ekki kynfor-
eldrar barns. Framfærandi telst sá aðili, sem hefur barn hjá sér og
annast framfærslu þess í raun. Sá, sem greiðir meðlag með barni, telst
7) Sbr. til hliðsjónar um ábyrgð ófjárráða manns vegna ráðstöfunar sjálfsaflafjár,
Þórður Eyjólfsson, Persónuréttur (2. útg. 1967), bls. 78-79.
14