Tímarit lögfræðinga - 01.09.1982, Blaðsíða 7
Guðrún Sigríður tækniteiknari í Reykjavík, Sigrún húsfreyja á Eskifirði gift
Steini Friðgeirssyni, Sigurður námsmaður og Þuríður, sem bæði eru í heima-
húsum.
Enda þótt Jón Grétar kenndi fyrst sjúkdóms þess, er dró hann til dauða,
fyrir allmörgum árum, vann hann ótrauður öll sín störf og hlífði sér hvergi.
Það var svo síðari hluta árs 1980, að sjúkdóminn herti. Jón kom þó til starfa
á ný, en gekk undir hjartaaðgerð í London vorið 1981. Enn hóf hann störf
um nokkurra mánaða skeið, en smám saman dvínuðu þær góðu vonir, er
við þessa erfiðu aðgerð voru bundnar.
Samstarfsmenn þakka Jóni Grétari samfylgdina og votta eiginkonu, börn-
um og aldraðri móður samúð.
Björn Hermannsson.
ÓLAFUR JÓNSSON
Aðfaranótt afmælisdags síns, 27. maí s.l., and-
aðist Ólafur Jónsson lögfræðingur. Hann var
fæddur að Austvaðsholti í Landmannahreppi
27. maí 1923, og var því aðeins réttra 59 ára,
þegar hann féll í valinn. Foreldrar hans voru
hjónin Katrín Sæmundsdóttir og Jón Ólafsson
bóndi í Austvaðsholti. Var Ólafur af traustum
rangæskum ættum og mun honum hafa kippt
í kynið. Hann brautskráðist frá Menntaskólan-
um á Akureyri vorið 1945. Um haustið innrit-
aðist hann í laga- og hagfræðideild Háskóla
íslands og lauk þaðan embættisprófi vorið 1951.
Á því ári var hann settur fulltrúi lögreglustjór-
ans í Reykjavík. Hann var við framhaldsnám
við North Western University í Evanston, lllinois
1952-53 og kynnti sér nánar lögreglumál í
Bandaríkjunum í framhaldi af háskólanáminu. Eftir heimkomuna hóf hann
aftur störf sem fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík og hélt áfram að kynna
sér lögreglumái erlendis, aðallega í Danmörku og Þýskalandi. Hefur lög-
reglustjórinn í Reykjavík, Sigurjón Sigurðsson, mælt svo um, að þessar
námsferðir Ólafs hafi borið góðan árangur og hafi hann flutt heim með
sér ýmsar nýjungar, einkum varðandi löggæslu á sviði umferðarmála. Ólafur
varð formaður Barnaverndarnefndar Reykjavíkur 1962 og formaður Barna-
verndarráðs Islands 1973. í stjórn Stúdentagarðanna var hann 1947-50 og
garðprófastur 1951-52 og 1954. Um árabil frá 1963 var hann formaður Þjóð-
hátíðarnefndar Reykjavíkur og sat í stjórn Hjarta- og æðasjúkdómavarna-
félags Reykjavíkur. í maí 1966 var hann settur tollgæslustjóri og skipaður
í það embætti 1967 og gegndi því uns hann fékk lausn frá embætti 1. janúar
1973, þegar hann réðist sem framkvæmdastjóri til Vinnuveitendasambands
íslands. í desember 1980 var hann skipaður til að veita forstöðu rannsókna-
49