Tímarit lögfræðinga - 01.09.1982, Page 21
yfirsjónum eða vanrækslu við stjórntök skips eða meðferð þess og
telja má sök skipshafnar eða annarra manna, sem vinna í þágu skips,
t.d. er skip rekst á annað skip vegna þess að skipstjórnarmenn fara
ekki eftir siglingareglum. Einnig er undanskilið brunatjón, sem ekki
stafar af sök farmflytjanda sjálfs, svo og tjón á lifandi dýrum og
farmi, sem hafa skal og er fluttur á þilfari. Loks er ábyrgð farm-
flytjanda takmörkuð við tiltekna hámarksfjárhæð (oft 500 banda-
ríkjadali) á hvert stykki, sem flutt er, eða flutningseiningu. 1 Haag-
reglunum felast nokkur fleiri afbrigði frá bótareglum siglingalaga, en
þau verða ekki rakin hér. Samkvæmt 103. gr. siglingalaga er heimild
farmflytj anda til þess að undanþiggja sig flutningsábyrgð skert veru-
lega að því er tekur til flutnings í innanlandssiglingum. Ef farm-
flytjandi nýtir að fullu heimildir 103. gr. til þess að undanþiggja sig
ábyrgð verður flutningsábyrgð hans mjög á sömu lund og eftir Haag-
reglunum, að öðru leyti en því, að 103. gr. veitir ekki heimild til tak-
mörkunar á hámarksfjárhæð bóta fyrir stykki eða flutningseiningu.
Um bótaábyrgð farmflytjanda vegna þess að ekki er rétt það, sem
farmskírteini greinir um vöru, svonefnda farmskírteinisábyrgð, eru
réglur í 142. gr. siglingalaga. Eru þær í aðalatriðum í samræmi við
ákvæði Haagreglnanna um sama efni. Það leiðir af eðli farmskírteinis
sem viðurkenningar fyrir viðtöku farms, að skírteinið verður að fela
í sér lýsingu á því hver sá farmur er, sem tekið hefur verið við, þ.e.
bæði upplýsingar um magn og ástand hverrar vörusendingar. Ef til-
greining um þessi atriði er röng, er farmflytjandi bótaskyldur gagn-
vart viðtakanda, sbr. 142. gr. siglingalaga. Stundum getur farmflytj-
andi að vísu sannað, að sendanda verði kennt um það, að viðtakandi
fær ekki þá vöru, sem í farmskírteini greinir. Farmskírteini hljóðar
t.d. um 500 kassa af appelsínum og engin sérstök athugasemd er í því
um ástand þeirra. Aðeins 490 kassar koma fram á áfangastað og af
þeim eru 20 brotnir. Þótt leitt sé í Ijós, að rýrnun þessi hafi öll verið
komin fram áður en farmflytjandi tók við vörusendingunni, er hann
bótaskyldur vegna tjóns, sem grandlaus viðtakandi bíður af þessum
sökum. Til þess að komast hjá ábyrgð hefði farmflytjandi þurft að
gera fyrirvara í farmskírteinið um ástand og fjölda kassa þeirra, er
hann tók við.
5.2. Skip í óreglubundnum ferðum
Algengt er, að útgerðarmaður noti skip sitt til farmflutninga, án
þess að hann reki áætlunarferðir. Þá tekur útgerðarmaður að sér að
flytja þann farm, sem býðst á flutningamarkaðinum. Fer þá eftir at-
63