Tímarit lögfræðinga - 01.09.1982, Blaðsíða 50
Ávíð
og dreif
FERÐ DOMARA TIL DANMERKUR
OG SUÐUR- SVÍÞJÓÐAR 1981
Dómarafélag íslands efndi til náms- og kynnisferðar til Danmerkur og
Suður-Svíþjóðar dagana 1.-10. október síðastliðið haust. Völdust 16 dóm-
arar til fararinnar, en einn félagsmaður bættist í hópinn í Kaupmannahöfn og
tók þátt í heimsókninni. Dómararnir voru gestir á aðalfundi danska dómara-
félagsins 2. og 3ja október, sem haldinn var á hótel d’Angleterre við Kóngs-
ins nýja torg. Var mjög gagnlegt að hitta danska starfsbræður, skiptast á
skoðunum við þá og stofna til kynna. Meðal umræðuefna á aðalfundinum
voru ýmsar breytingar á starfsemi og starfsháttum danskra dómstóla. í
umræðum kom margt athyglisvert fram og var næsta fróðlegt að fylgjast
með þeim, því að skoðanir voru æði skiptar um mörg atriði. Þá flutti Ole
Bohr dómari í Fredericia á Jótlandi erindi um uppruna danskra dómara,
þ.e. hvaðan þeir kæmu úr þjóðfélaginu. Kvað Ole Bohr þá koma nær ein-
göngu úr fjölskyldum vel stæðra borgara og háskólamenntaðra og þótti
það mjög miður. í máli hans var margt býsna nýstárlegt og róttækt, t.d.
vildi hann ekki, að dómarar væru sveipaðir skykkjum í réttarhöldum, kvað
þær minna helst á Klu Klux Klan eða þá frímúrara. Margir tóku til máls
eftir erindi Ole Bohr og voru ósammála flestum sjónarmiðum hans og álykt-
unum. Töldu þeir, að danska dómarastéttin væri vel boðleg sem fulltrúi
dönsku þjóðarinnar, hvorki betri né verri.
Föstudagskvöldið 2. október var íslensku dómurunum boðið í glæsilegt
kvöldverðarhóf félagsins á hótel d’Angleterre. Var það mjög skemmtilegt
samkvæmi.
Seinni fundardaginn snerust umræður einkum um hagsmunamál danskra
dómara, s.s. starfskjör og kjarasamninga, þ. á m. skipulagningu þeirra og
samstarf við aðra hópa háskólamanna. Kom greinilega fram, að þeir væntu
ekki neinna grunnkaupshækkana á árinu sem er að líða.
Síðdegis þennan dag hafði Einar Ágústsson sendiherra og kona hans
síðdegisboð fyrir hópinn í sendiherrabústaðnum. Var mjög ánægjulegt að
heimsækja þau hjónin á heimili þeirra, sem er í einu úthverfi borgarinnar.
Árla mánudagsmorgns 5. október var farið í heimsókn í Köbenhavns
byret, en hann er til húsa við Nýjatorg. í fundarsal dómhússins tóku á móti
hópnum N. C. Bitsch yfirborgardómari og Marie Louise Andreasen borgar-
dómari og fleiri dómarar. í upphafi gerðu gestgjafar nokkra grein fyrir starf-
semi borgardómsins almennt og að því loknu skiptu íslensku dómararnir
sér niður á hinar ýmsu deildir og fylgdust með þinghöldum og öðru starfi.
92