Tímarit lögfræðinga - 01.09.1982, Blaðsíða 51
Voru sumir við réttarhöld í opinberum málum eða einkamálum, aðrir heim-
sóttu fógeta- og skiptaréttinn. Undirritaður fór með sýslumönnunum Jó-
hannesi Árnasyni og Sigurði Helgasyni á þinglýsingaskrifstofuna, en hún
er í öðru húsi skammt frá dómhúsinu. Var þar margt fróðlegt að sjá og
kynna sér. Nokkru fyrir hádegi snerum við til baka og fylgdumst með þing-
haldi í miklu fíkniefnamáli, en ákærðu voru sakaðir um smygl á miklu magni
af hassi frá Afríku.
Eftir ágætan hádegisverð í boði dómstólsins héldum við áfram að fylgjast
með störfunum fram eftir degi. Vorum við nokkur m.a. við aðalflutning í
hjónaskilnaðarmáli. í upphafi reifuðu lögmenn aðila málið í stórum dráttum
frá hlið umbjóðenda sinna og fóru yfir framlögð skjöl. Þeir stjórnuðu yfir-
heyrslum, en dómarinn skaut inn spurningum einstaka sinnum. Eigi var
neitt bókað í þingbók annað en að þinghaldið hefði verið háð svo og nöfn
þeirra sem komu fyrir, né voru skýrslur hljóðritaðar. Á hinn bóginn skrifaði
dómarinn á laus blöð hið helsta úr skýrslunum. Gekk réttarhaldið fljótt og
greiðlega fyrir sig.
Síðdegis þennan dag tók yfirborgarstjóri Kaupmannahafnar Egon Weide-
kamp á móti hópnum í ráðhúsinu. Eftir þegnar veitingar var ráðhúsið
skoðað.
Um kvöldið sátu dómararnir kvöldverðarboð prófessors Ole Espersen
dómsmálaráðherra á Hotel Kong Frederik. Þar voru ýmsir danskir dómarar
og embættismenn dómsmálaráðuneytisins. Fór samkvæmið hið besta fram.
Næsta dag heimsóttum við Eystri Landsrétt, en höfuðstöðvar hans eru í
dómhúsi við Bredgade ekki langt frá Amalienborg. Forystu fyrir gestgjöfum
höfðu forseti réttarins Kurt Haulrig og Hans Kardel landsdómari. í byrjun
voru flutt stutt erindi um störf réttarins og skipulag, en hann starfar í nokkr-
um deildum í Kaupmannahöfn og víðar. Sátum við í réttarhöldum þennan
dag allan. Hlustaði undirritaður á aðalflutning í hjónaskilnaðarmáli ásamt
fleirum og var boðið að vera á dómarafundi, að honum loknum. Var fróð-
legt að fylgjast með, hvernig dómararnir ráða málum til lykta, en yngsti
dómarinn greiðir atkvæði fyrst og rökstyður. Þá vorum við nokkur við aðal-
flutning í skaðabótamáli. Málið fjallaði um galla í húsi, sem var selt. Það
vakti athygli okkar, að hvorki voru skýrslur aðila eða vitna ritaðar í þing-
bók né teknar upp á segulband. í málinu lá fyrir matsgerð. Hafði einn maður
verið dómkvaddur, þótt beiðni fjallaði um mörg atriði i fleiri en einni iðn-
grein. Að loknum málflutningi var málið dómtekið, en dómforseti kvað dóm-
endur reiðubúna til að koma fram með tillögu að dómsátt í málinu eftir að
þeir hefðu fundað í hálftíma eða þrjú kortér. Lýstu báðir lögmenn yfir því,
að þeir væru fúsir til að hlýða á og íhuga frambornar tillögur. Var því
ákveðið, að réttur yrði settur á ný eftir rúman hálftíma. Var einkar athyglis-
vert að kynnast þessu réttarfarsúrræði. Dómforseti fylgdi sáttatillögu dóms-
ins úr hlaði með ítarlegum rökstuðningi og lagði þunga áherslu á, að allir
dómendur 5 talsins væru sammála um hana og hefðu íhugað málið mjög
vel frá öllum hliðum. Lögmaður stefnda lýsti strax yfir, að hann vildi gera
sátt svo sem lagt væri til, enda voru það hagstæðari úrslit fyrir hans um-
bjóðanda en í bæjarþinginu. Lögmaður áfrýjanda kvað hann ekki tilbúinn
til sátta. Dómforseti spurði, hvort aðilar vildu íhuga málið og varð úr, að
ákveðið var að hittast að viku liðinni og reyna sættir til þrautar. Beindi
93