Vikuútgáfa Alþýðublaðsins


Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 24.12.1928, Blaðsíða 1

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 24.12.1928, Blaðsíða 1
II. árgangur. Reykjavík, 24. dezember 1928. Gefin ilt af Alpýðnflokknum. — ■ anat 52. tölublað. Jölaminning. Loksiris pvarr hin langa bið -- og loksins komin jól! Baðstofan var orðin öll sem upprennandi sól! Ljósin voru löngu kveikt, pó litið vœri um margt. Hjá ömmu var pö ekkert tjós, en annars staðar bjart. ' ’ ' . / | Ég kveikti á litlum kertisstúf og kom til hennar inn. Mér fanst lmn ganga margs á mis, en mest i petta sinn. — Hún lá par ein með luktar brár, er Ijósið inn ég bar. / hartnœr seytján harma-ár hún hafði legið par. Hún hafði í dagsins hitapunga hlotið starfa sinn. Hún lýsti margri reynsluraun, hin rúnum setta kinn. Andlitið var ógnar fölt, en einhvern svip .pað bar, sem minti á löngu liðið vor og Ijóma pess, sem var. ... ., j „Amma! hér er ógnar dimt, en annars staðar bjart. Vlltu ekki láta Ijósið lýsa myrkrið svart?“ Hán byrgði augun; brosti pó: „Æ, bezti vinur minn! ég poli ekki að láta Ijósið Ijóma til min inn.“ Hún lagði hönd á höfuð mér — pað handtak enn ég finn —. Ég fann, að einhver œðri máttur altók huga minn. Ég veit hún var að biðja — og bað um blessun handa mér, sem allii prá og ýmsir finna, . en enginn maður sér. i i Svo birti hún mér boðskapinn um Betlehem og Krist. Eyrun höfðu heyrt hann fyrr, en hjartað parna fyrst. „Hann elskar hverja scerða sál, er sér og ratar skamt, en einkum pann, er práir Ijós, en polir ekki samt.“ „Þeir, sem fagna Kristi í kvöld og kveikja honum blys, œttu að muna að láta Ijósin lýsa framvegis. Ef allir myndu kjör hins kalda og kveiktu honum eld, pá gœti sérhvert hjarta haldið heilagt jólakveld.“ Nú er amma löngu liðin, — Ijósin heima feld. Og ég er sjálfur, sviftur prótti, að sœkja nýjan eld. Verði jólin hversdagsköld, ég kvarta ekki neitt; en ósköp vœri gott að geta gaddi l sólskin breytt. Ólafur Stefánsson. Feldurinn. Erindi, flutt á skemtun F. U. J. í HafnaTfirði. Til eru tvær tegundir marma. Þá, sem tilheyra öðrum flokknum, mætti kalla „vorsálir", — hina mætti kalla „haustsálir". Munur þessara manna er mikill, svo mik- ill, að þeir eiga oft erfitt með að skilja hverjir aðra. Sjónarmiðim eru svo gagnólík. f>að, sem emksninir þá, sem kalla mætti ,,vorsálir“ eða vormenn, er það, að þsir eru bjartsýnir, hugrakkir hugsjóna- menn. Þeir eru trúmenn í þeim skilningi, að þeir trúa á sigur hins góða, — enda þótt þeir trúi stundum ekki á neinn guð, ailra sízt „persönulegan“. Og þeir ganga ötrauðir í lið með þeim málurn og þeim stefnum, sem þeir sjá og viðurkenna að horTa til heilla, enda þött samherjarnir séu fáir og gröða- og upphefðar- vonin engin. Þeir ganga í lið með gróandanum, hvar sem þeir koma auga á hann. Þeir elska æfintýri, af því að þeir skilja, að lífið sjálft er undursamlegt æfintýri. Þeir eru kyndilberar þjöðanna, og heimta eld af himnum ofan, eins og Prometheus. Þeir eru eldsálir, og hvorí sem þeir vita af því eða ekki, hafa þeir gert þessi orð Hávamála að trúarjátningu sinni: „Eldur er beztur með ýía sonum ok sólar sýn.“ Um „haustsálimar“ er alt öðru máb að gegna. Þeir, sem bera það nafn með réttu, eru svart- sýnir, og berjast venjulega ekki fyrir , neinum hugsjónum, nema þvi að eins að þeir sjái sér ein- hvern hag i því, geti búist við að fð eða ffægð falli í skaut þeirra. Þeir eru kaldir og kær< leikslitlir og gera venjulega mikl- ar kröfur til annara, en litlar kröfur til sjálfra sín. Þeim vex flest í augum, af þvi að þeir eru sjálfir svo smáir. Annars kann ég ekki við að vera að lýsa þeim nánar. Lýsingin er nú þegar orðin nógu ömurleg. En ég ætla að segja ýkkur ofurlitla sögu af einni slíkri „haustsál". Sagan er á þessa leið: Einu sinni voru tveir menn á ferð yfir fjallveg á dimmum vetraxdegi. Alt í einu skall á þá grenjandi hríð með hörkufrosti. Vörður voru engar, og er nátta tók, sáu þeir sér þann kost vænstan, að nema stað- ar og láta fyrirberast á heiðinni um nóttina. Þeir lögðust niður hlið við hlið og bjuggust um eftir föngum. Annar maðurinn hafði loðfeid. mikinn, er hæglega hefðl mátt skýla tveimur. Hinn var að öllu ver búinn. „Njöti hver þess, sem hefir,“ hugsaði sá, er feld- inn átti, og vafði honum vand- lega um sig. En honum kom ekki í hug, að félaga sínum kynni að verða hættulega kalt, eða ef til vill taldi hann sér trú um að svo yrði ekki. Nokkur stund leið. Þá varð eiganda feldsins lí;ið við, og hann sá, að það lá lík við hliðina á sér. Hann reis upp í ofboði og starði í helbrostin augu fé- laga síns. Honum fanst einhver ásökun vera í, þessum brostnu augum, — einhver kaldhæðni og fyrirlitning. Hefði ekki feldurin® geiað bjargað þessum bröðttr hans? Nú flutti hann sig frá Iíkinu, lagðist niður að nýju og sveip- aði að sér feldinum. . . En sá nístingskuldi! . . . Nú tók hann eftir því, að félagi lians hafðt legið áveðurs og skýlt honuin gegn storminum. Nú dugði feld- urinn ekki lengur. Kafaldið jökst og kuldinn smaug í gegn um merg og bein. Næsta dag lágu tvö lík þarna á heiðinni. .... . Er þessi stutta saga ekki 'iær- dömsrík? Maðurinn, sem feldinn átti, var , haustsál", sem lét fé- laga sinn frjösa í hel við hliðinn á sér. Það var sjálfselska hans, sem átti sök á því. Feldurimt hefði ef til vill getað bjargað báðum þessum mönnum, en nú kom haim hvorugum að haldi. Margar slíkar sögur gerast enn í dag í heimi þessum. Þess vegna er bölið líka svo mikið og margt. Og þess vegna þarf heimurinn svo mjög á mönnum að halda, sem breíða vilja feld bræðralags- ins yfir þá, sem eru að verða útl á hjarni mannlífsins. Við, sem að- hyllumst jafnaðarstefnuna, gerum það af því, að okkur virðist hún fela í sér viturlega lausn á því vandamáli, hvernig eigi að ftam að því að koma í veg fyrir að svo og svo margir frjósi í hel á fjallvegi fátæktar og skorts. Spurningunni gömlu: „Á ég að gæta bróður mins?“ — svörutn við játandi. Við erum ekki ánægð- ir, þótt við getum sveipað að okkur feldi sjálfsumhyggjunnar og látið okkur líða vel, meðcm við vitum, að rétt \ið hliðina * okkur eru menn, sem þjást, mann, sem eiga alvcg jafnmikinn rét*

x

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikuútgáfa Alþýðublaðsins
https://timarit.is/publication/596

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.