Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 16.01.1929, Blaðsíða 2
2
VTKUÚTGÁFA alpvðublaðsins
HHngavftleysa „NorgaflbIaðsios“.
„H*kkunartilboð“ útgerðarmanna er um lækkun
„Mgbl;‘ heldur því enn fram,
að útgerðarmenn hafi boðist tll
að hækka kaup sjómanna frá því,
íem það var í fyrra.
Skal nú sú „hækkun'" athug-
uð nokkuð.
Hækkunartilboðið nam kr. 3,30
á mánaðarkaupi og 2 aurum af
hverju lifrarfati tii hvers háseta
á salt- og ís-fi-skveiðum.
Sé gert ráð fyrir 9 mánaða
veiðitíma og 1050 fata lifrar-
afla að meðaltali, nemur hækk-
unin alls:
9 mánuðir á kr. 3,30 kr. 29,70
1050 föt lifrar á 2 aura — 21,00
Hækkun samtals til hvers
háseta kr. 50,70
En böggull slæmur fylgir þessu
stóra(M!) skammrifi.
Kaupið á síldveiðum átti að
lækka um kr. 11,50 á mánuði
og premían um 1 eyri af máli.
Sé gert ráð fyrir tveggja mán-
aða síldveiðitíma og 10 þús.
mála afla, nemur lækkunin á
síldveiðakaupinu:
2 mánuðir á kr. 11,50 kr. 23,00
10000 mál síldaráleyri —100,00
Lækkun samtals til hvers
háseta kr. 123,00
Hækkanir kr. 50.70
Lækkanir — 123.00
Lækkanir meirí en
hækkanir br. 72.30
Þannig er „hækkunartilboð'‘ út-
gerðarmanna:
Þetta kallar óvitlaust fólk kaup-
lækkun, hvað svo sem ,,Mgbl.'‘
og útgerðarmenn nefna það.
Sjómenn hafa hafnað þessu
smánarboði með þegjandi fyrir-
Ijtningu. En útgerðarmenn vilja
heldur stöðva skipin en breyta
því í nokkru.
Fiskbirgðirnar eru að þrotum
komnar. Fiskverð það hæsta, sem
fengist hefir unr mörg ár. Tíðar-
far einmuna hagstætt. Afli og
aflahorfur ágætt.
Samt stöðva útgerðarmenn
skipin.
Afsakanirnar.
„Mgbl.“ sér, að útgerðarmenn
hljóta áfellisdóm alþjóðar fyrir
þetta athæfi s'itt. Þess vegna
reynir það að búa til afsakanir
fyuir þá. Er það erfitt verk, enda
ferst blaðínu það óhönduglega.
Tekjuskatturinn var hækkaður
um 25% á síðasta þingi. Þessi
gífurlega skatthækkun gerir út-
gerðinni ómögulegt að hækka
kaupið, — segir ,,Mgbl.“
Rétt er það, tekjuskattur á tekj-
ium yfir 4000 kr. á á‘ri var hækk-
aður um 25°/o, eftir tillögum jafn-
aðarmanna.
En blaðið segir meira. Það seg-
ir, að langflest togarafélaganna
hafi engan tekjuskatt greitt, eng-
an tekjuskatt átt að greiða.
Manni verður að spyrja, eru rit-
stjórarnir alveg gengnir af göfl-
unum? Hvað gerir það togarafé-
lagi, sem engan tekjuskatt á að
greiða, þótt tekjuskatturinn sé
hækkaður um 25%?
25% af 0 verður 0.
Útgerðin og útgerðarmenn.
„Flestir eru þeir [þ. e. útgerð-
armennj illa efnum búnir,“ sagði
„Mgbl.“ hér á dögunum.
Þegar Alþýðublaðið benti á
lifnaðarhætti togaraútgerðar-
manna flestra, breytti ,,Mgbl.“
þessu og segir s/ðan, að útgerðar-
félögin flest, útgerðin, sé illa
stæð. — „Nú er það sannað, að
helmingur allra togarafélaganna á
minna en ekki neitt,“ segir
„Mgbl.!‘ í gær.
Á að skilja þetta svo, að út-
gerðin sé fátæk, þótt útgerðar-
mennirnir séu auðugir?
Ef svo er, hvaðan er þá auður
útgerðarmannanina kominn? Hafa
þeir hrifsað svo freklega til sín
af tekjum útgerðarinnar, að þeir
græði, þótt hún tapi, að þeir
safni auði, þe^ar hún safnar
skuldum?
Hvað taka framkvæmdastjör-
arnir, togaraeiendumir, í silnn
hlut?
Reikningana á borðið!
Umliyggja útgerðarmanna fyrir
bændum.
Útgerðarmenn láta svo, að ein
ástæðan til þess að þeir stöðvi
togaraflotann heldur en að hækka
kaupiðí, sé umhyggja þeirra fyrir
bændum og velferð sveitanna.
Sér er nú hver umhyggjan(M).
Það er öllum vitanlegt, að
hundruð sveitamalnna koma á ver-
tíðinni hingað til Reykjavíkur og
annara veiðistöðva hér sunnan
lands. Margir þessara manna ger-
ast hásetar á botnvörpuskipun-
um yfir vertiðina. Að henni lok-
inni halda þeir aftur heim með
kaup sitt og nota það til fram-
kvæmda í sveitinni. -r Margur
bóndinn hefir getað lagt nokkur
hundruð króna i jarðabætur fyrir
það eitt, að sonur hans eða synir
hafa haft atvinnu á togurum eða
í veiðistöðvum yfir vertíðina og
fengið greitt það kaup, sem verk-
lýðsfélögin þar hafa knúið út-
gerðarmenn og aðra atvinnurek-
endur til að greiða.
Nú vilja blessaðir útgerðar-
mennirnir efla „velferð sveitanna“
með því að lækka þetta kaup.
— Það er sama umhyggjan eins
og lýsti sér í því, að þeir börðust
með hnúum og hnefum gegn tog-
aravökulögunum. Þá ætluðu þeir
að efla „velferð sveitanna“ með
því að .þrælka sjömennina, þar á
meðal sveitamennina, sem á skip-
unum eru, sólarhringum saanan
án þess að unna þeim svefns eða
hvíldar.
Uptoss Siiteigair
fimtugar.
Ég býst kann ske við, að það
sé eftir dúk og disk að geta fimt-
ugsafmælis Sinclairs í Alþýðu-
blaðinu. Líklega búið að því fyrir
Iðngu. Hann er, eins og allir vita,
einstæður meðal rithöfunda í
Bandaríkjunum, vegna þess að
hann hefir gengið fram fyrir
skjöldu og barist fyrir mannleg-
um hugsjönum í niörg ár, en það
gerir hér um b.il enginn rithöf-
uundur í þessu landi. Þ.eir eifa
allir útvaldir og leigðir af verzl-
unarvaldinu. Næst siðasta bök
Sinclairs heitlr Money writes,
þ. e. Peningamir skrifa, og er það
rannsókn á núlíðarbókmentum
Bandarikjanna, og setur Sinclair
þar fram hina störviturlegu at-
hugun á vali því, er auðurinn
gerir á höfundum. Vali þessu er
svo háttað, að öll umtalsverð blöð
og tímarit eru í höndum stór-
auðsins, og prenta ekkert, sem
fer í bága við hugðarefni hans.
I sömu höndum eru bókaútgáfu-
félögin. Þannig hefir engiinn rit-
höfundur í Bandaríkjunum neitt
tækifæri til að koma rifum sínum
á prent, nema því að eins að hann
semji í þágu auðsins. Hér er þvi
ekki um beinar mútur að ræða,
heldur val, selectiori.
Síðasta bók Sinclairs er Boston
og fjallar um aftöku Sacco og
Vanzetti og allan aðdraganda
hennar. Þessir saklausu verka-
menn voru drepnir í fyrra eftir
óslitnar píslir og meiðingar ri 7
ár, og hefir þessi réttarfaraglæpur
vakið andstyggð alls hins siðaða
heims. Bosíon er tvö þykk bindi,
__alt ritað i heilagri bræði út af
ranglæti og kúgun. Því m'ður hefi
ég ekki tíma til að geta hennar
frekar sem stendur, en mikíl
freisting að rita um hana langt
Með því að borga sjómönnum
o g öðrum verkamönnum svo
lágt kaup, að þeir geti hvorki1
keypt kjöt, smjör, mjólk eða aðr-
ar afurðir bænda, ætla útgerðar-
menn nú að efla „velferð sveit-
anna“.
Eins brauð er annars brauð.
Bættur hagur verkalýðsins er
því hagsbót fyrir bændur alla og
búaliða.
mál. Ég leyfi mér að eins að
mæla sterklega með henni við
íslenzka enskulesendur. Betri.
heimildir um Ameriku en bækur
Sinclairs eru hvort sem er öfáan-
legar, enda hefir hin mentaða Ev-
röpa löngu séð það, þar sem þar
er, svo til, enginn amerískur
höfundur lesinn, nema hann. Það
er einkum til marks um mentun-
arleysið í Ameríku, hve grand-
gæfilega fólki er varnað þess að
afla sér nokkurra upplýsinga um
þjóðfélagsmál. I þeim efnum er
hver 100% Ameríkumaður hreinn
b.jálfi. Allar þær barnalegu og
úreítu hugmyndir, sem fólk hér
hefir um þjóðfélag og stjórnmál,
gera það að verkum, hve Evröpu-
mönnum hæítir til að líta niður
á Ameríkumpnninn og álfía hanu
fífl. En Jrar sem skýrar og tíma-
bærar skoðanir í stjóinmálum eru
grundvöllur flestrar annarar nýti-
legrar þekkingar nú á dögum, þá
er ekki að furða, þótt margt sé
reikult og fáránlegt í amerískum
lífsskoðunum yfirleitt. Þessari
heimsku og fáfræði landa sinna
hefir Upton Sinclair verið að
berjast gegn alla sína æfi, og
orðið meira ágegnt en nokkrum
einum manni.
Þótt Upton sé langmerkasti
maður Ameríku sem stendur, þá
hefir fimtugsafmælis hans ekki
fremur verið getið hér en þótt
hann væri bundur, nema i hinum
földu og bönnuðu blöðum um-
bótamanna. Sem stendur er U. S.
í New York að undirbúa sýningu,
á Singing Jailbirds á leiksviði og .
hjálpa til að gera leikrit úr Oil,
— hinni nafnkurmu bök sinni,
þriðju síðustu í röðinni. Sinclair
á annars heima hér í Long Beach
rétt hjá Los Angeles. Ég hefi
orðið fyrir þeirrl heppni að
kynnast honum, og hann hefir
gert mér meiri greiða en nokk-
ur annar maður óþektur og ó-
vandabundinn. Hann er fjörlegur
eins og unglingur, alveg einstak-
lega Ijúfmannlegur og högvær,
andlit hans er hið göfugasta og
mannvænasta, sem ég hefi séð x
Ameriku og hið lang-tignarleg-
asta. í litarhætti er hann svipaður
Þórbergi Þórðarsyni. Skrifarar
hans eru ,klæddir eins og borg-
arar, en sjálfur er hann klæddur
i hvit verkamannaföt, — ég held
alt af heima fyrir. Hann er á-
kaflega léttur í spori. Það sem
einkennir Upton Sinclair mest í.
minum augum, bæði sem mann
og rithöfund, er, hve gersneydd-
ur hann er allri yfimáttúrlegrl
hygð. Það hefir gleymst að skapa
í hann hið trúarlega skilningarvit.
En hatur hans gegn fjendum
mannkynsins er sterkara en hjá
öllum veraldarinnar trúarhetjum
saman lögðum.
Fyriigefið flaustrið.
Los Angeles, 15. nóv. 1928.
Halldór Kiljan Laxness.
Upton Sinclair er fæddur 20.
september 1878.