Vikuútgáfa Alþýðublaðsins


Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 29.01.1930, Síða 4

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins - 29.01.1930, Síða 4
4 VIKUÚTGÁFA ALÞÝÐUBLAÐSINS bvarf nema snjóinn á götunni. Föður barnanna hafði verið sagt, að borgarstjóra bæri skylda til að sjá þeim fyrir húsnæði, er ekkert húsnæði hefðu og hvergi fengju inni. Skrifaði hann því borgarstjóra mjög kurteislega orðað bréf og bað hann ásjár. Tjáði hann Zimsen ástæður sínar og baðst fljótrar úrlausnar, par sem líf barnanna væri e. tv v. í veði. Vika leið. Ekkert svar. Af- jgreiðslan hjá borgarstjóranum gengur seint! Þá tekur konan það ráð að íara sjálf í skrifstofu fátækra- jfulltrúanna á Laugavegi 53 og tala við þá. Er hún kemur pang- að segir annar peirra: „Nú, já, pér eruð húsnæðislaus. Já. — Við höfum fengið tilkynningu um pað, en ekkert getað.“ Við það fór konan. Það var svarið við málaleitun fjölskyldunnar i kjallaranum. Slík svör fá peir, er leita á náðir borgarstjórans. Eng- in auglýsing hafði þó sézt í blöð- wm bæjarins frá borgarstjóra ]um, að hann vantaði húsnæði handa húsnæðislausu fólki. Menn geta nú skilið aðstöðu þjónanna í kjallaraniun. Þau búa þar með barnahópinn sinn. Börn- in eru veik af kvillum, er óholl húsakynni valda. Læknir telur í- búðina svo heilsuspillandi, að eina ráðið til bjargar heilsu barn- anna sé að flytja pau í betri húsakynni tafarlaust. Lögreglu- stjóri gefur þeim fyrir munn heilbrigðisnefndar skipun um að flytja út. En hvert? Hjónin reyna allar hugsanlegar leiðir. En ekk- ert gengur. Þau leita á náðir „forsjónar“ bæjarins, höfuðs horgarinnar, mannsins, sem ber jskylda til að ráða fram úr vand- ræðum 'þeirra. En Zimsen fer sér hægt og þjónar hans hafast lítt að. — Hvað var nú til ,bragðs? Þau fóru enn í leit um bæinn, en alt fór á sömu leið. Loks 15. þessa mán. fréttir heimilisfaðir- inn af tilviljun um lausa íbúð, Hann biður konu sína að fara til fátækrafulltrúanna og biðja þá að útvega húsnæðið. Það taldj hann heppilegast, því að ef hann færi sjálfur gat verið hætta á, að hann fengi hið algenga svar: „Barnafólki leigjum við ekki!“ Konan simar til fátækrafulltrú- anna. En hvað skeður? „Því míður hefi ég ekki tima til að tala v'ið yður. Gestir eru hjá mér!“ Það var svarið, er þjónn Zim- sens gaf. Það var úrlausn borg- arstjórans á málinu. Það var hjálpin! Þetta minnir á móttökumar, er almúgamenn fá í skrifstofu borg- arstjóra. Það minnir á gratandi bamsmæðumar og ekkjurnar, er hann lætur frá sér fara með at- yrði þjóna sinna á baki. I fátækraholum Reykjavikur- ar, veikjast og veslast upp, með- borgar úrkynjast bðra alþýðunn- an íhaldið opnar dyrnar til Skild- inganess og skýlir þar flótta- mönnum, er flýja undan réttmæt- um útgjöldum, en vilja þó fá að ráða lögum og lofum í bænum, Ég fór inn á Hverfisgötu 125, er ég hafði heyrt framan greinda sögu, og gekk bakdyramegin nið- ur í kjallarann. Hurðin var eins og óvönduð hesthússhurð. Þegar ég opnaði og steig inn fyrir háan og klakaðan þröskuldinn var niðamyrkur. Illur moldarþefur barst að vitum mínum. Ég þreif- aði fyrir mér og fann bera grjót- veggi báðum megin við dymar. Tvær tröppur voru niður; síðan kom stuttur gangur, blautur og rakasamur, síðan önnur hurð úr kassafjölum. Ég barði. Konan opnaði. Ég kom inn í annan gang. Til vinstri handar var blautt þil, til hægri handar geymslubás. Inst i honurn var gluggi. Fyrir hann var negldur poki. Við hliðina á básnum var opið viðbjóðslegt skot. Ég kom inn í eldhúsið. Meðalmaður getur varla staðið þar uppréttur. Ég sá sprungur í veggjunum, sem troðið hafði verið upp í. Elda- vél stendur við einn vegginn. „Hún er alt af kynt," segir kon- ah. „Og við eyðum svo miklu af kolum. Það myndi borga sig að leigja miklu dýrari íbúð.“ Ég kem inn í svefnherbergið. í rúm- unum eru þrjú börn, öll föl og tekin til augnanna. Yngsta barn- ið er í vöggu og sefur. Tveir gluggar eru út að götunni. Ég lít út. Það sést í kolsvarta glugga- þróna. Gluggarnir eru afar-litlir. Hugsjónir íhaldsins eru: Litlir gluggar! „Það er aldrei hægt að opna glugga," segir konan. „Ef ég gerði það, þá myndu bílamir þyrla snjónum inn eða kasta aurslettunum inn á börnin í rúm- unum.“ Dúkómynd er á gólfinu, göt- ótt. „Rottumar hafa nagað sig upp um gólfið,“ segir konan enn. „Þær smjúga alls staðar inn, þær naga rúmfötin og þvottinn, þær em líka í matarskápnum. Viltu sjá holurnar þar?“ Skápurinn er götóttur eftir nagdýrin. Ekkert þvottahús fylgir íbúðinni og eng- inn „vaskur“ er inni. Flest, er fjölskyldan átti, er hún fluttj inn, er eyðilagt af raka og rott- um. „Ég ligg alt af í gólfunum og þurka af veggjunum marg- sinnis á dag,“ segir konan, „en það stoðar ekkert“ — Leigan er 60 krónur á mánuði! Ég hefi hér að framan reynt að draga upp ofurlitla mynd af húsnæðisástandinu, ofurlitla mynd af böli og vandræðuro einnar fjölskyldu, ofurlitla mynd af viðtökunum og hjálpseminni hjá borgarstjóra og undirmönn- um hans. En þessi litla mynd er að eins lítið sýnishom. Fjöldi fjölskyldna á við svipuð kjör að búa, fær svipaöar viðtökur, er þær leita til „forsjónar“ bæjarins. Þenna smánarblett þarf að þvo iaf bænum. 19. jan. V. S. V. Aflaverðhluti sjómanna á línuveiðurum. . FB., 27. jan. Verðlagsnefnd sjómanna og línuveiðaraeigenda, sem skipuð er samkvæmt samningi Sjómannafé- lags Reykjavíkur og Sjómanna- félags Hafnarfjarðar við linu- skipaeigendur, tilkynnir: Frá og með 1. janúar til 5. febrúar að kveldi ber að reikna aflaverð- hluta sjómanna á línuveiðurum með neðanskráðu verðlagi: Stórfiskur pr. kg. 40 aura Smáfiskur — — 35 Meðalalýsi prima 771/2 — —nr. 2 721/í — —nr. 3 67i/2 — tr focdargerð fiskifélagsdeild- ar Anstfirðiiigafjórðnngs. Sildareinkasalan. Nefndin í þessu máli lagði fram svohljóðandi tillögu: Fjórðungsþingið skorar á Fiski- þingið að hlutast til um við rík- isstjómina og alþingi: 1. Síldareinkasalan fái aukið fé til umráða, svo að hún geti greitt sem mest út á síldina jafnóðum og hún veiðist, helzt sem svarar veiði- og verkunar-kostnaði, og feeti séð fyrir nægilegum tunnu- birgðum í öllum veiðistöðvum -landsins. 2. Enn fremur að skorað verði á Einkasöluna, að meðan ekki er bygð síidarbræðslustöð fyrir Aust- urland, þá verði Austfirðingum veitt Týmri söltunarleyfi en hing- að til hefir verið, og að Einka- salan geri ítarlega tilraun um markaðsleit, sérstaklega fynr Austfjarðasild, og vill í því sam- bandi benda á, hvort eigi mundi tiltækiiegt að reyna nýjar verk- unaraðferðir. Tiil. samþ. með öllum atkv. Beitusild. Nefndin í þvi máli lagöi fram svo hljóðandi nefndaTálit og til- Jögur: GREINARGERÐ. Eins og kunnugt er, hefir þorskveiði með línu farið mjög í vöxt á síðari árum. Þessi veiði hefir gefist allvel á ýmsum stöð- um og má því búast við, að línuútvegur minki ekki i náinni framtíð. Þótt veiðst hafi mjóg mikið á sum þau farartæki, er þessa veiði stiroda, þá mun hins vegar oft vera svo, að tekjuaf- gangur er ekki eins mikill og bú- ast mætti við, þegaT litið er á hina miklu veiði. Útgjöldin eru það mikil, að undrum sætir. Einn af hæstu útgjaldaliðum við þessa veiði er beitukostnaður. — Það Jiggja ekki fyrir skýrslur um það, hve mikið er greitt árlega fyr^r beitu af öllum islenzkum farar- tækjum, er þessa veiði stunda, en með þvi að hafa til hliðsjón- ar skipa- og báta-fjölda á öllu landinu og það, sem vitað er uro beitukostnaðinn í hinum einstöku veiðistöðvum á hverjum tirna, þá er hægt að gera sér nokkra grein fyrir því, hverju þetta muni nema alls. Mun tæpast ofmælt, að þessi útvegskostnaður landsmanna nemi hátt á aðra milljón króna eða tveim árlega. Eins og kunnugt er, veiðist mjög mikið af síld hér við land. Um veiðitímann er hún oft verðlitil. Á síðastliðnu sumri var t. d. mikið af nýrri síld selt fyrir 2—3 kr. hver tunna. Miklu af síld var jafnvel mokað í sjó- inn aftur, eftir að hún var veidd. Samkvæmt þessu virðist rétt að álykta, að beitusíld hér á landi þyrfti ekki að vera dýr, jafnvel þótt hún sé fryst og geymd nokk- uð í frosti. En þetta er nokkuð á annan veg. Hér á landi er beitusíld alt af dýr, stundum slæm og oft ekki nægar birgðii til að fullnægja þörfinni, og hefir eigi ósjaldan verið horfið að því ráði að fá frosna síld frá öðruro löndum, þegar skortur hefir verið á henni hér. Sama árið og þúsundum tunna af síld er mokað í sjóinn er þessi sama vara keypt frosin tU beitu á 80 krónur hver tunna. Þetta verða þrautpíndár útgerðir að greiða og ekki nóg þar með, heldur er gott útlit á, að vér þurfum enn á ný að leita til ná- grannáþjóðanna um beitusíld. — Þegar litið er á: 1) aðstöðu vora til að veiða síld, 2) hve mikið vedðist af henni hér við land ár- lega, 3) hve verð á nýveiddri sild er yfirleitt lágt og 4) hve frosin síld er seld háu verði, 'þá getum vér eigi dregið aðra á- lyktun en þá, að hér sé um slæmt búskaparlag að ræða. Þetta verð- ur að lagfæra. Hér er verkefni fyrir Fiskifélag Islands. Vér leggj- um því til, að samþyktar verði eftirfarandi tillögur: Fjórðungsþingið ályktar að fela Fiskifélagi Islands að annast um 1. að rannsakað verði, hve mik- (ð er notað af beitusíid árlega hér á iandi. 2. að rannsakað verði og upp- lýsingar fengnar um tilhögun og skipulag í pessum efnum hjá ná- grannapjóðunum, t. d. Norðmönn- um. 8. að að pessu loknu verði gerðar tillögur um skipulag, er bœtt gœti úr pvi ástandi, er nú ríkir um beilumálin. Enn fremur felur Fjórðungs- þingið fuiltrúum sinum að beita sér fyrir þvi á Fiskiþingi, að haf- ist veröi handa um þesei efni sem allra fyrst. Till. samþ. meö öllum atkv. Ritetjóri og ábyrgðarmaöur: Haraldur Guðmundsson. Alþýðuprentsmiðjan. 1

x

Vikuútgáfa Alþýðublaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikuútgáfa Alþýðublaðsins
https://timarit.is/publication/596

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.