Alþýðumaðurinn - 12.02.1946, Page 1
7. tbl.
|U|)V|kmauurim
XVI. árg, Þriðjudaginn 12. Febrúar 1946
Erlingur Eriðjósson
heiðraður af bæjarstjórn
Akureyrar.
Hefir setið í bæjarstjórn 31 ár óslitið.
Var kosinn í bæjarstjórn 9. Jan. 1915. Sat síð-
asta fund sinn þar 24. f. m.
ÁSKORUN
til [esenda
Eins og margsinnis hefir ver-
ið tilkynnt í Utvarpinu undan-
farna daga, hefir Rauði kross
Islands, ásamt ýmsum fleirum,
ákveðið að gangast fyrir fjár-
söfnun til lýsiskaupa handa
veikluðum börnum víðsvegar á
meginlandi álfunnar, þar sem
hungur og skörtur hefir þjáð og
þjáir enn, svo að milljónir barns-
lífa eru í hættu. Tilmœli þessi
hafa þegar fengið ágætar undir-
tektir. Er þegar allmiklu fé safn-
að víða um land, og fyrsta lýsis-
sendingin þegar farin frá Reykja
vík. Hér er um brýna þörf að
rœða, og mikils sem með þarf,
ef að gagni á að koma. Við Norð
lendingar viljum ekki verða eft-
irbátar annarra þegar um slík
mannúðarmál er að rœða. Að
vísu er nú orðið allmikið af sam
skota- og hjálparbeiðnum á und-
anförnum mánuðum. og hefir
þegar verið seilst alldjúpt í vasa
sumra velviljaðra gefenda. En
hér stendur nokkuð sérstaklega
á. Hér eru það börnin, sem í
hlut eiga. Biskupinn yfir íslandi
hefir mœlst til þess við presta
landsins, að þeir hvettu söfnuð-
ina til þátttöku í samskotum þess
um og Rauða kross deildirnar
út um land vinna, hver á sínum
stað, að hjálparstarfsemi þess-
ari. Með áskorun þessari vildi
ég því vekja athygli fólks á
þessu. Margt smátt gerir eitt
stórt. Ef almenn þátttaka verður
í samskotum þessum, geta þau
mörgum barnslífum bjargað, þó
ekki sé stór upphœð úr hverjum
stað. Samskotutm verður veitt
móttaka hjá mér, á skrifstofu
minni, Eyrarlandsveg 16, og hjá
Rauða kross deild Akureyrar,
Páli kaupmanni Sigurgeirssyni,
Brauns-verzlun, bókabúðum bœj
arins, Kaupfélagi Eyfirðinga,
Kaupfélagi Verkamanna og af-
greiðslu Dags.
Friðrik J. Rafnar.
Húsmœðraskóli Akureyrar
heldur kvöldskemmtun að Hótel
Norðurland Sunnudaginn 17. þ.
m., til ágóða fyrir ferðasjóð
skólans. Aðgöngumiðar verða
seldir á staðnum sama dag frá
kl. 3—5 e. h. og við innganginn.
Á fyrsta fundi hinnar ný-
kjörnu bæjarstjórnar 5. þ. m.
gat forseli þess, að bæjarstjórnin
hefði ákveðið að heiðra Erling
Friðjónsson fyrir óvenju langt
starf í bæjarstjórn Akureyrar
með því að gefa honum málverk
af Akureyri. Á 69. afmælisdegi
Erlings 7. þ. m. mætti svo bæjar-
ráð, forseti bæjarstjórnar og bæj
arstjóri á Hótel KEA og afhenti
E. F. svohljóðandi skrautritað
skjal:
Herra kaupfélagsstjóri
Erlingur Friðjónsson.
Þar sem þér eruð nú hœttur
bœjarstjórnarstörfum eftir 31
árs setu í bæjarstjórn Akureyrar,
þá vill bæjarstjórnin votta yður
þakklœti sitt fyrir langt og ágœtt
starf yðar í þjónuslu bœjarins,
og biðja yður að þiggja málverk
af Akureyrarbæ sem viðurkenn-
ingu frá bænum fyrir störf yðar.
Með bestu heillaóskum.
Akureyri, 7. 2. 1946.
I bœjarstjórn Akureyrar.
Vorsteinn M. Jónsson, Indriði Helgason,
Steingr. Aðalsteinss., Steindór Steindórss.,
Jakob Frímannsson, Svafar Guðmundsson,
Friðjón Skarphéðinsson, Jón G. Sólnes,
Tryggvi Hetgason, Marteinn Sigurðsson,
Elísabet Eiríksdóttir, Steinn Steinsen.
Erlingur Friðjónsson var fyrst
kosinn í bæjarstjórn Akureyrar
9. Janúar 1915 og sat síðasta
fund sinn þar 24. f. m. Var hann
því bæjarfulltrúi í full 31 ár. —
Það var Verkamannafélag Akur-
eyrar, sem fyrst stóð að kosningu
hans, en síðar sat hann í bæjar-
stjórninni sem fulltrúi Alþýðu-
flokksins. Hefir hann í gegnum
öll þessi ár marga hildi háð við
afturhald og þrjósku akur-
eyrskra valdhafa og mörgu kom-
ið til leiðar, þó löngum réri hann
einn á báti.
Aðaltoud
heldur Alþýðuflokksfélag Akur-
eyrar Sunnudaginn 17. Febrúar
1946 í Verslunarmannahúsinu,
og hefst hann kl. 3,30 e. h.
Fundarefni:
Inntaka nýrra félaga.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Orðið er laust.
Fastlega skorað á félagsfólk-
ið að fjölmenna og mæta stund-
víslega.
Stjórnin.
Til
Erlings Friðjónssonar
í TILEFNI AF 31 ÁRS STARFI
í BÆJARSTJÓRN.
Margoft hefir máls- við -þing
mundað andans geirinn.
Ættir skylið, alt í kring
um þig léki þeyrinn.
Því að jafnan lagðir lið
lítilmagnans kjörum;
hik þar ekkert, hafðir við,
heill, með skýrum svórum.
Mála sannast, fyrr sem fannst,
fram ég hér vil skjóta:
Mönnum flestum meir að vannst,
málum réttarbóta.
Hœgt, en örugt áfram gekkst
umbótanna slóðir.
Þakkir stundum fáar fékkst.
-— Fœstir skilningsgóðir.
Seinna þegar sagan skráð
sýnir þroskafetin,
veit ég störf þín, verklýð háð,
verða’ að fullu metin.
Mín er kveðja mjög svo dauf,
mœrðar-stirð í línum.
En ég vildi lítið lauf
leggja að arni þínum.
VERKAMAÐUR.