Alþýðumaðurinn

Tölublað

Alþýðumaðurinn - 10.01.1931, Blaðsíða 1

Alþýðumaðurinn - 10.01.1931, Blaðsíða 1
ALÞYÐUMASDRINN I. árg. Akureyri, Laugardaginn 10. Janúar 1931. 1. tbl. Til lesenda. Um leið og »Alþyðumaðurinn« befur göngu sína, þykir hlíða, að honum sé fylgt úr hlaði með nokkr- um orðum. Fyrir 13 árum síðan stofnuðum við Halldór bróðir minil blaðið »Verkamanninn« með tilstyrk og áeggjan ýmsra áhugasamra verk- lýðssinna hér á Akureyri, en þegar Verklýðssamband Norðurlands var stofnað, tók það við útgáfu biaðs- ins og hefir haft hana síðan. Varð þó lítil breyting á yfirstjórn »Verka- mannsins*, þó Verklýðssambandið ■hefði útgáfu hans með höndum, því Halldór sá um útgáfu blaðsins en ég var ábyrgðarmaður þess og sá um fjárreiður. Sú breyting varð þó á blaðinu, að nýir kraftar bætt- ust því og það fór að koma út tvisvar í viku, í stað þess, sem það hafði ekki komið út nema einu sinni í viku áóur, og meira fór að bera á þeim skoðunum í 'blaðinu, sem sumir yngri menn verklýðs- hreyfingarinnar hallast að. Bar eftir því meir á þessu sem lengra leið á síðasta ár. * Mér er það ljóst, að meginþorri alþýðu í landinu h^llast ekki að kommúnisma, og taldi eg því ekki rétt, að blað, sem gefið er út í nafni verkalýðsins, gleymdi sínum aðaitilgangi, að tala máli al- þýðunnar, en kommúnistarnir, sem eru í meirihluta í stjórn Verklýðs- sambands Norðurlands, þoldu ekki að dregið væri úr áhrifum þeirra í blaðinu og geiðu kröfu til að eg léti þeim í hendur yfirráð yfir þvf. Tóku því kommúnistarnir að öllu leyti við »Verkamanninum« í fyrradag og komum við bræður, því ekkert við útgáfu hans meir. Gætnari raenn verklýðshreyfing- arinnar hér um slóðir telja hins vegar ófært að una þvf, að ekki sé til blað, sem sé í samræmi við vilja fjöldans. Hefir því ráðist, að þetta blað yrði gefið út að tilhlutun þeirra og eg yrði ábyrgðarmaðar þess fyrst um sinn. Stefna blaðsins verður sama og stefna Alþýðuflokksins í verklýðs- málum. Mun það leggja mesta áherzlu á, að ræða kaupgjaldsmál og önnur þau mál, sem nátengdust eru alþýðunni. Nafn blaðsins, »Alþýðumaðurinn«, hetir í meðvitund fólks líka þýð- ingu og orðið »Verkamaðurinn« en þó ö)Iu viðtækari. Teljum við, sem að útgáfu blaðsins stönd- um, nafnið all vel tilfallið- Blaðið kemur út einu sinni í viku fyrst um sinn, á Þriðjudögum, og aukablöð ef ástæða virðist til. Vænta útgefendur þess, að blaðinu verði vel tekið. Erlingur Frið/ónsson. I aðsigi. Almenningur minnist þess sjáifsagt að nokkru fyrir hátíðarnar báru frétta- skeytin og. útvarpsbylgjurnar þá frétt út um iandið, að stofnað væri nýtt félag í höfuðstað landsins, sem ætlað væri að næði um land alt. Félagat- vinnurekenda var það nefnt, og átti að hafa það tvennskonar hlutverk með höndum, að vinna á móti því að kaupgjaid sé greitt, sem »atvinnu- vegirnir þola ekki«, og að vernda »vinnufriðinn í landinu*. Þetta voru gamlir kunningjar verka- lýðsins; afar meinleysislegir á papp- írnum, en í reyndinni er þýðing þeirra allsherjar kaupkúgun og stofn- un ríkislögieglu til að viðhalda kúg- uninni. Áður störfuðu ýmsir atvinnurekend- ur að þessu tvennu, en þeir voru ^reyfðir og reistu ekki rönd við sam- tökum verkaiýðsins. Nú á að sam- eina kraftana og fylkja liði móti verka- lýðnum. Mælt er 'að búið sé að semja uppkast að félagslögunum og búið sé að setja út menn í öllum kaupstöðum landsins til að gangast fyrir stofnun félagsdeilda. Þetta er áramótagjöf íslenzkra at- vinnurekenda til verkalýðsins. Rúsínan í enda þúsundárahátíðarárspyisunnar — bragðmeiri og bústnari en venju- íegir réttir af borðum höfðingjanna; i sambandi við »gloríu« þúsund ára minningarinnar um strit íslenzks verka- lýðs til viðhalds yfirstéttunum á ís- landi. í s. 1. mánuði var haldið fjóíð- ungsþing Fiskifélagsdeilda Norðurlands hér á Akureyri; auðvitað fámennt að vanda, en auðsýnilega þegar komið í gott samband við höfðingjana fyrir sunnan. Þélta þing samþykti, að skora á norðlenska útgerðarmenn að draga saman útgerðina til að þiýsta niður kaupi verkafólks, og að efna til al- menns atvinnurekendafundar síðár í vetur, til að skipa þessum málum enn nánar. Auðsætt, er það, hvað þeir vilja stofnendur og stúðningsmenn atvinhu- rekendafélagsins. Samtök á að hefjá um allt land til að þrýsta niður verka- kaupi. Það er ekki minst á sparnað atvinnurekenda sjálfra á krepputímum, takmörkun drykkjugilda, minkandi fjár- austur í blaðakost fhaldsins, eða ann- að það, sem er þeirra einkamál; nei, annað atriði á stefnuskránni er ríkis- lögregla til að »vernda vinnufriðinn í landinu.« Og stofnun þessa atvinnurekenda-

x

Alþýðumaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.