Alþýðumaðurinn - 12.02.1946, Síða 4
4
ALÞYÐUMAÐU
•Þriðjudaginn 12. Febrúar 1946
r
Bíistjórafélag Akureyrar
I
i
fh,
I
1
1
I
1
i
I
Félagar: Mætið vel og stundvíslega og sýnið félags- ;T
skírteini ykkar við innganginn. y
ATH. Vegna fundarins verður stöðvunum lokað kl. *
9 e. h. .y
STTÓRNIN. |
ö
heldur aðalfund í Verkalýðshúsinu miðvikudaginn
13. þ. m., kl. 9 e. h.
DAGSKRÁ:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Kosningar endurteknar vegna ágreinings.
3. Lesin bréf frá A. I. o. fl.
KKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKBKHKHKHH
Frá Happdrœttinu
Endurnýjun til 2. flokks hefst 10 febrúar og á að vera
lokið 20. febrúar. Dráttur fer fram 25. febrúar.
Athugið vel!
Þar sem allir miðar seldust í 1 flokki, verður mikil eftir-
spurn eftir miðum í 2. flokki. Það er því mjög áríðandi
að endurnýja sem fyrst, því að eftir 20. febrúar fellur
rétturinn til endurnýjunar, og má selja alla óendurnýjaða
miða eftir þann tíma.
Munið.
Aðeins 11 dagar til þess að endurnýja. — Ef yður er annt
um miða yðar, komið áður en þeir verða seldir öðrum.
WKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKHKtíHKHKHKHKW
Síoustu sjðslysin
Fjórir fiskibátar farast
20 menn drukkna
Milli 20 og 30 ekkjur
og börn munaðarlaus.
Á Laugardaginn gekk aftaka
veður yfir landið sunnan og vest
anvert og hafið fyrir vestan land.
Margir fiskibátar voru á sjó. —
Fengu margir þeirra þung áföll
og komust nauðuglega til
hafnar, nema fjórir, sem fórust
með áhöfn. Voru það þessir:
Geir frá Keflavík — 5 menn
drukknuðu. Magni frá Norðfirði
— 3 menn drukknuðu. Mars frá
Bolungarvík — 5 menn druklcn-
uðu. Aldan frá Seyðisfirði — 5
menn drukknuðu. Einnig tók tvo
menn út af vélbátnum Hauk Eyj-
ólfssyni frá Gerðum og drukkn-
uðu þeir.
"Yfir 20 manns — ekkjur og
börn — hafa misst fyrirvinnu
sína.
Héðan
og
þaöan___________________
4. þ. m. andaðist í Osló Jó-
hann Guðjónsson, Manasesson-
ar. Jóhann fór utan fyrir styrj-
öldina til að fullnuma sig í list
sinni — harmonikuleik — og
dvaldi í Noregi stríðsárin —
sjúklingur nokkuð af þeim tíma.
Hann var kvæntur og átti einn
son barna.
★
Aðfaranótt 8. þ. m. andaðist
að Ægisgötu 1 hér í bænum Sig-
urjón Þorkelsson, faðir Magn-
úsar eiganda og forstjóra Dívana
vinnustofu Akureyrar, og þeirra
bræðra. Sigurjón var 89 ára að
aldri er hann dó.
★
Árni Þorvaldsson, fyrverandi
menntaskólakennari andaðist sl.
Sunnudag 71 árs að aldri.
★
75 ára varð í gær Páll Bergs-
son, fyrv. kaupm., nú til heimil-
is í Helgamagrastræti 47 hér í
bæ.
★
Hjónaband. Ungfrú Ingibjörg
Tryggvadóttir, áður matráðs-
kona í Kristneshæli og síra Jak-
ob Kristinnsson, fyrv. fræðslu-
málastjóri.
★
Opinberað hafa trúlofun sína
ungfrú Harpa M. Björnsdóttir,
verslunannær og Ásbjörn Magn-
ússon, bílstjóri.
Frá bæjarsljúrnar'
funili 5. ji. m.
Hin nýkjörna bæjarstjórn hélt
fyrsta fund sinn 5. þ. m. —
Var kosið í nefndir og önnur
trúnaðarsæti. Forseti bæjarstjórn
ar var kosinn Þorst. M. Jónsson,
skólastjóri og varaforseti Indriði
Helgason, rafvirkjameistari. —
Steinn Steinsen var áfram kos-
inn bæjarstjóri með 6 atkvæðum
Framsóknar og Sjálfstæðisins,
en Alþýðuflokksfulltrúarnir og
kommúnistar skiluðu auðu. Mæl
ist þessi kosning misjafnt fyrir,
og þó meir á lakari hliðina.
í bæjarráð voru kosnir sem
aðalmenn: Friðjón Skarphéðins-
son, Jakob Frímannsson, Tryggvi
Helgason og Indriði Helgason.
— Varamenn: Steindór Stein-
dórsson, Þorsteinn M. Jónsson,
Steingr. Aðalsteinsson og Jón G.
Sólnes.
Rafveitunefnd: Steindór Stein
dórsson, Jónas Þór, Áskell
Snorrason, Indriði Helgason, Jón
E. Sigurðsson.
Bygginganefnd: Þorsteinn M.
Jónsson, Svafar Guðmundsson,
Érlingur Friðjónsson, Óskar
Gíslason.
Brunamálanefnd: Sveinn Tóm
asson, Marteinn Sigurðsson, Gest
ur Jóhannesson, Jón G. Sólnes.
Kjörskrárnefnd: Brynjólfur
Sveínsson, Þórður Valdemars-
son, Svafar Guðmundsson.
Spítalanefnd: Stefán Árnason,
Sigríður Þorsteinsdóttir, Svafar
Guðmundsson. — Til vara. Brynj
ólfur Sveinsson, Lárus Björns-
son, Helgi Pálsson.
Framfœrslunefnd: Kristbjörg
Dúadóttir, Jóhannes Jónasson,
Elísabet Eiríksdóttir, Tryggvi
Emilsson, Jakob Ó. Pétursson.
— Varamenn: Bragi Sigurjóns-
son, Helga Jónsdóttir, Ingunn
Eiríksdóttir, Loftur Meldal,
Helgi Pálsson.
Fræðsluráð: Þórarinn Björns-
son, Þorsteinn M. Jónsson, Elísa-
bet Eiríksdóttir, Brynleifur To-
bíasson. — Varamenn: Steindór
Steindórsson, Marteinn Sigurðs-
son, Hreiðar Stefánsson, Svafar
Guðmundsson.
Hafnarnefnd: Marteinn Sig-
urðsson, Tryggvi Helgason (inn-
an bæjarstjórnar). Albert Sölva-
son og Helgi Pálsson (utan bæj-
arstjórnar).
íþróttahússnefnd: Þorsteinn
Svanlaugss., Ármann Dalmanns-
son, Jón Ingimarsson, Tómas
Björnsson.
Samkomulag var fyrirfram
milli flokkanna um kosningu
nefndanna. Gekk það starf fljótt
og friðlega.
Bæjarráð mun hafa ýmsu að
sinna á næstunni ef eitthvað á að
Frá Siglofirði
Undanfarið hafa staðið yfir
samningaumleitanir milli flokk-
anna á Siglufirði um málefna-
samning fyrir Siglufjarðarbæ
næstu fjögur ár. Má heita að
samkomulag liafi náðst um aðal-
málin, en ósamkomulag er enu
um bæjarstjórann. Krefjast
kommúnistar þess að fá að ráða
honum, þar sem þeir séu stærsti
flokkur bæjarins. Þessu neita Al-
þýðuflokksmenn. Alþýðufl. fékk
flest heimagreidd atkvæði við
bæjarstjórnarkosningarnar, en
kommar komust upp fyrir hann
á atkvæðum fólks, sem flutt er
burt frá Siglufirði og fellur út
af kjörskrá nú í þessum mán-
uði. Hver endir á þessu verður
er enn óséð. Full líkindi til að
komrpúnistar og Sjálfstæðið
bræði sig saman um bæjarstjóra
og stjórn bæjarins framvegis.
Hafa þessir flokkar 5 fulltrúa
samanlagt í bæjarstjórninni, Al-
þýðufl. 3 og Framsókn 1.
Gúmmístimplar
útvegaðir með litlum
fyrirvara.
Einnig eiginhandarstiniþlar.
Prentsmiðja
Björns Jónssonar h. f
sími 24.
verða úr öllum þeim fram-
kvæmdum, sem áætlaðar eru í
málefnasamningi flokkanna.
Skæðadrífa
Skapvonska Dags.
Ekki er ófróðlegt að athuga
hve skapvonskan sýður niðri í
þeim Dagsmönnum vegna úr-
slitanna í bæjarstjórnarkosning-
unum síðustu hér í bænum. Og
enn eru illindin mest í garð Al-
þýðuflokksins. Alþýðumaðurinn
mun ekki kippa sér upp við þetta,
en vert er það fyrir Akureyr-
arbúa að hugleiða það hvort
hægt er að ætlast til heilinda af
Framsókn sem samstarfsflokki í
bæjarstjórn þegar blað hennar
hefir ekkert gott, en margt illt
um samkomulag flokkanna að
segja, ef mark á að taka á tónin-
um í Degi.
Allt í lagi.
Enn þreytist Verkam. ekki á
að verja og lofsyngja aðfarir
kommúnista í Kaupfélagi Sigl-
firðinga. Er auðséð að þeir, sem
rita þetta blað telja að svona eigi
að fara með trúnað almennings
og ekkert sé nema gott eitt um
það að segja þótt gengið sé á
rétt hans og hann beittur ólög-
um og kúgun. Frá sjónarmiði
heiðvirðra manna, er framkoma
Þóroddar og Co. í Kaufpélagi
Siglfirðinga neðan við allar hell-
ur, en það að kommúnistablöðin
telja hana vera eins og best verð-
ur á kosið um meðferð á al-
mannafé, sýnir það best af öllu
hvort þau ummæli Alþýðum.
hafa ekki við rök að styðjast, að
þeir, sem haldnir eru af rúss-
nesku pestinni, hafi tapað hæfi-
leikanum til að gera mun á réttu
og röngu.