Alþýðumaðurinn - 08.03.1949, Síða 1
Ulþíjíiumaíiumix
XIX. árg. Þriðjudaginn 8. marz 1949 . 9. tbl.
Stððvun togaranna
Togaraeigendur hafa nú látiS tog-
ara sína liggja við bryggju'r um
skeið. Sagt er að þetta hafi kostað
þjóðina V2 milljón kr. á dag, og get-
ur hver séð, að hér er ekkert smá-
ræði í húfi.
íslenzkir útgerðarmenn virðast
fremur seinheppnir nú á tímum. Um
áramótin vöktu bátaútvegsmenn
reiði þjóðarinnar með ósvífnum
kröfum sínum, nú eru togaraeigend-
ur að skapa 'sér fyrirlitningu alþjóð-
ar með háttalagi sínu.
Hér skal enginn dómur á það
lagður, hvort kaup togarasjómanna
er að öllu leyti réttlátt eða ekki.
Vafalaust er réttmætt að æskja ein-
hverra lagfæringa af háðum aðilj -
um. En ekki réttlæta óskir um smá-
vægilegar breytingar á nokkurn hátt
vinnubrögð logaraeigenda nú.
í fyrkta lagi tilkynna , þeir þessar
óskir svo seinl, að viðræður um þær
geta nær engar orSið, fyrr en allt er
komiS í eindaga. 1 öðru lagi koma
þessár óskir fram, þegar stórgróði
er á útgerð togaranna, a. m. k. þeirra
nýju, og virðast því harla ástæSu-
litlar. Og loks er þess að geta, að
alla þessa togara fá togaraeigendur
keypta fyrir tilverknað ríkisstj órnar-
innar, og ve.rður ábyrgSarjeysi
þeirra gagnvart ríkisheildinni því
enn átakanlegri.
Togarasjómönnum á aS greiða
gott kaup og aÖ.þeim á að búa eftir
beztú föngum. Slíkt er hvort Lveggja
í senn þjóðarsómi og þjóðarnauð-
syn, því að engir einstaklingar draga
F. U. J.
ASalfundur félags ungra jafnaðar-
manna verður haldinn n. k. fimmtu-
dag kl. 8.30 e. h. að Strandgötu 7
(bakhús).
1) a g s k r á :
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
, 3. Félagsvist.
Félagar fjölmennið á fundinn.
Stjórnin.
annaS eins fé í sjóð landsmanna og
þeir. Þetta á að vera grundvallar-
sjónarmiðið jafnfætis hinu, að út-
gerðin beri sig. Og ríkisstjórninni
ber skylda til ai) gœta þess, að eig-
endur togaranna misnoti ekki eign-
arrétt sinn yfir þeim. Fandsbúar
hafa engin efni á því á svo viðsjár-
veröum tímum og nú eru að láta
ævintýramenn eiga þessi stórvirk-
ustu framleiðslutæki þjóðarinnar.
Ef togaradeilan leysist ekki tafar-
laust, krefst almenningur rótgerSra
aðgerða gegn skemmdarstörfunum.
Stjórnin verður að vera röggsöm.
FRÁ
ÚTLÖNDUM
--X--
Á SVIÐI HEIMSMÁFANNA
reka nú hver stórtíðindin önnur.
Skipling heimsins í tvær andstæðar
heildir þróast jafnt og þétt. Noregur
virðist nú einráðinn í því aS ganga í
Norður-Atlantshafsbandalagið og
sterkar líkur benda til að Danmörk
hyggist ganga söniu braui.
Fr þetta einarðleg afstaða þessara
þjóSa, en deilt er um, hvort Banda-
ríkin hafi gert rétt í því, aS knýja
þessi ríki inn á þessa braut með því
að neila þeim um vopn, ef þau stofn-
uðu aðeins með sér norrænt varnar-
bandalag.
Annars virÖist svo sem afskipti
Rússa hafi knúið þessi ríki, sérstak-
lega Noreg, líka til að taka þessa af-
slöðu.
HLLITLEYSIÐ á nú um sinn for-
mælendur fá. Svíar einir og Sviss-
lendingar virðast einráSnir í að
standa af sér áróðursgaldur austurs
og vesturs fyrir „varnar“-bandalög-
um og,.ekki-árásar“samningum. Saga
þeirra um langt skeiS gerir þessa af-
stöðu skiljanlega og raunar sjálf-
sagða frá þeirra bæjardyrum séð.
Rétt er líka að minna á, að í ófriði
er hinum stríöandi aðilum nauðsyn-
legt að hafa hlutlaus ríki, sem geta
tekið aS sér hlutverk sáttasemjarans
og líknarvinarins á örlagastund.
Ilvert hef'ði t. d. orðið starf Rauöa
Krossins sænska í síöasta stríði, ef
Svíar hefðu verið styrjaldaraðili?
Við getum líka spurt: Hvert hefði
orðið mannúðarstarf íslenzku þjóð-
arinnar í síðasta stríði og í stríðs-
lokin, ef hún hefði veriö styrjaldar-
aðili? ÞaS þarf vissulega engan að
undra, þólt til séu menn, sem eiga
örðugt með að snúa baki við hug-
sjón friÖar og bræðralags, þótt svart
sé fram undan, fyrir óreynt öryggi
undir skildi vestan- eða austanvinds-
ins.
LFIÐTOGAR KOMMÚNISTA í
hinum ýmsu löndum Vestur-Evrópu
keppast nú viS að lýsa yfir drottin-
bollustu sinni við Sovét-Rússland.
Kveðast þeir mundu veita her
Rússa fyllstu aðstoð, ef hann væri
að reka óviriáher af höndum sér inn
i föðurland þeirra. Raunar er þetta
ekki annað, en andstæðingar komm-
únista hafa haldið fram um þá, en
hiS óvenjulega við þetta er, að þess-
ar fullyrÖingar hafa þeir nú hrein-
skilnislega viðurkenn! sjálíir.
I kjölfar þessara yfirlýsinga víða
um lönd koma svo fréttir frá Rúss-
landi um utanríkismálaráðherra-
skipti þar. Hefir Molotov fengiö
lausn, en Visensky hlotið embæ'ttið.
Greinir menn á um, hvort 'þetta boði
undanhald eða sókn, en þó er frem-
ur álitið hið síðarnefnda. Kann þá
að véra, aS þess sé nú ekki langt að
bíða, að upp úr öllu logi.
SlÐUSTU FRÉTTÍR
af togaradeilunni eru þær, að
samningar hafi nú náðst unt
kaup sk'pstjóra, 1. stýrimanna
og vélstjóra.
INNBROT.
Um helgina var brotizt inn á
þremur stöðum í bænum: Gefj-
un: Nýja-Bíó og Viðgerðarstofu
Útvarpsins. Ekki munu þjófarn-
ir hafa fénazt stórlega, en þó
náðu þeir lítilsháttar af pening-
um.
Málið er í rannsókn.
Skjaldborgarbíó
Aðalmynd vikunnar:
Brothætt gler
(The Upturned Glass)
Eftirminnileg ensk stórmynd
JAMES MASON,
Rosamund John,
Pamelia Kellino,
Ann Stephens.
Bönnuð yngri en 16 ára.
NÝJA-BÍÓ
1 kvöld kl. 9:
Þau hiítust
I myrkri
(They met in the dark)
Framúrskarandi spennandi
ensk kvikmynd frá
Eagl'e-Lion-íélagimt.
Aðalhlutvsrkin le'.ka:
JAMES MASON
JOYCE HOWARD
TOMWALLS
DAVID FARRAR.
Bönnuð 14 ára.
Aðalfundur
Alþýðuflokksfélags Akureyrár
verður haldinn föstudaginn
18. marz n. k. Nánar. aug-
lýst síðar.
Stjómin.
Kvikmynd sú, er Kjartan Ó. Bjarnason
tók af hatíðahöldum verklýðsfélaganna 1.
maí s.l. og vormóti verklýðsfélaganna í
Vaglaskógi á s.l. stiniri, vérður sýnd á
kvöldskemmtún fulltrúaráðsins n.k. mið-
vikudag í Samk'omuhúsi bæjarins. Ættu
þeir meÖlimir verklýðsfélaganna, sem á-
Imga bafa á að sjá þessa mynd að tryggja
sér aðgöngumiða í tímS. Sjá götuailglýs-
ingar.