Alþýðumaðurinn - 26.04.1949, Side 1
XIX. árg. Þriðjudaginn 26. apríl 1949 15. tbl.
Frelsi, jafnrétti og bræðraiag
Undir pestnm elnknnnarorSnm verínr aker-
eyrsknr verkalíður að sameinast um karáttn-
mál sín.
Bygging félagsheimilis má ekki dragast.
Næstkomandi sunnudag er 1.
maí, dagur alþýðustétta allra
landa, en þó sérstaklega verka-
lýðsins. Þá minnist hann á úti-
og innifundum baráttu sinnar
og sigra fyrir bættum lífskjör-
um og vinnur ný heit um nýja
baráttu fyrir nýjum sigrum.
Um langt skeið hefir 1. mai
hér á Akureyri borið miður
heppilegan svip á ýmsa lund. Er
höfuðorsakar þeirrar meinsemd
• ar að leita hjá þeim leiðtogum
kommúnista, sem leggja alltaf
þann skilnng 'í , góðan 1. maí-
dag“, að hann sé flokksnýttur
til hins ítrasta af þeim.
Þar sem kommúnistar hafa
nú um skeið haft meirililuta
stjórnar í 4 af 5 stærstu verka-
lýðsfélögum bæjarins, hefir eðli
lega komið fyrst og fremst í
hlut þeirra að skipuleggja há-
tíðahöld dagsins, og þannig hafa
þeir haft ár eftir ár tækifæri til
að sýna ,,einingarvilja“ sinn og
samvinnuiipurð við annarra
flokka menn innan verkalýðsfé-
laganna, en Akureyringar
þekkja dæmin: Hinn árlega úti-
fund 1. maí sem víða um land
f
og víða um heim er kjarni há-
tíðahaldanna þennan dag, hafa
kommúnistar hér gert að hrein-
um skrípaleik í augum bæjar-
búa, kröfugönguna að meining-
arlausu rölti um götur bæjar-
ins með kommúnistisk kröfu-
spjöld og borða.
Síðan Verklýðsfélagi Akur-
eyrar var vikið úr Alþýðusam-
bandi Islands og hinar vinsælu
og fjölsóttu kveldskemmtanir
þess 1. maí féllu niður, hefir
stór hópur verkamanna ekki
komið nærri 1. maí hátíðahöld*
unum, og gefur að skilja, að
slíkt er mjög leitt.
Um nokkurt árabil hefir Al-
þýðuflokksfélag Akureyrar stað
ið fyrir kveldskemmtunum 1.
maí, sem hafa verið vinsælar og
vel sóttar. Þessar skemmtanir
hafa aðeins verið haldnar vegna
ríkjandi ástands í 1. maí-hátíða
höldunum hér og með það eitt
fyrir augum að gefa þeim, sem
ekki vildu sækja hinar kommún
istisku kveldskemmtanir, samt
kost á því að halda 1. maí hátíð
legan meðal góðra og glaðra fé-
laga. Frá því fyrsta hefir AI-
þýðuflokksfélagi Akureyrar þó
verið ljóst, að óæskilegt væri að
þurfa að grípa til þessara ráð-
stafana vegna 1. maí. Dagurinn
væri og ætti að vera fyrst og
fremst vettvangur fagfélaganna
en ekki hinna pólitísku félaga,
enda þótt bæði kommúnistar og
Sjálfstæðismenn hefðu farið inn
á þessa braut. Til þess að gera
þessa skoðun sina augljósa hélt
félagið fyrstu kvöldskemmtanir
sínar þennan dag við svo vægu
verði, að varla eða aðeins hrökk
fyrir beinum kostnaði, en síðar
var þó horfið að því að hækka
aðgangseyri og láta ágóðann
renna í sérstakan húsbyggingar
sjóð, sem afhenda skyldi verka-
lýðsfélögum bæjarins, þegar
þau hæfust handa um byggingu
sameiginlegs félagshúss.
1 fyrra féll þó þessi árlega
kveldskemmtun Alþýðuflokks-
íélagsins niður og lágu til þess
tvær ástæður: Sú fyrri, að full-
trúaráð verkalýðsfélaganna
hafði óskað þess bréflega við
öll flokksfélög bæjarins, að þau
tækju daginn á engan hátt í sína
þjónustu hin síðari var sú; að
hálflofað húsnæði brást.
1 ár hefir Alþýðuflokksfélag
Akureyrar einnig ákveðið að
halda enga 1. maí-skemmtun.
Liggja til þess tvær ástæður:
Sú fyrri; að Alþýðuflokksfélag-
ar, sem einnig eru í fagfélögun-
um( hafa óskað eftir slíku, svo
að þeir geti kannað til fulls,
hvort hægt sé að finna viðhlít-
andi lausn á 1. maí-hátíðahöld
unum í samvinnu við núverandi
forsvarsmenn kommúnista á
staðnum; hin ástæðan er sú, að
Alþýðuflokksfélagið getur ekki
fengið húsnæði til kveldskemmt
unar sinnar nema með því skil-
yrði, að ágóðinn; ef enhver yerð
ur, renni lekbi í húsbyggingasjóð
verkalýðsfélaganna.
Alþýðumaðurinn vill hvetja
alla í verkalýðsstétt og verka-
lýðssinna í bænum að fylgjast
vel með hátiðahöldunúm nú 1.
maí. Takist að gera þau sam-
stilltari og áhrifaríkari en verið
hefir til framdráttar baráttu-
málum verkalýðsins er það
vissulega sigur, sem vert' verður
að minnast; en setji kommúnist-
ar nú, eins og undanfarin ár,
flokksstimpil sinn á 1. maí-
skemmtanirnar hér, verður ak-
ureyrskur verkalýður, sem ekki
er slíku samþykkur, að taka til
sinna ráða að ári og fá þau
verkalýðsfélög, sem lýðræðis-
sinnar stjórna, til að skipa sér
saman um fagleg 1. maí-hátíða-
höld.
Verkalýðsfélögin hér hafa
ekki efni á því að það dragist
ár frá ári vegna klaufalegrar
forystu, að þau komi sér upp
myndarlegu félagsheimili, þar
sem þau geti haldið uppi marg-
háttuðu starfi, sér og bæjarfé-
lagi sínu til vaxtar og viðgangs.
Akureyringar, fylgist með 1.
maí-hátíðahöldunuin í ár og
dragið svo ykkar ályktanir,
hvort meinsemdin, sem hér hef-
Skjaldborgarbíó
„Monsieur
Verdoux“
Mjög áhrifarík, sérkenni-
leg og óvenjulega vel leikin
amerísk stórmynd, samin
og stjórnað af hinum heims-
fræga gamanleikara
CAELIE CHAPLIN.
Aðallhlutverkin leika:
Charlie Chaplin
Marta Raye
Isabet Elson.
Bönnuð yngri en 16 ára.
———irii’Mi——
NÝJA-BÍÓ
1 kvöld kl. 9:
Njdsnatörin
(SECRET MISSION)
Aðalhlutverkin leika:
James Mason
Hugh Wiiliams
Michael Wilding
Carla Lehmann.
Bönnuð 12 ára.
Ólafur Jónsson, framkvæmd-
arstjóri í Gróðrarstöðinni hér,
lætur af þeim störfum nú í vor,
en við tekur Árni Jónsson,
kennari við Garðyrkjuskólann á
Reykjum í ölfusi.
ir verið undanfarin ár, sé að
eyðast, eða hvort réglulegur
uppskurður sé nauðsynlegur að
ári, svo að akureyrskur verka-
lýður geti hindrunarlaust geng-
ið fram að marki sínu:
Frelsi, jafnrétti og bræðra-
lagi.