Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1934, Page 6

Dýraverndarinn - 01.06.1934, Page 6
2Ó DVR AVERNDARi N N Vaskur. Bjartan og yndislegan maímorgun kom stór hund- ur (Scháfer) skokkandi eftir þjóðveginum. Hann var óhreinn og illa hirtur, og svo skinhoraður, að telja mátti rifin á löngu færi. Það var auðséð, að þarna var á ferðinni hungraður og hræddur flæk- ingsrakki. Alt í einu nam hann staðar, snuðraði um veginn og þefaði út i loftið. í skógarjaðrin- um yzt við akurlendið og þarna fast við þjóðveg- inn stóð smábýli: hjáleigan Vesturkot. Og ein- mitt í þessum sömu svifum kom ung kona út úr bæjardyrunum með ungbarn í fanginu, og lagði ]jað í vöggu, sem stóð þar í forsælu trjánna. Þetta var Karen, húsfreyjau í Vesturkoti. Hundurinn þefaði og þefaði, unz hann smeygði sér lúpulega inn fyrir garðshliðið. Tungan lafði út úr honum, og það leyndi sér ekki, að hann mundi aðframkominn af þorsta. Hann þefaði enn einu sinni út í loftið, gekk svo rakleitt til konunnar og lagðist niður við fætur liennar. Karen laut niður og klappaði hundinum vinalega á kollinn. „Hver ert ])ú?“ sagði hún spyrjandi .... „ræfill- inn .... svona óhreinn og ótótlegur. En komdu samt með mér, greyið mitt,“ bætti hún við, og hund- urinn fylgdi hénni eftir inn í eldhús .... „Eitthvað ætti ég að geta tínt handa þér að éta, vesalingur," hélt hún áfram, ,,og vatn geturðu fengið að lejjja eins og þig lystir .... cn ég vildi aðeins vita hver þú ert og hvað þú heitir.“ Hún varð þó að sætta sig við að þeim spurn- ingum væri ósvarað, ])ví að hundinum var mein- að ])ess. Hann gerði matnum góð skil og þegar hann liafði étið og lapið nægju sína, rölti hann út á hlað- ið, og lagðist niður hjá vöggu Önnu, en svo hét hún, litli anginn og eftirlæti foreldranna, og var þá aðeins mánaðargömul. Iiún svaf vært og rótt, eins og þeirn einum er unt, sem ekki hafa dregizt inn i erfiðleika og baráttu lífsins. Karen, móðir Onnu, horfði á hundinn og hrosti. „En hvað þú ert góður, litli vesalingur," sagði hún. Hundurinn var alls ekki lítill, heldur gagnstætt: mjög stór og sterklegur, þrátt fyrir útlitið; en hann var dapur á svip og eitthvað svo einmani. Karen í Vesturkoti hafði oft óskað sér þess að eignazt hund. En Alfreð bóndi hennar mátti ekki heyra það nefnt. I hans augum vóru hundar og kettir óþarfa munnar að metta. Öðru máli að gegna um kýr, svín og kindur .... og svo hænsn .... En hundar ? .... og þar við bættist- svo, að greiða varð skatt af þeim — hundaskatt! Þegar Alfreð kom heim um kveldið frá vinnu sinni á herragarðinum, þar sem hann vann baki brotnu allan ársins hring — eins og aðrir hjáleigubændur þar í nágrenninu, — neitaði hann með öllu, að hinn nýi gestur yrði tekinn á heimilið. Karen þrábað hann eins og hún bezt kunni, en alt kom fyrir sama: hann var staðráðinn í því að hæna aldrei hund að heimilinu. Ef til vill hefir Alfreð verið í óvenju þungu skapi þetta kveld. Að minsta kosti lét hann e.kki sitja við orðin tóm, heldur þreif haun digran lurk og reiddi til höggs. Hundurinn skildi vin- arþel húsráðanda, forðaði sér í skyndi og hvarf inn í myrkviðið. Þetta kveld grét Karen í fyrsta sinn um langa hrið. Hundinum hafði skotið þarna upp á svo und- arlegan hátt, fanst henni .... Og svo hafði hann einnig lengst af tímanum, legið fram á lappir sínar hjá vöggu Önnu litlu, og það fanst henni góðs viti. Alfreð reis árla úr rekkju næsta morgun og fór til vinnu sinnar. En áður en liðnar vóru fimm mín- útur frá þvi hann fór, sá Karen, að hundurinn var kominn aftur og stóð við eldhúsdyrnar. Þá hló hún. „Þú ert ekki svo heimskur, garmurinn, og komdu nú inn,“ sagði hún og strauk honum vina- lega. Síðan gaf hún honum, og fór svo að sinna Önnu litlu. „Yfir henni eigum við að vaka .... við tvö,“ sagði Karen á meðan hún var að hlúa að barninu, eins og hún ætlaðist til að hundurinn skildi þetta .... Og ef til vill hefir hann einnig skilið það, ])vi að upp frá þessu veik hann sjaldan frá vöggu Önnu litlu. Hann hafði eignazt heimili, að minsta kosti á daginn. Ivaren l)aðaði hann og ræsti, og var svo glöð, eins og hún hefði fengið hundrað krónpr með póstin- um. En á hverju kveldi, og skömmu áður en Al- freð kom heim, hvarf hundurinn á brott, og lét ekki sjá sig fyrr en næsta morgun, er Alfreð var farinn að heiman. Dagarnir liðu og ekkert bar til tíðinda. Þá var það dag einn, að flakkari staðnæmdist hjá Vestur- koti, og er hann hafði gengið úr skugga unt ]iað,

x

Dýraverndarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.