Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.05.1929, Síða 16

Dýraverndarinn - 01.05.1929, Síða 16
42 DÝRAVERNDARINN Þrjú undanfarini ár hefi eg reynt aö veita þessu athygli, hér í Hafnarfir'öi. Vorið 1926 og 27 festi eg auga á einni kríu yfir Firöinum aö kvöldi 34. mai, þögulli og þreytu- legri, sýnilega lúinni eftir noröurflugiö. Næstu morgna sá eg nokkuru fleiri á sveimi, hljóölátar og hægfara. Síöani fjölgaöi þeim með degi hverjum. Voriö 1928 sá eg tvær Ikriur að morgni 14. ma'i, hljóöar og þunglamalegar, en svo fjölgaði þeim of- urlítiö, er á daginn leiö. Nú, 1929, varð eg einniar kríu var að kvöldi 15. maí. En: aö morgni þess 16., litlu fyrir miðjan morgun, sá eg fáeinar á flögri yfir Firðinum, allar hljóöar og spaklátar. Svo skall á austanúrfelli, jöfnum báðum miðinorguns og dagmála. Þá huríu þær mér allar. Eni rúmlega eina stund af nóni tók upp illviðrið. Og „mær brá ekki vana.“ Nokkuim fleiri voru á flugi þá en um morgunini, og ofurlítið voru þær liraðfærari, en þó þreytulegar. Og hvergi heyrðist enn þá riss-riss. — Nú, 18. maí, tæpri einni stundu betur miðjum morgni h e y r ð i eg fyrst í kríunni. En r i s s-r i s s var það ekki, held- ur einhver raddbrigði, sem eg fæ eigi eftir höf’ð. Athuganir mínar um komudag kríunnar og lirottför hennar undanfari þrjú ár, færa mér heim sanninn uin, að faðir minn muni hafa haft rétt að mæla og þeir Mýrarmenin, sem Guöm. prófastur Helgason leitaði upplýsingar hjá. Og gleyma má ekki reynslu Gr. Th. Eg tel því af tekinn mesta vafanin um komudtig knunnar að vorinu. Og eg þykist meiga vera sann- færður um farardag hennar að sumrinu. Eni vænt þætti mér þó, að heyra frá öðrum mönnum um þessa hluti, svo og um það, hvort vart yrði slíkrar stundvissu hjá öðrum farfuglum. Mætti ætla, að fuglajfræði.nlgum þætti því líkar skýrslur nokkurs verðar, hafi þeir eigi hlotið þær áður. E. Þ. Tunga. Verndarstöð dýra. Þjóðkunnugt mun, að Dýraverndunarfélag Is- lands réðst í það fyrir nokkurum árum, að kaupa nýbýli innan við Reykjavík, sem nefnt er Tunga, þá að mestu komið í rækt, með íbúðarhúsi og nokk- urum fénaðarhúsum fyrir kýr og hesta. Var i þetta ráöizt, þegar Tryggvasjóður, eða dánargjöí Tn'ggva bankastjóra Gunparssonar, hvarf undir umsjón félagssjórnarinnar, með þeim hætti, að fé- lagið gat fengið fé lánað úr sjóðnum til Tungu- kaupanna, til viðbótar þeim 12000 kr., er þá hafði verið! safniað i því skyni að koma upp húsi í þarfir félagsins. Hér verður ekki frá því skýrt, hve mikinn kostn- að félagið hefir orðið i að leggja, til þess að bæta húsakynni í Tungu og auka þau, þó að þegar hafi verið varið stórfé í því skyni alf hálfu félagsins. Er þó mikið enn óunnið af nauðsynlegum umbótum. Á hitt skal fremur minnzt, hvilíkt nauðsynjaverk, mannúöar og menningar hefir unniið verið með vernidarstöðinni í Tungu. Siðan hún tók til starfa, hefir ævinlega verið þar athvarf fyrir s'keþnur, sauðfé, nautgripi, hesta, ketti, hunda o. fl., er hýs- ingu hafa þurft og fóðrun, hvort sem þær hafa verið í vörzlum ferðamanna, í óskiluin, og þar með forsagnarlausar, eða sjúkar og vanhaldnar og þurft aðhlynningar eða hjúkrunar. Verndarstöðin í Tungu hefir jafnan tekið á móti slíkum dýrum, rneðan húsrúm leyfði, fóðrað þau og hirt og oft stutt að meinagræðslu þeirra, efir þvi sem föng voru á. I annan stað höfir vemdarstöðin í Tungu búizt svo fyrir, að hún gat eigi að eins haft nægí- legar heybirgðir, til að fóðra geymslufénað siun eftir þörfum, heldur hefir hún og oftast verið svo birg, að hún gat selt hey, á ýrnsum tímum árs, mörgum þeim, er skorti það. Þótt sú sé eigi ætlanin, að rekja hér til lokins, hversu miklu og nytsömu verki verndarstöðin í Tungu hefir fengið til vegar komið frá upphafi henn- ar og frarn á þenna dag, og þótt auðvelt myndi ef til vill að greina tölu þeirra dýra, sem á undanförn- um árum haía verið hýst þar, fóðruð og geymd, lengri eða skemmri tíma, og notið hafa þar stund- um lækningar og annarar verndar, þá skal því sleppt að sinni. Verður í þetta sinn látið nægja að geta þess, að árið 1928 voru dýr fóðruð þar, geymd og vernduð, nokkur til lækninga, eins og hér segir: Hestar ............... 534 Nautgripir ........... 202 Sauðkindur ........... 486 Hundar ................ 68 En geta má, að eigi er víst, að hér sé allt talið.

x

Dýraverndarinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.