Dýraverndarinn


Dýraverndarinn - 01.06.1934, Blaðsíða 9

Dýraverndarinn - 01.06.1934, Blaðsíða 9
DÝRAVERNDARINN náÖa fyrir góíSri stundu, en þó gat ég gefi'Ó Sörla gamla góða töðutuggu. ÞakkaÖi ég honum með mörg- um hlýjum orðum og klappi, hve giftusamlega hon- um hafði tekizt að bjarga mér yfir Vötnin, er svo var komið fyrir sjálfri mér, að ég vissi ekki hvert halda skyldi. Sennilegast þykir mér, að Sörli gamli hafi skilið orð min, cr ég kvaddi á Víðivöllum, og sagði. að ég ætlaði ekki lengra þá um kveldið en að Ási og gista þar. Hefði leið min legið krókalaust frá Víði- völlum og út að ViÖvík, hefði mig ekkert undrað vitsmuni hestsins og ratvísi. En þar sem vegurinn að Ási lá þvcrt úr leið yfir vötn og vaðla, verð ég að álita, að Sörli gamli hafi sýnt fráhæra vits- muni, að halda einmitt að Ási, er hann fann, að hann var algerlega sjálfráður um stefnuna. Ó lafla Klemensdóttir, Reykjavik. Holtakots-Gulur.’ (A lifi í Aðaldal i S.-Þingeyjarsýslu 1874 -'84).*) Endurminning oft mér bauð — áður kæmi að þroti — gömlum lýsa greindum sauð: Gul frá Holtakoti. Fagurt þótti lýðum lamb. — TTjá listamóður undi. TTöfuð sitt og hcrðakamb hafði þurt á sundi. Ungur var hann ekki mjór, allur rekinn saman, höfuðmikill, hornastór, háreistur að framan. *) I hréfi, sem fylgir vísum þeim, er hér koma á eftir, segir svo: ,,Við lestur ,,Dvraljóða“, gefn- um út árið iq^t, sé ég i formála bókarinnar, að hr. landshókavörður dr. Guðm. Finnbogason kvart- ar yfir þvi, að engir liafi orðið til þess að yrkja erfiljóð eftir forustusauði. Þessi ummæli urðu til l>ess, að vekja hjá mér endurminningar um ágætis forustusauð, sem faðir minn átti fyrir 50 árum. Ég lagði í ])að að semja eftirmæli um sauðinn, i bundnu máli. Bið ég Dýraverndárann að birta þau á prenti," Undir léttum brúna-bug, hærður vöðva-taugum, Norðurljósa-leiftur flug litu menn í augum. Oft á garða varði visk, varla slepti hárum. Hornin liktust hörpudisk, hringuð mörgum gárum. Inn við stafn um óttu kyr upp að vinar síðu. Alt af var ])ó út við dyr, cf hann vissi á blíðu. Álits-fríður alls staðar enn við sjónum blasir. Fögur snoppa féskúf bar fyrir ofan nasir. Andlit gult, en gæran hvít, glóði á svipinn rauða. Þennan sauð með lotning lit, sem Ijómar fram í dauða. Á það dreg eg enga dul, að ])ótt mörgum sópi, sjón var mcst að sjá liann Gul svífa fram úr hópi. Frcmstur sauða fór á brokk, frægur sundsni 11 ingur, hraðar göngu, hristir skrokk, horni’ í klukka syngur. Fór um viðan fjallasal, fótum sporar hauður. Uppi var í Aðaldal ágætasti sauður. Kominn ,,Fori’“ af fjöllum hcim feitari mörgum selnum. Sópaði að sauðnum þeim i Sílalækjar Melnum. Sýndist hár í sauðahóp sá á ,,rétta“-þingi. Ollu réð og undan hljóp eins og herforingi. Oft viö bylji átti strið, andlit huldi klakinn,

x

Dýraverndarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dýraverndarinn
https://timarit.is/publication/598

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.