Alþýðumaðurinn - 31.05.1967, Qupperneq 1
Verzlið í sérverzlun.
Það tryggir gæðin.
TÓBAKSBÚÐIN
Brekkugötu 5 . Sími 12820
FRAMKÖLLUN — KOPIERING
PEDROM YNDIR Akureyri
HAFNARSTRÆTI 85 . SÍMI (96)11520
ALÞYÐUMAÐURINN
XXXVII. árg. — Akureyri. miðvikutlaginn 31. maí 1967 — 17. tbl.
Ve! heppnaður sjómannadagur
r
Arskógsstrendingar enn sigurvegarar í róðíar-
keppni. Tveir aldraðir sjómenn lieiðraðir
4
<■
<■
4>
->
$
©
4
%
<■
1
l
t
<-
<3
Kynning á frambjóðendum AEþýðuflokksins
GUNNAR JÓNSSON, bifreiðarstjóri á Dalvík, skipar 6. sæti |
- . . . 4
CIJNNAR JONSSON biíreiðastjóri og sérleyfisliafi á Dalvík, er fæddur 26. október 1924 að
Hæringsstöðum í Svarfaðardal, sonur hjónanna Jóns Jóhannessonar bónda þar og Lilju ©
Árnadóttur konu hans. Gunnar fór ungur að heiman í kaup-
mennsku, en 18 ára tók bann bifreiðarstjórapróf og réðist þar ^
skömmu á eftir bílstjóri til Útibús KEA á Dalvík og annaðist
hann mjólkurflutninga úr Svarfaðardal til Akureyrar, en y
stundaði síðan vöruflutninga á eiginn vegum milli Dalvíkur $'
og Reykjavíkur um nokkurt skeið. Réðst síðan sem áætlunar 4
bifreiðarstjóri til Norðurleiða h.f. og var hluthafi í fyrir- 4
tækinu um nokkurn tíma, og keyrði Gunnar á vegum Norð- 4
urleiða milli Reykjavíkur og Akureyrar í 8 ár. Fyrir 4 árum í.
tók Gunnar við sérleyfinu Dalvík—Akureyri, og nú í vor 'v
var honum einnig veitt sérleyfið Ólafsfjörður—Dalvík—
Akureyri. Auk sérleyfisferða hefur Gunnar annazt hópferðir
og er liann t. d. þekktur öræfabílstjóri. í næstu viku niun
Gunnar flytja afgreiðslu sína í nýtt og glæsilegt hús á Dalvík, sem er sameign hans og Skelj-
ungs h.f. — Kvæntur er Gunnar, Emmu Stefánsdóttur frá Akureyri og eiga þau 1 dóttur.
AM sendir beztu kveðjur að Hafnarbraut 16 á Dalvik til Gunnars og fjölskyldu.
*
®
4
4
t
4
<3
Agætir kjósendatundir Alþýðuflokksins
OJÓMANNADAGURINN var
^ hátíðlegur haldinn um síð-
ustu helgi og. voru samkomur í
tilefni hans mjög vel sóttar, og
meira að segja veðurguðirnir
sýndu norðlenzkum sjómönnum
virðingu sína, með því að breyta
um svip. Breyttu á svipstundu
norðangarra í sunnanþey.
Fjölmenni horfði á, frá Torfu-
nefsbryggju, á róðrarkeppni á
Pollinum. Sigutvegari í keppni
bæjar- og sveitarfélaga varð enn
sveit Árskógstrendinga og er það
í 5. sinn, er vaskir garpar þaðan
bera sigur úr býtum. Sveitina
skipuðu: Hermann Guðmundsson
FIMMTÍU AR eru liðin síðan
skátahreyfingin festi rætur
sínar á Akureyri. Daninn Viggo
Öfjörd plægði akurinn og skáta
félag var stofnað 1917. Og frá
upphafi hefur skátahreyfingin
á Akureyri -verið hollur skóli
unglingum og æskufólki.
í tilefni fimmtugsafmælisins
settu skátar skemmtilegan svip
á bæinn sl. laugardag. Myndar-
legur tum var reistur á Ráð-
liústorgi og glöð tónlist barst
um miðbæinn til yndisauka fyr
ir bæjarbúa er nutu útivistar á
fyrsta góðviðrisdeginum er kom
ið hafði um lengri tíma. Ungir
skátar gengu fylktu liði um bæ
Síldarverð ákveðið
YFIRNEFND verðlagsráðs
sjávarúívcgsins áltvað á
fundi í nótt bræðslusíldarverðið
>411' júní og júlí. Var síldar-
verðið ákveðið kr. 1.21 kg.
stýrimaður, Vigfús Jóhannsson,
Hörður Gunnarsson, Sigurður
Konráðsson, Eiríkur Kristvalds-
son, Brynjar Baldvinsson og
Gunnlaugur Konráðsson. Af sveit
um landmanna sigraði sveit
Vatnsveitu Akureyrar, og af sveit
um skipshafna skipverjar Brett-
ings.
Tveir aldnir heiðursmenn í
sjómannastétt voru heiðraðir í
tilefni dagsins, þeir Sigurgeir
Jónsson og Þorbjörn Kaprasíus-
AM sendir öllum norðlenzkum
sjómönnum velfarnaðaróskir, og
væntir þess að sumarið verði
þeim gjöfult og gott.
inn prúðmannlegir í fasi.
Hóf héldu skátar síðdegis í
Sjálfstæðishúsinu, undir stjórn
Ingólfs Ármannssonar. Skáta-
foringjarnir Margrét Hallgríms
dóttir og Tryggvi Þorsteinsson
röktu sögu skátahreyfingarinn-
ar á Akureyri. Stofnandinn,
Viggo Öfjörd og kona hans
ALÞÝÐUFLOKKURINN hef-
ur nú haldið 5 kjósenda-
fundi hér í kjördæminu, Ólafs-
firði, Dalvík, Akureyri, Húsa-
vík og Hrísey. Frá Ólafsfjarðar
fundinum var sagt frá í síðasta
blaði, en hann var sá fjölmenn-
asti og glæsilegasti, er Alþýðu-
flokkurinn hefur haldið til
þessa, og færir AM Ólafsfirð-
ingum sérstakar þakkir fyrir
góðar móttökur, en þær hafa
vakið sérstaka athygli meðal
andstæðinga Alþýðuflokksins.
fluttu ávörp. Margar ræður
voru fluttar og m. a. færði for-
seti bæjarstjórnar, Jakob Frí-
mannsson, skátahreyfingunni
árnaðaróskir og þakkir af hálfu
bæjarfélagsins. Af hálfu Banda
lags íslenzkra skáta sæmdi
Hrefna Thynes þá Dúa Björns-
son og Ríkharð Þórólfsson
„skátakveðjunni“.
(Framhald á blaðsíðu 7)
Næsti fundur A-Iistans var á
Dalvík sl. föstudagskvöld. Um
90—100 manns sóttu fundinn og
var ræðumönnum vel tekið, en
þeir voru Bragi Sigurjónsson og
Hreggviður Hermannsson. Auk
þeirra tóku til máls Jón Stefáns
son oddviti. Milli ræðuhalda
skemmti Jóhann Konráðsson
með einsöng við undirleik Ás-
kels Jónssonar. Fundarstjóri
var Ásgeir Sigui-jónsson kenn-
ari.
Kjósendafundur A-listans á
Akureyri var kl. 2 sl. laugar-
dag í Borgarbíói. Um 130—140
manns sóttu fundinn, og olli hin
dræma fundarsókn nokkrum
vonbrigðum A-lista manna, en
þess ber þó að geta, að fund-
urinn var haldinn á óhagstæð-
um tíma. Skátar skemmtu í mið
bænum og róðrarkeppni var
haldin á Pollinum í tilefni Sjó-
^ÐEINS stuttir punktar að
þessu sinni, góðir stuðn-
ingsmenn. A-listinn þarf 1500
atkvæði, svo að öruggt sé að
Bragi Sigurjónsson verði kjör-
dæmiskjörinn. Þetta er létt
verk ef allir stuðningsinenn og
velunnarar A-iistans taka virk
an þátt í sigri jafnaðarmanna í
kjördæminu. AM treystir því,
að enginn skerist úr leik, þá
verður sigur öruggur.
Munið kosningasjóðinn. Marg
ar hendur vinna létt verk. Var-
ist Gróusögur andstæðinganna
um frambjóðendur A-listans.
mannadagsins. Ræðumenn á
fundinum voru Bragi Sigurjóns
son, Guðmundur Hákonarson,
Hreggviður Hermannsson og
Björgvin Guðmundsson, er
mætti í stað Gylfa Þ. Gíslason-
ar, er gat ekki komið norður
sökum veikinda. Hljómsveit
Ingimars Eydal og söngvarar
skemmtu í upphafi fundarins og
í lok hans. Fundarstjói'i var
Steindór Steindórsson skóla-
meistari, er mælti eldheit hvatn
ingarorð í fundarlok. Jafnaðar-
menn hafa hug á því að efna til
annars kjósendafundar á Akur-
eyri.
Húsavík. Á laugardagskvöld-
ið var haldinn kjósendafundur
á Húsavík í samkomuhúsinu
Hlöðufelli og var húsið þétt set-
ið og munu um rúmlega 150
manns hafa komið á fundinn, og
(Framhald á blaðsíðu 6).
Verum öll drengileg í baráttu
okkar fyrir sigri A-Iistans. A-
listinn mun sigra án fjármagns,
án óheiðarleika í málflutningi,
án áhrifavalds voldugra at-
vinnurekenda. Munið að kjósa
strax, ef þið verðið ekki heima
á kjördegi. Munið að hafa sam-
band við kosningaskrifstofuna,
sírni hennar er 2-13-22. Munið
að veita upplýsingar um vini
ykkar og kunningja, sem eru
fjarverandi.
AM skorar á alla lýðræðis-
jafnaðarmenn að fylkja sér um
(Framhald á blaðsíðu 7)
f 1 —....
í Skátarnir settu svip á bæinn
Minnast 50 ára afmælis skátahreyfingarinnar
Til stuðningsmanna A-LISTANS
í Norðurlandskjördæmi eystra
LEIÐARI: Launajafnrétti kvenna við karla
Utvarpsræða Trausta Gestssonar, sjá bls. 5